30.12.1987
Neðri deild: 41. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3445 í B-deild Alþingistíðinda. (2427)

Tilhögun þingfundar

Forseti (Jón Kristjánsson):

Hvað varðar þingflokksfundi má segja að við séum hér þá daga sem eru ekki ætlaðir til þinghalds að venju þannig að við höfum gefið hlé fyrir þingflokksfundi ef þess hefur verið óskað. Þær óskir hafa ekki komið fram við okkur forseta í dag. Hins vegar, ef talið er nauðsynlegt að þingflokkar hittist núna, mun ég verða við því og gefa hálftíma hlé á þessum fundi þannig að þingflokkar geti hist og fresta þá fundi um hálftíma. — [Fundarhlé.]

Fundi er fram haldið í Nd. Alþingis. Varðandi þinghaldið hefur það verið rætt að halda áfram umræðum um þau mál sem á dagskrá væru og ljúka þeirri umræðu þannig að freista megi þess að þessi mál verði að lögum fyrir áramót af þeim ástæðum sent hafa verið raktar. Hvað sú umræða tekur langan tíma er ekki víst, en sýnt er að hún tekur langan tíma þannig að hér verður kvöldfundur í kvöld og má búast við löngum kvöldfundi eftir því sem umræður þróast um þessi mál. Þetta er það sem um málið er hægt að segja á þessari stundu, en það er stefnt að því að nota þann tíma sem er fyrir hendi til hins ýtrasta til að freista þess að ljúka málum. Hins vegar hefur ekkert verið afráðið um hvenær hætt verður og ekkert verið afráðið um lengd umræðna og munu þær að sjálfsögðu fara fram eftir því sem þingsköp kveða á um.