30.12.1987
Neðri deild: 41. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3466 í B-deild Alþingistíðinda. (2436)
196. mál, söluskattur
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Ég byrjaði á að ávarpa forseta eins og venja er þó að umræður fari fram um þingsköp og vona ég að hv. 4. þm. Norðurl. e. misvirði það ekki við mig.
Ég vek á því athygli að hv. 4. þm. Norðurl. e. hefur flutt alveg stórgóða ræðu og komið á framfæri við deildina gífurlegum upplýsingum frá Seðlabankanum, en eins og menn vita er þar bókasafn sem mikinn fróðleik hefur að geyma og sennilega er þetta samantekt úr því sem hann hefur hér flutt. Það er mjög bagalegt eftir jafnfróðlegan fyrirlestur ef málið er tekið af dagskrá meðan manni er nokkurn veginn í fersku minni hvað sagt var í þessum efnum. Ég tel að forseti geri beinlínis í því að rugla deildarmenn með því að skipta svo ört á milli eins og upp er tekið og mælist nú undan því að það sé gert mikið af því heldur reynt að klára eitthvert af þessum málum.