30.12.1987
Neðri deild: 41. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3448 í B-deild Alþingistíðinda. (2434)
196. mál, söluskattur
Frsm. minni hl. fjh.- og viðskn. (Steingrímur J. Sigfússon):
Herra forseti. Ég er kannski ofurlítið vanbúinn því að umræða hæfist um söluskatt vegna þess að við vorum að ræða vörugjald og síðan hafði ég frekar reiknað með því miðað við röð dagskrármála að böndin bærust næst að tollum, en út af fyrir sig er ég tilbúinn til að mæla fyrir nál, og geyma þá þær athugasemdir aðrar sem ég kynni að þurfa að koma að í þessu máli til síðari hluta umræðunnar.
Ég tel að hér sé í raun og veru á ferðinni langsamlega stærsta málið af þessum skattatillögum öllum í pólitísku samhengi séð, fyrst og fremst vegna þess að sú mikla skattheimta á matvæli og nauðsynjar, sem hér er lögð til, er tímamótaviðburður í sögu íslenska skattkerfisins og í sögu þjóðarinnar. Þetta er ekki bara tímamótaviðburður á Íslandi, herra forseti, heldur sýnist mér eftir nokkra athugun á þeim málum að þetta sé tímamótaviðburður í heiminum. Það sé tímamótaviðburður í henni veröld þegar sú þjóð sem býr við einhverja dýrustu matvöru heimsins ætlar að leggja ofan á hana alla saman 25% söluskatt. Ég hef farið yfir það, m.a. með því að kynna mér stöðu þessara mála í löndum Efnahags- og framfarastofnunarinnar eða OECD-löndunum, hvernig þessu er háttað hjá öllum þeim löndum og ég mun fara yfir það hér á eftir og leiða að því rök að það sem stendur til að gera á Íslandi með gildistöku þessa frv. er nánast einstakt í heiminum þannig að hæstv. fjmrh. er ekki lítill karl. Hann er ekki bara að slá algert Íslandsmet í skattheimtu og skapa tímamót í álögum á almenning. Hann er nánast að gerast heimsmeistari í skattlagningu á nauðþurftir eins og ég mun koma rækilegar að síðar.
Nál. minni hl. hefst á þeim orðum að minni hl. sé andvígur till. um matarskatt. Það er í rauninni kjarninn í afstöðu okkar til þessa frv. til l. um breytingu á lögum um söluskatt. Breytingarnar að öðru leyti eru léttvægar og skipta nánast ekki máli að slepptu því sem varðar skattlagningu á matvæli.
Minni hl. telur, eins og fram kemur í nál. á þskj. 463, að matarskatturinn komi verst við láglaunafólkið eins og margoft hefur verið sýnt fram á og ég tel ástæðu til að fara um það nánari orðum.
Forseti Alþýðusambands Íslands, sem mætt hefur á fundum fjh.- og viðskn. a.m.k. í tvígang til að ræða þessi skattamál, hefur leitt að því líkur að ef tekinn er sá hluti launafólks, til að mynda sá þriðjungur launafólks í landinu sem lægstar hefur tekjurnar, og það skoðað hvernig sá hópur fer út úr þessum breytingum komi í ljós, ekki það sem haldið hefur verið fram, að framfærsluvísitala eða framfærslukostnaður breytist ekki við þetta, heldur að hvað þennan hóp varðar muni það valda a.m.k. 3% hækkun framfærslukostnaðar. Að sjálfsögðu er rétt að hafa á þessu þá fyrirvara sem eru auðskiljanlegir í ljósi þess nauma tíma sem gefist hefur til að skoða þessa hluti og þeirrar óvissu sem er auðvitað um ýmsa þætti málsins. Það sem fyrst og fremst veldur þessari hækkun er það, sem öllum mönnum ætti að vera auðskilið, að menn þurfa að borða hver sem launin eru og eftir því sem þau eru lægri eru þessar brýnustu lífsnauðsynjar, þær sem koma fyrst í röðinni, þyngri og þyngri. Og ef við gefum okkur að að meðaltali, þó leiðinlegt sé að nota það orðalag, eyði þessi þriðjungur launamanna, sem lægstar hefur tekjurnar, ekki 20% tekna sinna til matarkaupa eins og vísitölufjölskyldan margfræga er talin gera heldur 30 eða 35%, þá komi þessi niðurstaða út. Þrátt fyrir að að meðtaltali breytist ekki framfærsluvísitalan hreyfist þetta á þennan veg gagnvart þessum hluta launafólks, fyrst og fremst vegna þess að matvaran vegur þar þyngra, en einnig er hugsanlegt og kæmi þá til viðbótar að láglaunafólkið kaupi minna hlutfallslega af þeim vörum sem stendur til að niðurgreiða og ekki eiga að hækka þannig að að hlutfalli til bitni hækkunin í matvöruflokknum þyngra eftir því sem launin eru lægri. Er þetta ekki ólíklegt m.a. vegna þess að dýr hluti matvörunnar eins og kjöt á ekki að hækka, en ýmislegt annað, sem kæmi þá kannski í staðinn fyrir kjöt hjá því fólki sem ekki hefur efni á eða aðstöðu til að hafa það á borðum oft og tíðum, væru vörur sem hækka. Þannig yrði neyslusamsetningin enn til þess að auka misrétti þessa hóps og ég tel það reyndar líklegt.
Herra forseti. Þetta er alveg yfirgengilegt. Hér er þingsalurinn að tæmast. Hvað eru margir orðnir eftir af stjórnarliðum, til að mynda þeim sem sæti eiga í fjh.- og viðskn., til að taka þátt í þessari umræðu? Að vísu er hér hæstv. fjmrh. og ég met það, en ég hefði talið jafnvel ástæðu til að hér væri hæstv. forsrh. vegna þeirra atriða sem ég ætla að fara að víkja að næst og eru sem sé hvernig þessar ráðstafanir óhjákvæmilega hljóta að hafa áhrif á þá kjarasamninga sem fyrir dyrum standa á vinnumarkaðnum. Vil ég þá enn vitna til forseta Alþýðusambands Íslands og ýmissa upplýsinga sem hann lagði fjh.- og viðskn. Nd. til. Ef virðulegur forseti vildi kanna hvort hæstv. forsrh. er farinn að hafa fataskipti til að undirbúa áramótahátíðahöld eða eitthvað annað eða hvort hann er enn í húsinu til að sinna þingstörfum. (SV: Hann er hér í húsinu.) Já, það gleður mig stórlega og væntanlega er hann þannig klæddur að hann getur mætt inn í þingsalinn.
Forseti Alþýðusambands Íslands upplýsti það og það kann að hafa komið fram áður að líklega yrði kaupmáttur lágmarkslauna 4–5% lægri í desember en hann verður að meðaltali á þessu ári. Svo mikið er fall kaupmáttarins á síðustu mánuðum ársins vegna verðbólgunnar að kaupmáttur lágmarkslaunanna verður að líkindum 4–5% lægri nú í desember en hann verður að meðaltali á öllu árinu. Og hvaða fólk erum við þar að tala um? Ætli það sé ekki drjúgur hluti þess hóps sem er í lægsta þriðjungi hvað tekjur snertir? Jú, auðvitað. Til viðbótar því að framfærslan hækkar hjá þessum hluta launamanna blasir sú staðreynd við að kaupmáttur launa þeirra er að hrapa í verðbólgunni og verður núna í desember 4–5% lægri að líkindum en hann verður að meðaltali á árinu. Það er því ekki lítil kjaraskerðing sem er þegar orðin og fyrir dyrum stendur hjá þessum hluta launamanna í landinu ef frv. verður að lögum og tekur gildi núna. Við þessar aðstæður eru nánast allir kjarasamningar lausir í landinu. Ég held að hæstv. ríkisstjórn ætti að líta í kringum sig og skoða þær aðstæður sem eru í þjóðfélaginu þegar hún er að láta matarskatta sína dynja yfir. Síðan er upplýst enn að kæmi til að mynda til 7% gengisfelling, sem heyrst hefur nefnd, þýði hún næstum samstundis um 3–4% hækkun framfærslunnar og kaupkröfur upp á 1–2% væntanlega í viðbót ef á að jafna þann mun upp. Það er alveg ljóst að þær hækkanir sem koma til framkvæmda með frv., fall kaupmáttarins og óhjákvæmilegar kaupkröfur í framhaldi af því, ef síðan við bætist gengisfelling, eru að vísa okkur inn í verðbólgu á næsta ári upp á 40–60%. Það er alveg ljóst. Þær kauphækkanir sem verða að koma til, eigi launafólk á Íslandi að þó ekki nema halda kaupmætti sínum, plús þær miklu verðhækkanir sem munu fylgja þessum frv., plús verðhækkanir á opinberri þjónustu á ýmsum sviðum, allt þetta leggur sig saman upp á verðbólguspár nálægt 40%. Komi til gengisfelling þar ofan á erum við að tala um verðbólguhraða af stærðargráðunni 40–60%. Við þessar aðstæður ætlar hæstv. ríkisstjórn að dengja sköttum á matvöru í landinu sem nema a.m.k. 7% hækkun þess liðar í framfærslu vísitölufjölskyldunnar. Það er mikið umhugsunarefni.
Það væri í framhaldinu gaman að spyrja hæstv. fjmrh. að því af því að nú er nýbúið að samþykkja fjárlög sem byggja á reiknitölu varðandi hækkanir milli ára af stærðargráðunni 17–18%, ef ég man rétt. Þar inni er liður sem heita niðurgreiðslur og er fært undir viðskrn., niðurgreiðslur á vöruverði. Þær eru einn stærsti liðurinn í því að bæta launafólki upp þá kjaraskerðingu sem það tekur á sig með þessum vöruverðshækkunum og skattapakka hæstv. ríkisstjórnar. Hvernig er sá liður verðtryggður ef hér verður verðbólga 40–60% á næsta ári? Hvað verður um verðgildi þeirrar krónutölu sem ráðstafa á í niðurgreiðslur? Skyldi það ekki geta farið svo að þegar á næsta ári snarrýrni þær hliðarráðstafanir sem hæstv. ríkisstjórn er að reyna að telja mönnum trú um að eigi að gera almenningi þessar breytingar allar kostnaðarlausar? Það er vert að hugleiða.
Síðan er það auðvitað svo að þessi meginréttlæting matarskattsins, að það eigi að grípa til ýmissa ráðstafana til hliðar, sem eigi að bæta mönnum það upp, byggir á sandi og meira en á sandi. Það er verra en svo. Það liggur fyrir og er yfirlýst stefna a.m.k. tveggja af þremur stjórnarflokkum að þeir telja niðurgreiðslur hið mesta skaðræði og vilja afnema þær eins fljótt og þeir geta. Hæstv. fjmrh. er alveg sérstakur baráttumaður og krossfari gegn niðurgreiðslum, búinn að vera það um árabil. Trúa hv. þm. stjórnarliðsins, sem væntanlega hafa gert sér að góðu að samþykkja þennan matarskatt á grundvelli þess að það ættu að koma til hliðarráðstafanir sem bættu hann upp, að við það verði staðið? Sýnast þeim líkur á því þegar m.a.s. hvað eftir annað hefur komið fram í ummælum hæstv. fjmrh. og fleiri aðila að menn reikni með að þetta verði tímabundið, tímabundnar ráðstafanir til að taka af almenningi í landinu sárasta höggið rétt á meðan þessar breytingar ganga yfir?
Herra forseti. Það er þessi hlið þessa skattlagningarmáls, burt séð frá öllu öðru, sem ég hefði talið ástæðu til að hæstv. forsrh. legði eyrun eftir ef hann á annað borð er enn við að reyna að uppfylla skyldur sínar sem slíkur, ef hann er enn í embættinu. Hann ætti að vera í þingdeildinni og fylgjast með umræðum um þetta mál. Ég hefði talið ástæðu til fyrir forsrh. sem er með ríkisstjórnarmálin í þeirri stöðu sem raun ber vitni, án þess að ég sé að gera lítið úr hæstv. fjmrh. Auðvitað fer hann með hluta þeirra mála sem tengjast kjaramálum, þ.e. samninga við opinbera starfsmenn. En það er þó einu sinni hæstv. forsrh. sem á að heita yfir efnahagsmálum í heild sinni og þetta heyrir auðvitað líka mikið undir hann. Það eru þær staðreyndir sem ég hef dregið fram um hvernig kaupmáttur lægstu launa er að lækka í landinu vegna dýrtíðarinnar, um þá hækkun sem sá hópur væntanlega verður sérstaklega fyrir við þessar breytingar og þá stöðu sem þetta hlýtur að setja kjarasamninga á næstu mánuðum í sem ég vil að menn hafi í huga þegar um þetta er fjallað. Það verður sérstök áhersla og krafa um og nauðsyn á því að hækka laun þeirra sem minnst bera úr býtum í ljósi þeirra ójafnaðaraðgerða sem hér á að fara að grípa til. Þetta er nefnilega ójafnaðarmennska, herra forseti, af verstu tegund og niðurlægjandi fyrir þetta orð, jafnaðarmennska, að nota það í þessu samhengi þó að forskeytinu sé bætt við. Þetta er mismununar- og óréttlætisstefna.
Herra forseti. Eins og ég nefndi áðan er óhjákvæmilegt að vekja athygli á þeirri staðreynd að verði frv. að lögum er verið að festa í sessi einhverja hæstu skattprósentu af þessu tagi sem þekkist í okkar heimshluta. Og hvað á ég við með því? Ég á við að það þekkist naumast í okkar heimshluta og út af fyrir sig hvergi í veröldinni að jafnháir óbeinir skattar séu lagðir á matvæli og hér stendur til að fara að gera. Það er nauðsynlegt að menn átti sig á því að það er lagður söluskattur á allar matvörur með frv., líka á mjólk, líka á kjöt, líka á fisk, allar tegundir matvæla. Meiningin er hins vegar að auka niðurgreiðslur á tilteknum flokkum þannig að það vegi hvað annað upp, en söluskatturinn er í raun lagður yfir þessar vörur vegna þess að þær eru ekki taldar upp í þeirri grein frv., 3. gr., þar sem listaðar eru þær vörutegundir og sú þjónusta sem er undanþegin söluskatti. Ég er ekki viss um að allir hafi áttað sig á þessu. M.a.s. bændur landsins margir hverjir virðast enn ekki hafa áttað sig á þeirri staðreynd að það á að leggja söluskatt á allar matvörur í landinu. (Gripið fram í: Kvótasöluna.) Og sjálfsagt á kvótasölu líka. Líklegt er að hún verði söluskattsskyld. Það er góð ábending hjá hv. þm. Ed. sem er farinn að taka þátt í umræðum.
Ein helsta röksemd stjórnarliða fyrir því að leggja söluskatt einnig á matvörur er sú að það sé nauðsynlegt einföldunar- og samræmingaratriði og að það sé undirbúningur undir virðisaukaskatt sem taka á upp á næsta ári. Það hefur einnig verið gefið í skyn, m.a. af hæstv. fjmrh., að með þessum breytingum séum við að fara í þá átt og breyta til samræmis við þróun mála í okkar nágrannalöndum og þá stöðu sem þar er á um þessi efni. Þetta er rangt. Þetta er ekki rétt. Staðreyndin er sú að verði þessar breytingar gerðar og lagafrv. samþykkt eru Íslendingar að halda einir út á nýja braut svo að segja. Þeir væru að fara fram úr frændþjóðum sínum á Norðurlöndum sem þó hafa lengst af staðið upp úr hvað varðar skattlagningu á þessu sviði. Þar er líklegra að þróunin verði til baka, til lægri óbeinna skatta og sérstaklega lægri skatta á matvöru til samræmis við það sem verður niðurstaðan á hinum stóra sameinaða evrópska markaði og þegar hafa verið teknar ákvarðanir um. Eins og fram hefur komið er nú stefnt að því innan Evrópubandalagsins að samræma skatta með því að virðisaukaskattur verði tvö þrep og annað þrepið, þ.e. lægra þrepið, á bilinu 4–9% og undir það falli vel að merkja allar helstu nauðsynjar, fyrst og fremst matvörur, þannig að á sama tíma og í Evrópubandalaginu er verið að taka ákvörðun sem mun í framtíðinni þýða skattlagninguna 4–6% á matvörur og aðrar nauðsynjar er hér verið að leggja 25% söluskatt á alla matvöru. Þetta er munurinn og þetta er rétt að menn hafi í huga.
Ég tel því, herra forseti, að það sé nánast sama hvernig er litið á þessa matarskatta. Þeir eigi sér engar raunverulegar málsbætur sem standast nánari skoðun málsins. Það eru engin skattaleg úrslitarök. Það hafa engin skattaleg úrslitarök verið færð fram fyrir því að hér sé ekki hægt að hafa kerfi óbeinnar skattheimtu án þess að í því felist skattlagning á matvæli.
Ég kalla það engin rök þó að menn séu hér með „frasa“ um samræmingu og einföldun án þess að rökstyðja þá nánar. Það geta allir talað í fyrirsögnum af því tagi. Auðvitað er endalaust hægt að skjóta sér á bak við slíkt, en ef menn skýra þá ekki út við hvað er átt verður það harla gagnslítið. Ég spyr: Úr því að flestallar aðrar þjóðir, t.a.m. flestallar þjóðirnar innan OECD, treysta sér til að innheimta óbeina skatta í þrepum eða með því að undanskilja matvöru eða með því að hafa sem sagt mjög lága skattheimtu á matvöru, hvers vegna geta þá Íslendingar ekki gert það? Er verið að segja það að við ráðum ekki við nema svo bláberlega einfalt skattkerfi að það sé alveg sérstakt í veröldinni? Treysta menn ekki framkvæmdaaðilum þessa máls? Treysta menn ekki fjmrn. og treysta menn ekki þeim aðilum sem eiga að hafa eftirlit með þessu til þess að framkvæma skattkerfi hér á Íslandi sem er eitthvað svipað því sem gerist í nálægum löndum? Það virðist ekki vera.
Ég ætla, herra forseti, að fara hérna ofurlítið yfir það hvernig þessu er háttað í löndum sem tilheyra OECD-stofnuninni eða skila skýrslum um sín mál þangað inn. Ég er með í höndunum vinnuskýrslu frá þeirri deild sem fjallar um efnahags- og tölfræðileg málefni, dagsetta í ágúst 1987, þar sem er að finna ágætis yfirlit um það hvernig skattheimta fer fram í öllum aðildarlöndum stofnunarinnar. Þessa skýrslu dró ég með töngum út úr hagdeild Seðlabankans eftir að hafa leitað upplýsinga af þessu tagi hér út um dal og hól í öllu kerfinu í marga daga, og gengið vægast sagt illa. Helstu upplýsingarnar sem ég hafði fram að því fengið voru frá Alþýðusambandi Íslands sem hefur gert dálítið af því að kynna sér þessi mál af augljósum hagsmunum sinna félagsmanna, og fyrst og fremst í raun til þess að afla sér gagna til að rökstyðja það að ekki sé nauðsynlegt að leggja 25% söluskatt á matvöru.
Og hvernig er þetta nú, herra forseti, í þessum löndum OECD- stofnunarinnar? Við skulum aðeins fara yfir það því að ég tel að það sé ástæða til þess að við skoðum þessar miklu breytingar sem hér er lagt til að gera á íslenska skattkerfinu í ljósi þess hvað mönnum hefur gefist vel og hvert hlutirnir stefna í öðrum löndum. Það er engin ástæða fyrir því, held ég, að íslenska skattkerfið þurfi að vera eitthvert alveg sérstakt úníkúm, alveg einstakt í heiminum og með öðrum hætti en nágrannaþjóðir okkar og þær þjóðir sem helst eru sambærilegar um lífskjör og aðstæður viðhafa.
Til þess að rifja það upp fyrir mönnum er best að byrja á Íslandi til að menn gleymi því ekki hvernig samsetning skatta er á Íslandi ef einhverjir skyldu hafa gert það. Þessi ágæta stutta úttekt OECD er jafngóð fyrir okkur held ég eins og aðra. Ég get því notast við það sem hér stendur.
Það er þannig að samanlögð skattheimta á Íslandi er samkvæmt þeim mælikvörðum sem þarna eru notaðir, „total tax revenues“, með leyfi forseta, upp á 18,5% af vergri landsframleiðslu á árinu 1986. Af þeirri tölu koma 87,3% frá óbeinum sköttum. 87,3% koma frá óbeinum sköttum. Hlutfall óbeinna skatta hér er, ef ekki hæsta, þá örugglega með því hæsta sem þekkist í heiminum. Mig rekur ekki minni til þess að hafa séð innan þessa hóps landa sambærilega tölu. Af þessum óbeinu sköttum skila söluskattarnir um helmingi en, vel að merkja, fyrir þær breytingar sem hér er verið að tala um, skila rúmum helmingi af þeim 87%, rúmum, sem óbeinu skattarnir leggja til á Íslandi, eða tæpum 44%. Og þetta er auðvitað sömuleiðis einhver hæsta tala sem finnst af þessu tagi. Nú er verið að breyta skatthlutföllunum þannig að lækka stórlega hlutfall tolla og vörugjalda og auka hlut söluskatts, þannig að þó að hlutfall óbeinna skatta í heildarskattheimtu landsmanna kunni að breytast lítið, reyndar fer það upp á við eins og margoft hefur verið sýnt fram á, mun hlutur söluskattsins eða arflaka hans stórhækka við þessar breytingar. Hér er því verið að tala um einhvern hæsta söluskatt að hlutfalli í tekjuöflun nokkurs ríkissjóðs í heiminum. Rétt, hæstv. fjmrh. kinkar kolli. Það er þessi hæsti söluskattur að hlutfalli sem á að leggjast út yfir allar matvörur, á einhverjar dýrustu matvörur sem finnast. Þessar staðreyndir, herra forseti, tel ég nauðsynlegt að draga fram um leið og ég mæli fyrir þessu nál. og þær eru að hluta til dregnar þar saman á tveimur blaðsíðum. Og mig langar til, til þess að rökstyðja mál mitt enn betur, að fara yfir það í eins stuttu máli og mér er unnt hvernig þessum málum er háttað hjá hinum einstöku aðildarlöndum innan OECD.
Í Bandaríkjum Norður-Ameríku er skattheimta upp á 29% af þjóðarframleiðslunni á árinu 1984. Þar vega skattar á vöru og þjónustu, þ.e. sá skattflokkur sem helst er sambærilegur við okkar söluskatt og áform um hann 18,2% af þessum hluta. Þar kemur að vísu ekki fram hver heildarskattheimta óbeinna skatta er, en það er alla vega ljóst að þar er hlutur söluskatts, eða vöruskatta, miklu, miklu minni en hér. Og það segir enn fremur að í skattakerfinu bandaríska séu skattar á vörur og þjónustu tiltölulega léttvægir í efnahagslegu samhengi. Ef mér leyfist að lesa þetta á enskri tungu er það svona, herra forseti: „relatively unimportant in the eeonomywide context“, sem sagt tiltölulega léttvægir.
Hvernig eru þessir skattar á vöru og þjónustu? Þeir eru þannig að í 45 ríkjum og í Colombíuhéraði eru söluskattar, RST-skattar, „Retailed Sales Taxes“, á bilinu 4,25% og upp í 8,25%. Það er sú skattprósenta sem þar er notuð, 4,25–8,25%. Ekki er það sambærilegt við 25% matarskatt, eða hvað? Ekki er verið að stefna til samræmis við það með því að leggja 25% skatt á matvælin? Nei. Hvernig er þetta í Japan? Í Japan er skattheimtan 27,4% af þjóðarframleiðslu. Þar vega skattar af vörum og þjónustu einungis 15,1% af þeirri heild. Sem sagt, mjög léttvægir. Svo segir áfram um japanska skattkerfið: Þar eru engir venjulegir neysluskattar en allfjölbreyttir skattar á vöru og þjónustu, bæði á ríkisgrundvelli og innan fylkja, — eða á staðbundnum vettvangi. Og enn segir um áform Japana í skattamálum: Ætlunin var að innleiða virðisaukaskatt sem yrði nálægt 5% á árinu 1988 til að koma í stað hinna mörgu óbeinu skatta og fjármagna þann hluta lækkunar á beinum sköttum sem til stóð að gera. Síðan segir: „However this proved very unpopular.“ Aftur á móti reyndist þetta mjög óvinsælt.
Japanar voru mjög óhressir með áform stjórnarinnar um að taka upp 5% virðisaukaskatt sem hefði náttúrlega lagst þá yfir matvöru líka. En Íslendingar eiga ekki að fá fimm heldur fimm sinnum fimm prósent ofan á sínar matvörur.
Hvernig er þetta í Vestur-Þýskalandi? Þar vegur heildarskattheimtan líklega nálægt 38% og um 25% koma í gegnum skattlagningu á vöru og þjónustu. Þar segir enn fremur: „Mikilvægasti skatturinn á vörur og þjónustu er virðisaukaskattur, „valuated tax“, sem er í tveimur þrepum upp á 14% og 7% og þau 7% eru fyrst og fremst notuð við skattlagningu á matvælum. Í Vestur-Þýskalandi eru þetta sem sagt 7% sem hér eiga að verða 25%.
Hvernig er þetta í Frakklandi sem er nú reyndar föðurland virðisaukaskattsins? Þar er þetta þannig að heildarskattheimtan er nálægt 45% af þjóðarframleiðslu, og tæp 30% koma frá skattlagningu á vörur og þjónustu. Þar er síðan að finna mjög fjölbreyttan skattstiga, mjög skrautlegan skattstiga í virðisaukaskatti þar sem svona meðaltalsprósentan er nálægt 18,5% en mörg þrep finnast í skattinum allt frá 5,5% og upp í 33,5%. Tilhneigingin er sem sagt höfð á þá lund að skattleggja upp á við eða hækka skattana eftir því sem vara er flokkuð sem meiri lúxusvara. Og eins og venjulega er matvaran í lægsta skattþrepinu eða 5,5%.
Ekki er það til samræmis við skatta í Frakklandi, ekki í Þýskalandi, ekki í Japan, ekki í Bandaríkjunum, að leggja 25% söluskatt á mat. Öll hafa þessi lönd miklu, miklu lægri og margfalt lægri skattlagningu á þessu sviði.
Hvernig er þetta í Bretlandi? Þar er heildarskatttekja til opinberra aðila um 38,6% af þjóðarframleiðslu á árinu 1985 og um 30% rúm koma frá sköttum á vörur og þjónustu. Þar er mikilvægasta neysluskattlagningin í formi virðisaukaskatts þar sem almenna skattþrepið er 15% og nær það yfir rétt rúmlega helming þeirra vöruflokka og þeirrar þjónustu sem finnst í landinu. En þar er um umtalsverðar undanþágur frá virðisaukaskattinum að ræða, bæði til lækkunar og núllunar, þ.e. hluti varnings er með öllu virðisaukaskattslaus, fyrst og fremst matvælin, fyrst og fremst matvælin. Ekki er það til samræmis við óbeina skatta í Stóra-Bretlandi þar sem matvara er virðisaukaskattslaus, núll, að leggja hér á 25% matarskatt?
Hvernig er þetta á Ítalíu? Þar er heildarskatttekja opinberra aðila um 41% af þjóðarframleiðslu. Og skattar á vöru og þjónustu nálægt 26%. Og svo segir, og ég er að þýða þetta beint, herra forseti, þannig að mér fyrirgefst vonandi þó að mig reki pínulítið í vörðurnar: Virðisaukaskatturinn leggur til um 60% af sköttum á vöru og þjónustu og er lagður á með skattþrepum allt frá 2% og upp í 38% — tvö prósentin að sjálfsögðu notuð á matvöruna. Stór hluti matvörunnar á Ítalíu ber einungis 2% virðisaukaskatt á sama tíma og mestu lúxusvörurnar bera 38% virðisaukaskatt. Þannig er þetta hjá Ítölum. Ekki er það til samræmis við skattakerfið á Ítalíu að leggja 25% flatan söluskatt á matvöru. Það er nú eitthvað annað.
Hvernig er þetta í Kanada? Þar er heildarskatttekjan um 34% og um 30% koma frá sköttum á vöru og þjónustu. Svo segir enn fremur um skattakerfið í Kanada í þessari ágætu vinnuskýrslu frá OECD, sem Seðlabankinn var svo vænn að senda mér og er nú einhver mesti greiði sem sú stofnun hefur gert mér, kannski sá eini, að óbeinir skattar eru teknir á „provincial level“, þ.e. teknir í héruðum sem söluskattur, RST-skattur. Venjulega er þó matvara undanþegin. Með þínu leyfi, forseti: „Usually excluding food and some others items.“ Þannig er þetta í Kanada. Virðisaukaskattur er tekinn í fylkjunum. Yfirleitt er matvara og einhverjar aðrar nauðsynjar undanþegnar. Er það þá til samræmis við skattkerfið í Kanada að leggja hér 25% flatan skatt á matvöru? Nei, það er ekki tilfellið. Þar er einmitt matvaran undanþegin virðisaukaskatti í stórum stíl.
Hvernig er þetta í Ástralíu? Þar var heildarskatttekja nálægt 31% á árinu 1984 og þar komu 32% af þeirri tölu frá sköttum á vöru og þjónustu. Þar eru skattar á vöru og þjónustu á bilinu 10–30% og matvaran auðvitað lægst, auðvitað lægst, 10% á sama tíma og aðrar vörur liggja á bilinu þaðan frá og allt upp í 30%.
Í Austurríki er skatttekja há, nálgast það sem er á Norðurlöndunum, 42,3% af þjóðarframleiðslu. Þar koma um 32% frá sköttum á vöru og þjónustu. Og þar er skatttekjan, óbeina skatttekjan, þ.e. skattar á vörur og þjónustu í formi virðisaukaskatts, með frekar fáum undanþágum en þó eru þær til og snerta fyrst og fremst matvöru — þar er meðaltalsprósentan nálægt 20 með háþrepi upp á 32% og lágþrepi upp á 10% og auðvitað er 10%-þrepið aðallega notað til þess að skattleggja matvöru. Lægsta álagningin er á matvöru. Þannig er þetta í Austurríki. Ekki er það til samræmis við skattkerfið í Austurríki að leggja hér á 25% flatan skatt yfir matvæli. Nei. Þeir hafa þar allt annan hátt á.
Hvernig er þetta í Belgíu? Þar er heildarskatttekjan miðað við þjóðartekjur há, 46,7% og skatttekja af vörum og þjónustu er þar af um 25%. Aðalskatturinn á vörur og þjónustu er virðisaukaskattur og þar er um sex mismunandi þrep að ræða frá 1% og upp í 33%, lægstu þrepin, eina prósentið, og nálæg þrep fyrst og fremst notuð til að skattleggja matvörur. Og þá sjá menn að sjálfsögðu að þessu eina prósenti er fyrst og fremst haldið inni af bókhaldsástæðum í skattinum til að varan sé virðisaukaskattsskyld og færð sem slík en auðvitað munar ekki um 1% álagningu á vöruna. Ekki er það til samræmis við skattkerfið í Belgíu að leggja 25% flatan söluskatt fyrir alla matvöru þar sem trúlega stór hluti hennar er skattlagður upp á 1%.
Hvernig er þetta í Danmörku? Þar er heildarskatttekja mjög há eins og við vitum, 49,4%, og þar af koma 34,5% frá sköttum á vöru og þjónustu. Jafnvel þar er þó hlutfall vöruskatta mun lægra en á Íslandi. Og þar er notast við eitt skattþrep upp á 22% í virðisaukaskatti með mjög fáum undanþágum. Það er þó auðvitað helst Danmörk af þessum ríkjum sem hægt væri að líkja þessum fyrirætlunum hæstv. fjmrh. við en, vel að merkja, Danir undirbúa nú það vegna aðildar sinnar að EBE að lækka virðisaukaskattinn og þá alveg sérstaklega á matvörunni vegna þess að þeir þurfa að samræma sitt skattkerfi því sem er innan Evrópubandalagsins.
Hvernig er þetta í Finnlandi hjá frændum okkar þar? Þar er heildarskatttekja einna lægst, ef ekki lægst, á Norðurlöndunum, fyrir utan Ísland, 37,1% af þjóðarframleiðslu. Af óbeinu sköttunum er virðisaukaskattur upp á 16% mikilvægastur en er einungis lagður á hluta af vörum og þjónustu, undanþegnar eru til að mynda matvörur í stórum stíl. Ekki er þetta til samræmis við skattkerfið í Finnlandi. Það er annar háttur hafður á þar.
Grikkland, hvernig er það? Þar er heildarskatttekjan 35% af þjóðarframleiðslu árið 1984 og koma þar af um 43% af sköttum á vöru og þjónustu. Það er þá helst í Grikklandi sem er hægt að finna sambærilegt hlutfall söluskatts eða vöruskatta við það sem var á Íslandi áður en þessar kerfisbreytingar eiga sér stað.
Og hvernig er virðisaukaskatturinn byggður upp í Grikklandi? Hann er þannig byggður upp að hann er í stigum á bilinu 6, 18 og 36% og auðvitað matvara fyrst og fremst í lægsta þrepinu, 6%.
Næst á eftir Grikklandi í stafrófinu yfir OECD-löndin kemur Ísland og ég er þegar búinn að gera grein fyrir því hvernig þessum málum er þar háttað og menn vita það væntanlega af umfjöllun undanfarinna daga og hafa kannski haft um það góða vitneskju hvort sem var.
Hvað á þá að segja um Írland? Þar er heildarskatttekjan 38,4% af þjóðarframleiðslu og koma 44,4% frá sköttum á vöru og þjónustu, eða mjög sambærilegt hlutfall við það sem var á Íslandi áður en söluskattsbreytingar hæstv. fjmrh. hófust.
Ég vek athygli manna á því aftur að skýrslan er dagsett í ágúst og er væntanlega samin þá á mánuðunum fyrir þann tíma, áður en hæstv. fjmrh. hóf að leggja söluskatt á hluta af matvöru. Og Írar hafa þetta þannig að aðalskatturinn er virðisaukaskattur með meðaltalsskattálagningu upp á nálægt 25% en þrep, 10%-þrep og 0%-þrep, sem er matvara, 0% matvara. Þetta er því eins hjá frændum okkar Írum sem eru náskyldir a.m.k. sumum okkar að þar er virðisaukaskatturinn í þessum þrepum og 0 á matvöru, eins og í Kanada og víða, víða annars staðar. Er það þá til samræmis við skattkerfið í Írlandi að leggja 25% flatan söluskatt á alla matvöru? Nei. Nei. Það kemur sem sagt í ljós þegar að er gáð að það er ekki.
Í Lúxemborg er þetta þannig að . . . (Gripið fram í.) Ég treysti mér ekki til að kveða upp úr um það. Í Lúxemborg er þetta þannig að heildarskatttekja er 41,4% af þjóðarframleiðslu. Þar koma um 24% frá sköttum á vöru og þjónustu. Óbeinir skattar: þar er fyrirferðarmestur virðisaukaskattur með aðalþrep upp á 10% en lægri þrep upp á 5% og 2% á matvöru, orku og ýmsar persónulegar þarfir og lyf og fleira, þannig að í Lúxemborg, þangað sem Flugleiðir fljúga nú, er skattlagningin svona, virðisaukaskattur upp á 10% en matvara, lyf, orka til húshitunar og annað slíkt er skattlagt upp á ýmist 5% eða 2%. Ekki er það til samræmis við skattkerfið í Lúxemborg að leggja 25% flatan söluskatt á alla matvöru. Það er alveg ljóst þegar að því er gáð.
Í Hollandi er heildarskatttekja upp á tæp 45% af þjóðarframleiðslu árið 1985. Þar af koma 25,7% frá sköttum á vöru og þjónustu. Og hvernig er óbeina skatttekjan í Hollandi? Hún er þannig að aðalskattur á vöru og þjónustu er virðisaukaskattur sem er lagður á tiltölulega breiðan grunn með nánast meðaltali eða aðalskattþrepi nálægt 20% en aukaþrepi upp á 6% á nauðsynjar og með undanþágu fyrir ýmsa þjónustu. Sem sagt, matvaran, sem hlýtur að flokkast undir nauðsynjar í þessu eins og annars staðar í heiminum hjá þeim Hollendingum, er skattlögð upp á 6%, aðrar vörur upp á 20. Ekki er það þá til samræmis við Hollendinga að leggja hér 25% skatt á matvæli.
Hvernig er þetta hjá þeim andfætlingum okkar á Nýja-Sjálandi, í Kiwilandi, sem ræðumaður þekkir býsna vel og dvaldist í einu sinni svo árum skipti. Það er þannig að skatttekja hjá þeim frændum mínum þarna niður frá var upp á 30,9% á árinu 1984 af þjóðarframleiðslu og þar af komu 27,2% frá ýmsum óbeinum sköttum, þ.e. allir óbeinir skattar samanlagt í Nýja-Sjálandi eru ekki nema 27,2% af heildarsköttum, þar með taldir skattar á hraðbrautir og brúartollar og ýmislegt fleira. Þar er því auðvitað um miklu lægra hlutfall að ræða en hjá okkur.
Hvernig er óbeina skatttekjan? Í hvaða formi er hún? Hún er fyrst og fremst í formi söluskatts sem lagður er á heildsöluviðskipti eða viðskipti á heildsölustigi og er á bilinu 10–50% og enn sem fyrr er auðvitað matvaran, eins og þeir segja, „seleeted goods“, ýmsar vörur, aðallega matvara, í lægsta þrepinu eða á lægstu þrepunum. Þannig að á sama tíma og þeir Kiwimenn leggja nálægt 10% skatt eða rúmlega það kannski á matvöruna og ýmsar helstu nauðsynjar fara þeir alveg upp í 50% á hinum endanum með skatt á ýmsar aðrar vörur. Ekki er því einn flatur skattur upp á 25% og þar með talið yfir alla matvöru til samræmis við skattakerfi þeirra ágætu manna sem byggja þessar eyjar þarna langt niður á hinum enda hnattarins.
Í Noregi er þetta nokkuð þekkt. Þar er skatttekja 47,8% af þjóðarframleiðslu árið 1985 og skattar á vöru og þjónustu skila 37,6%. Þar er langstærsti óbeini skatturinn virðisaukaskattur upp á 20% sem er á mjög breiðum grunni, matvara þar inn undir og 10% á flestar fjárfestingar. Það er þá enn sem fyrr helst hægt að horfa til Norðurlandanna, Noregs til að mynda, um samanburð við það sem hér á að fara að gera. Þó munar þarna orðið 5% á því sem virðisaukaskatturinn er þar og því sem hér er áformað að taka upp á matvöru.
Enn minni ég á það að bæði kaupmáttur launa er þar hærri og matvara mun ódýrari og það er auðvitað nauðsynlegt að hafa í huga.
Í Portúgal er heildarskatttekja 31,5% af þjóðarframleiðslu árið 1985 og óbeinir skattar leggja þar til um 42,6% af því hlutfalli. Hvernig er óbeinu skatttekjunni háttað í Portúgal? Þar er auðvitað mikilvægasti skatturinn virðisaukaskattur eins og í öðrum sambærilegum löndum og hann er í þrepum frá 8%, um 14% og upp í 30% og leggst á um helming heildarviðskipta í landinu, afgangurinn þá væntanlega undanþeginn, og enn sem fyrr er að sjálfsögðu aðallega matvaran í lægsta skattþrepinu, 8%. Það er sem sagt skatturinn á matvöruna í Portúgal þannig að ekki eru þessar breytingar á Íslandi til samræmis við skattkerfið í Portúgal, óbeinu skattatekjuna í Portúgal. Það hefur nú komið í ljós við athugun málsins.
Á Spáni, hvernig er þetta þar? Þar er heildarskatttekja 28,5% af þjóðarframleiðslu og þar af koma 26,4% frá sköttum á vöru og þjónustu. Hvernig er þeirri skatttekju háttað á Spáni? Þar er auðvitað aðalskattstofninn virðisaukaskattur með meðalþrep, almennt þrep, upp á 12% en nauðsynjar — eða eins og segir í enska textanum, með leyfi þínu, forseti: „and necessities and luxuries rates of 6 and 33% respectively“, sem sagt, nauðsynjar, matvara og annað slíkt á 6% og lúxusvörur á 33%. Þannig er þetta á Spáni. Er þetta til samræmis við skattkerfið á Spáni, hv. fjh.- og viðskiptanefndarmaður Matthías Bjarnason? Nei, það er ekki. Þeir skattleggja matvöruna á 6% og lúxusvörurnar á 33%.
Hvernig er þetta í Svíþjóð þar sem heildarskatttekja er ein sú hæsta í heimi, yfir 50% af þjóðarframleiðslu á árinu 1985? Þar vega þó neysluskattar ekki nema 26,3% í þeirri köku. Þar eru sem sagt aðrir skattar, eins og reyndar víðast hvar annars staðar í heiminum, miklu þyngri á metunum en hér hjá okkur. Þar er um að ræða tvö þrep í skatti, í virðisaukaskatti upp á 23,46% og lægra þrep upp á 12,87% sem aðallega er á ýmiss konar þjónustu, svo sem viðskipti, veitingahús o.fl. Þar er væntanlega fundið hæsta skattþrepið sem enn hefur komið fram af þessu tagi hjá þeim frændum okkar Svíum og er næst því að nálgast heimsmetstilraun hæstv. fjmrh. Þó skakkar þar nokkru og Svíar hafa nýlega lýst því yfir að þeir séu tilbúnir til að breyta sínu skattkerfi og ýmsu öðru í sínu efnahagslífi til að aðlaga sig væntanlegum breytingum í hinum stóra sameinaða evrópska markaði sem væntanlega þýðir breytingar á þessu líka.
Hvernig er þetta í Sviss, því mektarríki sem er nú eitt grónasta og stöðugasta þjóðfélag Evrópu og hefur sloppið við styrjaldir og ýmsa aðra óáran vegna sinnar hlutleysisstefnu og friðsamlegrar sambúðar við aðrar þjóðir? Það er þannig að heildarskatttekja er um 32% af þjóðarframleiðslu og þar af koma um 19% frá vörum og þjónustu. Og hvernig er svo óbeinu skatttekjunni háttað í Sviss? Þar er um að ræða viðskiptaskatt sem ég kann nú ekki almennilega að nefna á íslensku sem er sem sagt ákveðin tegund af söluskatti eða virðisaukaskatti, svonefndur „turnover“-skattur og skattprósentan er 6% á smásölustigi og 9% á heildsölustigi og er eingöngu lagður á vörur og með mörgum undantekningum, svo sem mat og eldsneyti. Þó að söluskatturinn eða vöruskatturinn, neysluskatturinn, hjá þeim Svisslendingum sé ekki nema 6% á smásölustigi og 9% á heildsölustigi er samt undanþegin matvaran og eldsneytið. Ekki eru því þessar breytingar hér til samræmis við skattkerfið í Sviss þar sem matvara er undanþegin 6% og 9% söluskatti.
Og nú er ég kominn býsna aftarlega í stafrófið, herra forseti, og styttist lesturinn því að Tyrkland er næst á dagskrá, þessi vinaþjóð okkar í NATO eins og sumir segja, ha, það merka og þróaða ríki Tyrkland þar sem lýðræðisástin hefur lengi átt traustan bólstað í hvers manns hjarta og þjóðin enda verið heiðursfélagi í hópi vestrænna lýðræðisþjóða, ekki satt? Jú, jú, jú. (Gripið fram í.) Herra forseti, ræðumaður verður að viðurkenna að hann verður fyrir nokkrum truflunum úr hliðarsal. (Forseti: Ég áminni enn hv. þingdeildarmenn um það að vera ekki svo skemmtilegir að þeir trufli ræðumenn.) Já, ég ætla að reyna að koma mér að því, herra forseti, að ljúka þessari umfjöllun um Tyrkland og þetta er þannig: (Gripið fram í.) Já, skattkerfi þeirra ágætu manna er þannig að þeir taka um 15,6% af þjóðarframleiðslunni á hverju ári í formi skatta. Þar af koma 44,4% frá sköttum á vöru og þjónustu. Hvernig er svo skattheimtunni háttað? Hún er þannig að mikilvægasti óbeini skatturinn er virðisaukaskattur með almennt þrep upp á 12% og lægri þrep upp á 5% og 1% á ýmsum nauðsynjum og matur er undanþeginn, þ.e. lagður er virðisaukaskattur upp á 0% á mat í Tyrklandi. Þannig er það nú. Þetta er sett svona fram vegna þess að matvaran er færð sem slík undir virðisaukaskattskerfið en skattprósentan er núll.
Þá hef ég farið yfir þessar merku þjóðir, herra forseti, sem teljast til og skila inn gögnum til OECD-stofnunarinnar. Engin einasta þeirra hefur skatta á matvöru af þeirri stærðargráðu sem hér á að leggja til, engin. Langflestar þeirra eru annaðhvort með engan skatt á matvöru eða mjög lágan skatt. Hvað er þá orðið um samræmingarrökin? Hver eru þau? Var kannski ekki meiningin að íslenska þjóðin ætti að vita af því áður en matarskatturinn yrði afgreiddur að það stendur til að slá heimsmet í skattheimtu á matvæli með þessu frv. verði það að lögum? Hæstv. fjmrh. ætlar sér ekkert minna með stuðningi Framsfl. og annarra góðra manna hér en að slá heimsmet í skattheimtu því að það liggur auðvitað alveg á borðinu að úr því að ekki finnast skattaálögur af þessu tagi í hópi mestu velmegunarþjóðanna eru þær ekki annars staðar.
Eins og menn hafa e.t.v. tekið eftir af þessum lestri eru þær þjóðir, sem þó hafa lægsta framleiðslu og lökust lífskjör en teljast til OECD, yfirleitt með lægstu skattana líka. Það er nú einu sinni þannig að það eru mestu velmegunarríkin sem eru með umfangsmesta velferðarkerfið sem leggja á hæstu skattana. Þeim mun lakari sem lífskjörin eru, þeim mun lægri er yfirleitt skattlagningin, sérstaklega á nauðsynjarnar, af þeirri eðlilegu og einföldu ástæðu að fólkið þarf að geta dregið fram lífið líka í þeim löndum. Nú er staðan þannig á Íslandi að hér er kaupmáttur með því lægra sem þekkist í OECD-löndunum, matvaran hins vegar dýrari en nokkurs staðar annars staðar. Meira að segja í Noregi þar sem lengi hefur nú þótt dýrt í soðið, a.m.k. í pottinn, er matvaran ódýrari. Það liggur fyrir. Ég hef spurst fyrir um það hjá Neytendasamtökunum íslensku og spurði einnig fulltrúa Alþýðusambandsins sem kom á fund nefndarinnar um þessa hluti. Þeir höfðu ekki í höndunum tölur yfir það en töldu sig geta fullyrt að ekki fyndust hliðstæð dæmi við verð á matvörum hér, þannig, herra forseti, að hafi mönnum þótt það eitthvað ástæðulaust að fara aðeins yfir það hvernig þessum málum er háttað hjá okkar nágrannaþjóðum þykist ég geta og þegar hafa sýnt fram á að svo var ekki. Ég tel einmitt að það sé ástæða til þess að íslenska þjóðin viti að það á að fara að slá á henni heimsmet með skattlagningu á matvæli.
Hvar er nú hæstv. fjmrh.? Og allt í einu er hv. formaður fjh.- og viðskn. gufaður upp. Óskapleg óeira er þetta í blessuðum mönnunum.
Ég hef það einhvern veginn á tilfinningunni, herra forseti, að menn hafi ímyndað sér að sljóleiki þjóðarinnar og kannski líka stjórnarandstöðunnar væri slíkur að matarskattarnir mundu rúlla í gegnum þingið án þess að menn tækju eftir því hvað væri að gerast, án þess að menn áttuðu sig almennilega á því að það ætti að fara að slá heimsmet í skattlagningu á brýnustu lífsnauðsynjar almennings. Á sama tíma fer kaupmáttur lækkandi og verðbólgan æðir upp. Það skal a.m.k. vera alveg ljóst, herra forseti og hæstv. utanrrh., að sá sem hér stendur og talar mun gera sitt til þess að íslenska þjóðin viti það, í öllu falli áður en þetta verður að lögum, hvað hér stendur til að gera. Ég tel alveg sérstaka ástæðu til að ræða þetta við formann Framsfl., til að mynda hvernig þetta kemur til með að reynast íslenskum landbúnaði í reynd þegar til langs tíma er litið. Telur hæstv. utanrrh. og formaður Framsfl. að þetta sé greiði við bændur landsins og landbúnaðinn, matvælaframleiðsluna í landinu og lífskjör þjóðarinnar, að stuðla að því að leggja 25% söluskatt á alla matvöru sem, þegar niðurgreiðslum og öðrum hliðarráðstöfunum hefur svo verið kippt til baka, situr auðvitað eftir eins og allir aðrir skattstofnar sem settir eru á? Það er alveg sama hvernig menn hatast gegn skattstofnum þó þeir séu í stjórnarandstöðu, eins og íhaldið gerði lengi gegn skatti á skrifstofu- og verslunarhúsnæði, um leið og menn komast sjálfir í stjórn verður það þeim kærast sem þeir áður börðust mest gegn og þeir framlengja það og viðhalda því og hækka það jafnvel ár eftir ár. Þannig að auðvitað verður söluskattur af matvælum aldrei tekinn af, a.m.k. ekki á meðan þessir menn ráða ríkjum, ef hann kemst á vöruna á annað borð. Það mun þá þurfa kaflaskipti í stjórnmálum á Íslandi og algjör stjórnarskipti ef það á að takast að koma honum aftur af.
Hitt er miklu líklegra, því miður, sú framtíðarsýn er því miður miklu raunhæfari að reikna með því að á næstu árum hrynji niðurgreiðslur að verðgildi og jafnvel ýmsar aðrar stoðaðgerðir í tengslum við þessar breytingar þannig að innan tiltölulega fárra ára sitji almenningur uppi með 25% skatt á allar sínar lífsnauðsynjar, óbættur hjá garði, því miður. Ég held að íslenska skattkerfið, sem lengi hefur verið skrýtið og sérstakt með þjóðunum, verði að slíku undrabarni, slíku viðundri er líklega betra orð, slíku viðundri í hópi skattkerfa heimsins ef þessar breytingar verða, þar sem óbeinir skattar verða kannski yfir 90% allrar skatttekju í landinu, þar af söluskattur e.t.v. yfir 50% eða virðisaukaskattur, og þegar það bætist svo við að þessi skattur á að leggjast yfir allar matvörur og allar lífsnauðsynjar, að engu tali tekur.
Ég verð að segja alveg eins og er að ég er algjörlega forundrandi á því hvað hv. þm. stjórnarliðsins — nudda þeir nú stírur úr augum sér, sumir hverjir — hafa látið bjóða sér þegar þeir í sínum þingflokkum, eins og mér skilst að gerst hafi, samþykktu það að þetta yrði lagt fram sem stjfrv. Ég man ekki eftir því að einn einasti þm. stjórnarliðsins af því að ég tel hv. þm. Karvel Pálmason ekki þar með. (ÓÞÞ: Ha?) Ég tel hann ekki stuðningsmann ríkisstjórnarinnar, alla vega ekki í þessu máli og að honum slepptum man ég ekki eftir því að einn einasti þm. stjórnarliðsins hafi mótmælt þessu, hafi haft fyrirvara á þegar þetta var lagt fram sem stjfrv.
Ég endurtek það, herra forseti, að ég held að það sé ekki nóg að horfa bara á þær breytingar sem hér eru að verða, einangrað. Við eigum að skoða íslenska skattkerfið í heild vegna þess að það er verið að snúa því öllu á haus, tollum, vörugjöldum, söluskatti, tekjuskatti, bæði á einstaklinga og fyrirtæki, og fleira kemur e.t.v. í framhaldi. Við skulum því horfa aðeins á þessi hlutföll. Í hvers konar feni erum við að festast með þessa geysilega háu prósentu óbeinna neysluskatta, þar af líka söluskatt á matvæli? Þegar það kemur svo í ljós eftir skoðun, herra forseti, eins og ég hef hér framkvæmt, að þetta er hvergi nokkurs staðar annars staðar svona í heiminum, allar aðrar sambærilegar þjóðir eru með annan hátt á og langflestar hafa allt, allt annað fyrirkomulag á þessum málum, undanskilja eða skattleggja mjög vægilega brýnustu lífsnauðsynjarnar, hlýtur maður auðvitað að spyrja hvaða snillingar eiginlega voru það uppi á Íslandi sem fengu þessa hugmynd? Hvar finnast slík séní á Íslandi að láta sér detta þetta í hug að ætla að gera þessar breytingar hér og gera okkur að slíkum viðundrum með þessum hætti sem raun ber vitni? Gera menn sér ekki grein fyrir því hvað Ísland er sérstakt þjóðfélag hvað það varðar að matvaran og lífsnauðsynjarnar vega svona þungt eins og raun ber vitni? Það virðist ekki vera. Menn virðast bara ekki hafa nokkrar tilfinningar fyrir því hvernig þessum hlutum er hér fyrir komið.
Herra forseti. Ég hef vissulega eytt nokkru máli í það að ræða sérstaklega þessa skattlagningu á matvörur enda, eins og ég sagði, frv. að öðru leyti næsta ómerkilegt. Í því felst í raun og veru nánast engin breyting að mínu mati nema þessi að leggja fullan söluskatt á allar matvörur. Það eru stórtíðindin, en það eru líka stórtíðindi sem eru að gerast eða mundu gerast ef þetta yrði að lögum. Það má sleppa því í raun og veru mín vegna að ræða aðra hluta þessa frv. Ég tel að þeir skipti nánast ekki máli í samanburði við þetta.
Það væri auðvitað hægt að ræða ýmislegt, til að mynda það hvers vegna á að fara að taka söluskatt af aðgöngumiðum að íslenskum kvikmyndum? Og hvers vegna á að fara að taka söluskatt af aðgöngumiðum að útisamkomum og ýmislegt slíkt? En mér finnst það léttvæg mál, svo léttvæg mál að þó að ég gæti út af fyrir sig við aðrar og betri aðstæður vel rætt þau og lagt mitt af mörkum til þess að reyna að finna þar sanngjarna niðurstöðu einnig held ég að minni hagsmunir víki fyrir meiri og það er langbrýnast að gera mönnum grein fyrir því hvað er að gerast í sambandi við þessa fyrirhuguðu skattlagningu á matvöru. Það er í raun og veru stóra verkefnið ef hægt væri að kveikja einhverja týru í sálarkirnum hv. stjórnarþm. sem létu sig hafa það möglunarlaust að samþykkja að þetta yrði lagt fram sem stjfrv. Það eru regintíðindi og ég veit, þó að það sé auðvitað dapurlegt í sjálfu sér, í dapurlegu samhengi, að verði þetta að lögum með sérstökum stuðningi og fyrir tilstuðlan hv. landsbyggðarþm. stjórnarliðsins, til að mynda Framsfl., verður manni það aðhlátursefni í framtíðinni ef þeir menn ætla að láta taka sig alvarlega um málefni t.d. íslensks landbúnaðar og matvælaiðnaðar eftir slíka gjörð. Eftir það afrek, ef af verður, að koma 25% söluskatti yfir alla innlendu matvælaframleiðsluna verður það varla annað en aðhlátursefni ef þeir menn ætla að fara að tala um kjör landbúnaðar eða aðstöðu hans í framtíðinni.
Herra forseti. Rök meiri hlutans fyrir þessu frv. eru sögð fyrst og fremst þau að með því náist fram skilvirkni í skattakerfinu, með því náist fram réttlæti, það er sérstakt réttlætismál — það er tíundað sem rök fyrir þessari skattlagningu að það náist fram réttlæti — og í þriðja lagi er það einföldunin. Það er einföldunarþráin sem við urðum sammála um að kalla svo, ég og hæstv. viðskrh. hérna á dögunum, að það væri fallegra orð að kalla þetta einföldunarþrá en einföldunarþráhyggju. Ég get fallist á það hjá hæstv. viðskrh. að það sé málfarslega réttara að tala um einföldunarþrá. En undir því yfirskini, liggur mér við að segja, er sem sagt verið að leiða menn út í þessar ógöngur, fremja það sem ég get varla kallað annað en óhæfu. Það er djúp pólitísk sannfæring mín, herra forseti, að verði þetta gert sé það pólitískt óhappaverk af þeirri stærðargráðu að það þurfi jafnvel áratugi aftur til að finna sambærilegar aðgerðir, að slepptu kannski því sem mætti segja að jafnist á við eða nálgist þetta í stærð sem er vaxtabrjálæðisstefna hæstv. núv. og hæstv. fyrrv. ríkisstjórnar, þær geysilegu ógöngur sem þær hafa leitt auðvitað yfir þjóðina með sínum vitleysisgangi í peningamálum og vaxtamálum. Þó held ég að þessi aðgerð, ef framkvæmd yrði, mundi hafa verri og djúpstæðari áhrif á lífskjör almennings og meiri pólitíska þýðingu í reynd þegar til langs tíma yrði litið. Vegna hvers? Vegna þess að með þessu er auðvitað verið að færa skattbyrðina í landinu í enn þá hrikalegri mæli en áður hefur verið yfir á herðar almennings, yfir á herðar hins almenna launamanns. Og þeir sem hagnast í þjóðfélaginu, hvort sem það eru einstaklingar eða fyrirtæki, njóta auðvitað þess ef bein skattheimta lækkar á móti. Það er ævinlega þannig og hlýtur að verða þannig.
Í fyrsta lagi þetta um skilvirknina. Ég tel að ósannað sé með öllu að þessar breytingar, fyrst og fremst það að taka matvöru inn undir söluskattinn líka, leiði til meiri skilvirkni í íslenska söluskattskerfinu. Ríkisskattstjóri kom á fund fjh.- og viðskn. Hann var þar að því spurður hvort það hefði verið aðalvandamálið í sambandi við skattaeftirlit á Íslandi, söluskattinn, að sumar vörutegundir hefðu verið undanþegnar. Sá ágæti maður sagði auðvitað nei. Vissulega hefur það skapað erfiðleika og verið mikið verkefni að fylgjast með því hvernig undanþágurnar kæmu fram. En það er ekki vöruverslunin, það er ekki matvaran í því sambandi, sem er erfiðust viðureignar, nei. Það eru undanþágur á ýmsum öðrum sviðum. Það eru markatilfelli í öðrum greinum eins og innan byggingariðnaðarins í heild sinni og í ýmissi persónulegri þjónustu sem eru auðvitað erfiðust viðureignar. Þetta sagði ríkisskattstjóri. Og það stendur reyndar í ágætri skýrslu sem ég hef vitnað til áður í umræðunni um umfang skattsvika. Þetta með skilvirknina gengur því ekki upp. Það reynist ekki vera rétt, í öllu falli stórlega ýkt.
Hvað með réttlætið? Í hverju felst það mikla réttlæti sem boðað er og koma á með þessum breytingum? Ég lýsi nú bara eftir því. Hver treystir sér til þess að koma hér upp úr stjórnarliðinu og útskýra fyrir mér í hverju réttlætið er fólgið? Ég bið um þann mann. Það má vera bara hver sem er af þeim stjórnarliðum sem kynnu að vera hér eftir í húsinu.
Og hvað með einföldunina? Jú, jú. Auðvitað er þetta einföldun. Lengi má einfalda hlutina. Það er auðvitað einfaldast að hafa ekkert skattkerfi. Það er langeinfaldast. Vilja menn það kannski? Hve langt ætla menn að ganga í einföldunaráttina ef hún á að ráða ferðinni á annað borð? Ætla menn að ganga yfir öll önnur sjónarmið? Já. Ég tel það. Ég tel að með þessu séu menn í raun og veru að segja það að öll önnur sanngirnissjónarmið, réttlætissjónarmið, skuli víkja fyrir þessari einföldunarþrá, þessari óskaplegu einföldunarþrá. Heimurinn verður að vera svo einfaldur fyrir þessa menn. Það má ekkert vera flókið. Það þarf að vera svo einfalt, svona óskaplega einfalt. En er það nú í samræmi við raunveruleikann? Er raunveruleikinn einfaldur? Er veröldin einföld? Er lífið einfalt? Nei. Þetta er allt saman mjög flókið. Það er því auðvitað bull og vitleysa að skattkerfið geti verið einfalt, endalaust einfalt. Það er þá ekkert skattkerfi. Það er þá ekki í samræmi við aðrar aðstæður. Auðvitað verður það að taka mið af hlutum eins og lífsafkomu fólks, aðstöðu fólks. Öðruvísi er það ekkert skattkerfi og er ekkert í samræmi við aðrar aðstæður í þjóðfélaginu.
Ég tel því, herra forseti, að þetta þrennt, skilvirknin, réttlætið og einföldunin, séu, þegar til kastanna kemur, engin rök. Þetta eru engin rök. Hvernig duga t.d. þessi rök á móti því að spyrja: Af hverju er ekki stefnt á Íslandi, ef menn ætla að skattleggja matvörur á annað borð sem ég er andvígur, en ef menn ætla að gera það af hverju er þá ekki stefnt á tvö þrep hvort heldur sem er í söluskatti eða virðisaukaskatti, matvöruna t.d. upp á 2 eða 4% og restin upp á 24 eða 25, eða 28 ef menn þurfa með til þess að ná inn tekjum? Hvað er svona flókið við það? Hvað er svona óréttlátt við það? Hvað er svona óskilvirkt við það að taka þá t.d. upp svoleiðis kerfi? Ég vil fá svör við því vegna þess að mér dugar ekki það að það þurfi að einfalda hlutina og að það eigi að leggja 25% söluskatt á allar matvörur og aðrar lífsnauðsynjar og síðan eigi að taka upp virðisaukaskatt á næsta ári.
Herra forseti. Ég tel mig hafa farið yfir þá helstu efnisþætti sem fram koma í samanþjöppuðu máli í nál. minni hl. á þskj. 463 og ætla ekki að hafa mál mitt lengra við þessa umræðu. Ég hef reynt að toga ýmsa hv. stjórnarliða fram úr skúmaskotunum til þess að ræða þessi mál, til að mynda hæstv. fjmrh. Hér á sínum tíma við 1. umr. þessa máls þegar ég vitnaði í ræður hans frá síðasta ári um hið brjálæðislega háa virðisaukaskattsstig sem þá var kynnt og hæstv. fjmrh. var þá svo óskaplega mikið á móti eins og raun ber vitni. Ég las upp úr skýrslu um þróun þessara mála í Evrópubandalagsríkjunum og spurði hæstv. fjmrh. ýmissa spurninga í því sambandi. Það voru heldur stuttaraleg svörin og ekki hefur hann lagt mikið til þessarar umræðu enn þá a.m.k.
Ég held, herra forseti, að það gangi ekki hjá hæstv. ríkisstjórn og hv. meiri hl. að ætla að láta menn kaupa þetta mál, þennan matarskatt á svona veigalitlum rökum, á svona hæpnum forsendum. Ef þeir ætlast til þess að þjóðin og þingið og aðrir trúi þeim, umheimurinn trúi þeim, verða þeir að færa einhver betri rök fyrir þessu en þetta. Hvernig lítur það út t.d. í augum útlendra manna sem kæmu hingað og fregnuðu af því og sannreyndu að á því landi þar sem matvaran er hvað dýrust í heiminum, kaupið lægra en í mörgum nálægum löndum, miklu lægra á tímann, standi til að leggja 25% nýja skatta á helstu lífsnauðsynjar? Hvers konar speki er það? Hver fékk þessa hugmynd? Það ætti að leiða fram í dagsljósið þá snillinga sem kveiktu þessa hugsun. Ég teldi ástæðu til. Það væri hugsanlegt að finna út einhver verðlaun sem væru við hæfi svipað og veitt voru hér á félagsvistum og kannski framsóknarvistum stundum, ekki fyrir þá sem voru hæstir, ég tek það fram. Það væri alveg hugsanlegt að grípa það gamla fordæmi upp og veita verðlaun sem menn fengu stundum á félagsvistum í gamla daga, vel að merkja ekki þeir sem urðu hæstir.