30.12.1987
Efri deild: 45. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3404 í B-deild Alþingistíðinda. (2385)
40. mál, Útflutningsráð Íslands
Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Halldór Blöndal):
Hæstv. forseti. Þetta frv. er mjög einfalt í sniðum og felur í sér breytingu til samræmis við það samkomulag sem varð milli stjórnarflokkanna um nýja verkaskiptingu milli viðskrn. og utanrrn. Þó er það svo að samkvæmt lögum um Útflutningsráð Íslands eiga bæði ráðuneytin, utanrrn. og viðskrn., aðild að Útflutningsráði og auk heldur iðnrn., landbrn., samgrn. og sjútvrn. Það er vel fyrir Stjórnarráðinu séð í Útflutningsráði.
Eins og fram kom í umræðum um útflutningsleyfi hefur orðið samkomulag um það í deildinni að þessi frv. bæði komi aftur til frekari athugunar í nefndinni milli 2. og 3. umr. og mun ég boða til fundar í fjh.og viðskn. þegar eftir áramótin til þess að við getum enn þá betur grandskoðað frv., hæstv. forseti, og var þó síður en svo að höndunum væri til þess kastað því að fyrir fund nefndarinnar komu hvorki meira né minna en fulltrúar frá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, Sambandi ísl. samvinnufélaga og Síldarútvegsnefnd. Auk heldur Þórhallur Ásgeirsson ráðuneytisstjóri viðskrn. sem er þessum málum öllum gjörkunnugur.