30.12.1987
Neðri deild: 41. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3445 í B-deild Alþingistíðinda. (2426)

Tilhögun þingfundar

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Ég vek athygli virðulegs forseta á því eins og ég gerði áðan með frammíkalli, leyfði mér, að nál. minni hl. í 4. dagskrármálinu er ekki komið fram. Það er til prófarkarlestrar og fer í dreifingu hér eins fljótt og hægt verður. En ég bendi á að 2. dagskrármálið bíður einnig 2. umr. Þar eru nál. bæði meiri og minni hl. komin fram. Það vill svo til að sömu frsm. eru þar á ferðinni, a.m.k. af hálfu minni hl., þ.e. ræðumaður, en hann er jafnframt, þessi ræðumaður, boðaður á fund niðri í herbergi með forsetum á þessu augnabliki. Það fer að verða vandlifað fyrir ræðumanninn a.m.k. í þessu samhengi. Ég held að það gangi tæplega upp að halda áfram fundi um dagskrármál þar sem ég á að vera frsm. minni hl. á sama tíma og ætlast er til að ég sé á samráðsfundi nm þinghaldið niðri í herbergi. Ég fer þá fram á að þessi tvö mál, 4. dagskrármálið og 2. dagskrármálið, verði ekki rædd á meðan ég þarf að vera fjarverandi á þessum samráðsfundi og alls ekki 4. dagskrármálið fyrr en nál. minni hl. er komið fram. Ég bendi á að umræða um 1. dagskrármálið stendur yfir og svo skjótt sem tilteknir stjórnarsinnar koma í húsið er hægt að halda henni áfram. Ég sætti mig að sjálfsögðu við að þeirri umræðu haldi áfram þó að ég sé fjarstaddur um sinn þar sem ég hef lokið minni þátttöku í þeirri umræðu.