30.12.1987
Neðri deild: 41. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3439 í B-deild Alþingistíðinda. (2416)

197. mál, vörugjald

Albert Guðmundsson:

Hæstv. forseti. Ég nota tækifærið meðan bankamálaráðherra er viðstaddur til þess að upplýsa Alþingi um það að mér hefur borist til eyrna oftar en einu sinni í dag að þrálátur orðrómur sé víða um land um að gengi íslensku krónunnar verði fellt jafnvel í kvöld eða á morgun, í síðasta lagi nú um áramótin. — (Forseti: Ég vil vekja athygli hv. ræðumanns á því að hér eru aðeins undir þessum lið þingsköp til umræðu.) Ég er að gera fsp. um það sem hefur verið og er á dagskrá, það eru efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar. — Og gjaldeyrisdeildum bankanna muni verða lokað á morgun. Þetta er fullyrt við mig víða að. Ég vil því spyrja: Er þetta rétt? Og ef svo er: Er þetta þáttur í efnahagsráðstöfunum ríkisstjórnarinnar sem er hluti af þeim umræðum sem eiga sér stað nú í þessari hv. deild. (Forseti: Ég vek athygli á því að undir umræðum um þingsköp rúmast aðeins umræður um þau efni, en ekki almennar umræður um efnahagsmál.)

Virðulegur forseti. Það er ekkert af því sem er á dagskrá núna og snertir tolla og innflutning og tollskrá, tollflokkun og tollnúmer sem ekki fellur beint undir gengismál. Það er ekkert af því sem hér er til umræðu í dag sem ekki fellur beint undir gengismál og því óska ég eftir því að hæstv. ráðherra bankamála svari því til vegna þess að ríkisstofnanir, bankarnir, eru þegar — það er fullyrt í mín eyru — farnir að gera það sem kallað er spákaupmennska, ráðstafanir til þess að bjarga sínum eignum á sama tíma sem þeir gera hliðstæðar ráðstafanir til að koma í veg fyrir að einstaklingar geti gert það sama.