30.12.1987
Efri deild: 45. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3400 í B-deild Alþingistíðinda. (2378)
54. mál, útflutningsleyfi
Eiður Guðnason:
Virðulegi forseti. Vegna ummæla hv. 8. þm. Reykv. held ég að það sé ekki nokkur minnsta ástæða til að gefa fundarhlé nú fyrr en verður e.t.v. gefið hlé í kringum kvöldverðartíma. Mér finnst sjálfsagt að hv. þm. stjórnarandstöðunnar fái að segja allan hug sinn til þeirra flóknu mála sem hér eru til umræðu. Ég ætla ekki að hefja neinar efnislegar umræður um þetta mál. Það er ekki eftir hætti að gera það undir þessum lið. Aðeins er ég að tala um framhald fundarins. Og ég mælist eindregið til þess að virðulegur forseti haldi fundinum áfram þannig að menn geti fengið að tjá sig að vild.