30.12.1987
Neðri deild: 41. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3443 í B-deild Alþingistíðinda. (2423)
Tilhögun þingfundar
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Þó það varði ekki kjarna þess sem ég ætla hér að mæla vek ég athygli virðulegs forseta á því að kl. er rúmlega fjögur og fyrr á deginum greindi virðulegur forseti þingdeildinni frá því að kl. fjögur í dag mundu menn hittast til að ráðgast fyrir um þinghaldið og lofaði mér m.a. svari í framhaldi af því um hvernig haldið yrði fram umræðum í deildinni um þau mál sem yrðu á dagskrá og leyft yrði að kæmu fyrir, þá með tilliti til þess að ég og sjálfsagt fleiri utanbæjarþingmenn hafa áhuga á að vera heima hjá sér um áramótin. Til þess að það geti orðið getur þinghald auðvitað ekki staðið langt fram á kvöldið, miðað við það líka að fyrirhugaður er fundur í sameinuðu þingi. Forseti greindi okkur frá því, ég held að mig misminni það ekki, að það yrði fundur um þetta hjá forustu þingsins um framhald þingstarfa kl. 4, en ætlaði að taka fyrir nýtt mál til 2.umr., frv. til laga um söluskatt. Ég inni virðulegan forseta eftir því: Er úr sögunni að það verði ráðgast fyrir um þinghaldið og framhald á umræðum í þinginu á þessum degi og þessum fundi eins og þó hafði verið gefið til kynna? Ég óska eftir því að fá hið fyrsta vitneskju um hvenær verði lokið fundi í þingdeildinni, hvenær eigi að ljúka fundi fyrir áramótin og tel að við eigum á því eðlilega kröfu þm., ekki síst þeir sem búa utan höfuðstaðarins.
En það sem ég vildi auk þess mæla í sambandi við þingsköp snertir það að hér á að taka á dagskrá nýtt mál á sama tíma og ekki er lokið umræðum um annað dagskrármál sem var til umræðu. Ég hafði borið fram fsp. til þriggja tiltekinna hv. þm. og hæstv. ráðherra og það hefur ekkert reynst mjög auðvelt að fá þá til að vera viðstadda umræður í þingsal, hvað þá þegar fleiri en einn koma við sögu, varðandi mál. Þetta varðaði 11. gr. frv. til laga um vörugjald sérstaklega og einnig fleiri þætti. Mér hefði þótt eðlilegt að þetta mál fengi eðlilega áframhaldandi meðferð í þingdeildinni og inni eftir því hvað valdi að svo er ekki og beini jafnframt óskum til virðulegs forseta um að hann stuðli að því að frv. til laga um vörugjald fái hér áframhaldandi umræðu þar sem það er eina málið í rauninni sem sómasamlega er undirbúið og liggur hér fyrir. Það hefur komið fram að ekki er búið að dreifa nál. um söluskattinn.
Þetta er sem sagt mín ósk við virðulegan forseta, auk þeirrar fsp. um þinghaldið sem ég hef þegar komið á framfæri.