30.12.1987
Neðri deild: 41. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3444 í B-deild Alþingistíðinda. (2424)

Tilhögun þingfundar

Forseti (Jón Kristjánsson):

Það skal upplýst í sambandi við þann fund sem hv. ræðumaður nefndi að hann er áætlaður kl. 4 og ég er orðinn of seinn á hann og ætlaði einmitt á þeirri stundu sem þessar umræður byrjuðu að kalla varaforseta til og víkja á þann fund. Ég mun að sjálfsögðu fara á hann.

En í sambandi við 1. dagskrármálið, sem var til umræðu, var það hér rétt í þessu að umræðu var frestað um það mál vegna þess að það var óskað eftir formanni fjh.- og viðskn. til umræðunnar. Ég hef látið hafa samband við hann og óskað eftir því að hann komi til þeirrar umræðu. Það er ekkert því til fyrirstöðu að halda henni áfram þegar hann kemur hér, auk þess sem hann er frsm. í 2. dagskrármálinu sem eru tollalög. Þar sem álit meiri hl. liggur fyrir í 4. dagskrármálinu var ákveðið að taka það á dagskrá hér, taka það fyrir, en að sjálfsögðu ekki halda áfram umræðu í því fyrr en álit minni hl. liggur fyrir.