29.12.1987
Neðri deild: 39. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3369 í B-deild Alþingistíðinda. (2365)
196. mál, söluskattur
Fjármálaráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):
Herra forseti. Með vísan til samkomulags, sem tókst milli talsmanna stjórnarflokkanna og fulltrúa stjórnarandstöðunnar í gærkvöld eða öllu heldur í nótt, um það að ljúka þessari umræðu nú klukkan fjögur og afgreiða þetta mál til nefndar get ég ekki leyft mér þann lúxus að svara öllum einstökum ræðumönnum að því er varðar þeirra málflutning, enda sýnist mér að það komi að vísu ekki að sök við umfjöllun málsins því að af þeim 28 álitamálum sem nefnd hafa verið sýnist mér að 26 hafi þegar fengið umfjöllun í framsöguræðu þannig að út af fyrir sig stendur ekki upp á mig að svara af hálfu ríkisstjórnarinnar að því það varðar. Þetta snertir fyrst og fremst kjarna málsins sem er spurningin um þetta: Hver eru heildaráhrif á framfærslubyrði heimilanna í landinu af þessari kerfisbreytingu? Niðurstaðan er sú, óhrekjanlega, að framfærslukostnaður meðalfjölskyldu í landinu hækkar ekki af þessum sökum, og ef menn spyrja um einstaka hópa, þ.e. barnmargar fjölskyldur, einhleypa foreldra með börn og hina eldri í landinu, þá er niðurstaðan sú að þessir hópar eru betur settir eftir en áður vegna þeirra hliðarráðstafana sem hefur verið gripið til. Þetta er kjarni málsins.
En þó voru það örfá atriði þar sem farið var fram á frekari upplýsingar sem ekki komu fram við framsögu málsins og er rétt að svara.
Einir þrír hv. þm. spurðust fyrir um hvernig yrði hagað niðurgreiðslu á verði á neyslufiski. Í máli eins hv. þm. kom fram sá misskilningur að hann standi í þeirri trú að ríkisstjórnin hefði ákveðið að falla frá söluskatti á fisk. Í fyrsta lagi er rétt að leiðrétta það. Svo er ekki heldur er niðurstaðan sú að verja 160 millj. kr. til að greiða niður verð á neyslufiski þannig að verðhækkun á 65% fiskafurða og þá á smásölustigi verður ekki af þessum sökum nema um 10%. Niðurgreiðslurnar ná til fersks fiskjar til daglegrar neyslu, þ.e. ýsa, þorskur, lúða, rauðspretta, karfi o.fl., auk þess er þar með talið saltaður fiskur og reyktur. Undanskilin verða rækja, humar, hörpudiskur og kavíar. Niðurgreiðslan tekur ekki til fiskjar sem seldur er á veitingastöðum eða mötuneytum. Með þessum hætti tekur niðurgreiðslan til 65% af heildarneyslu. Til þessa er varið 160 millj. kr. Niðurgreiðslan fer fram á smásölustigi og á grundvelli söluskattsskýrslna verður niðurgreiðslan ákveðin sem tiltekið hlutfall af heildarsölu. Það skal tekið fram til upplýsingar að mikill meiri hluti neyslufiskjar er nú seldur á höfuðborgarsvæðinu í stórmörkuðum. Fiskbúðir eru tiltölulega fáar. Þannig er enn haldið til skila þeirri grundvallarreglu að það verði ein og sama söluskattsálagningin í allri vöruverslun í landinu, allri vöruverslun.
Niðurgreiðsla af þessu tagi, sem byggist á framlögðum söluskattsskýrslum, mun ef nokkuð er bæta fremur innheimtu söluskatts af þessari verslun. Vísitöluáhrif af þessari niðurgreiðslu svara til lækkunar á framfærsluvísitölu um 0,1%. Fjármögnun, eins og fram hefur komið, byggir á því að lagt verður vörugjald á nokkrar tegundir snyrtivara, ilmvötn og andlitsfarða sem mun skila um 130–140 millj. kr. Ástæðan fyrir því að það var gert, það hefur komið fram í umræðunum, er m.ö.o. sú staðreynd að þessar merkjavörur geta menn ekki gert sér vonir um að verð lækki á svo sem vert væri við lækkun tolla og vörugjalds.
Annað sem rétt er að árétta ögn betur snertir spurninguna um hvort við erum hér að fara aðrar leiðir en grannþjóðir okkar, þ.e. í því efni að tala um eins stigs söluskatt eða eins stigs virðisaukaskatt þegar þar að kemur. Þar hafa menn vitnað til Efnahagsbandalagsins og spurt spurningarinnar hver er kaþólskari en páfinn. Samkvæmt þeim upplýsingum sem fram hafa komið í máli hv. þm. er það svo að virðisaukaskattur í Evrópubandalagslöndum er allt frá 7 og upp í 38% og í sex söluskattsþrepum í sumum löndum, mörgum tveimur, mörgum þremur, aðeins einu í einu þrepi. Það sem er að gerast í Efnahagsbandalaginu er að menn eru að gera sér ljóst að þetta kerfi er brostið. Það er verið að reyna að fækka þessu í þá átt að fækka úr sex í tvö. Það er verið að reyna að fara að feta sömu slóð, samræma og einfalda kerfið sem er orðið allt of flókið, skilar illa sínum tekjum, hefur legið undir gífurlegri gagnrýni. M.ö.o. þeir eru að stefna í sömu átt. Þeir geta hins vegar ekki gert sér vonir um að ná lengra á þessu stigi af þeirri einföldu ástæðu að þarna er um að ræða fjölþjóðlegt bandalag og þrátt fyrir allt talsvert miklu meiri erfiðleika á samræmingu en við getum vænst á okkar landi. Samanburðurinn er ekki annar en sá að við erum eftir sem áður þrátt fyrir þessa breytingu með tveggja stiga söluskatt. Við erum með eins stigs söluskatt út þetta ár á alla vöruverslun. Við erum í annan stað með 12% söluskatt á þjónustu og við erum með undanþágur frá söluskatti á fjölmörg aðföng, vélar, tæki og hráefni til samkeppnisiðnaðar af þeirri nauðsyn að söluskattur býður ekki upp á annað. Þessu getum við ekki breytt fyrr en við tökum upp virðisaukaskatt.
Við njótum þess að geta gert betur en Efnahagsbandalagið. Við þurfum m.ö.o. ekki að lúta páfanum og förum þar að fordæmi Norðurlandaþjóða þar sem er virðisaukaskattur eins stigs á bilinu frá 19 og upp í 23%. Í því efni er vert að staldra við að það er auðvelt að bera saman tekjuöflunarkerfi ríkis og velferðarþjónustu í þeim löndum. Ég held að sú gagnrýni sem fram kom í máli hv. þm. Steingríms Sigfússonar og beinist þá að löndum sem hafa eins stigs virðisaukaskatt, þar með á matvæli, og hafa haft lengi, að það sé svo skelfilegt ástand, standist ekki skoðun.
Jæja. Önnur atriði held ég að ég þurfi ekki að staldra við. Jú, það var beint til mín og hæstv. samgrh. tilmælum um að nýta ekki heimild til undanþáguveitingar frá aðflutnings- og sölugjaldi að því er varðar björgunarbúnað eins og t.d. flotgalla nema því aðeins að tryggt væri að það væru raunveruleg björgunartæki en ekki dauðagildrur. Við svo sjálfsögðum tilmælum er aðeins eitt svar: Að sjálfsögðu verður reynt að verða við því og þá vona ég að það verði tryggt að faglegt mat þeirra stofnana sem meta slíka hluti sé traust og áreiðanlegt.
Að því er varðar umræðu um ummæli mín í sjónvarpi í gærkvöld kom það fram við upplestur hv. þm. Steingríms Sigfússonar að hér var ekki verið að vaða að stjórnarandstöðu með ásökunum eða brigslyrðum. Þvert á móti var því lýst yfir að ég tryði því ekki fyrr en ég tæki á því að stjórnarandstaðan vildi eiga þátt að því eða bera ábyrgð á þeim afleiðingum sem af hlytust ef þessi frv. yrðu ekki að lögum um áramótin. Það er rétt að allir þm. átti sig skilmerkilega á því hvað það þýðir. Þá er ég ekkert að vega eða meta sök stjórnar eða stjórnarandstöðu, einfaldlega að spyrja spurningarinnar: Hvaða afleiðingar hefur það ef tekjustofnalögin, sem eru forsenda fjárlaganna, taka ekki gildi um áramót?
Afleiðingarnar eru þessar: Annars vegar er um að ræða tekjustofnafrv. um tolla og vörugjald sem fela í sér verulega lækkun á verðlagi, mjög verulega lækkun á tollum, afnám vörugjalds á mjög margar vörutegundir. Þetta felur í sér verðlækkun sem hefur um 21/2% áhrif til verðlækkunar í framfærsluvísitölu. Hins vegar er um að ræða samræmda söluskattsálagningu sem felur í sér verðhækkun.
Þá þýðir málið það í fyrsta lagi að ef frv. um tolla og vörugjald verða ekki að lögum munu menn ekki njóta verðlækkana sem af því leiðir. Ef söluskattsfrv. tekur gildi en á grundvelli óbreyttra tolla og vörugjalds munu af því hljótast verðhækkanir óhjákvæmilega sem erfitt er að sjá fyrir endann á en eru óvæntar. Í annan stað er það tæknilegt atriði að það falla úr gildi heimildir fyrir mjög margvíslegum undanþágum ef söluskattsfrv. nær ekki fram að ganga þannig að þar með er skylt að innheimta söluskatt af aðföngum, vélum, tækjum og hráefnum til t.d. samkeppnisiðnaðar og reyndar til mjög margra vöruflokka annarra.
Ég endurtek: Þetta er ekki spurning um ásakanir í garð stjórnarandstöðu. (Gripið fram í.) Já, já, ég sagði ósköp einfaldlega að ég tryði því ekki að stjórnarandstaðan vildi eiga hlut að því að þessar afleiðingar hlytust af. Svo geta menn sagt: Það er alveg eins stjórnarliðum um að kenna. Það skal ég ekkert leggja dóm á hér. Það er ekkert meginatriði málsins. Hins vegar þurfa allir að vita, jafnt hv. þm. í stjórn og stjórnarandstöðu, sem og allur almenningur í landinu, hverjar afleiðingarnar verða ef svona fer. Það er ósköp einfalt mál. Hitt er aukaatriði hvernig menn vilja deila sök á milli stjórnar og stjórnarandstöðu úr því sem komið er.
Herra forseti. Ég ætla ekki að hafa um þetta mikið fleiri orð, en vona að málið fái vandlega umfjöllun í nefnd.