30.12.1987
Neðri deild: 42. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3476 í B-deild Alþingistíðinda. (2450)
196. mál, söluskattur
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Ég hef hlustað í dag á mjög fróðlegar umræður þar sem kynntar hafa verið reglur þær sem gilda í öðrum löndum um skattheimtu. Samkvæmt því sem þar hefur komið fram held ég að ég hafi rétt metið að hér er ekki um neitt illa þýddan lagabókstaf á erlendri tungu að ræða heldur frumsmíði og sérstætt og sjálfstætt hugverk. (SJS: Þjóðlegt frv.) Hv. 4. þm. Norðurl. e. leiðréttir ef hér er ekki rétt frá greint.
Ég tel þess vegna bæði tímabært og rétt að rifja örlítið upp afskipti alþýðuflokksmanna af skattheimtu í þessu landi. Ég ætla ekki að fara mjög langt aftur.
Á vordögum 1984 voru samþykktar tvær þáltill. á Alþingi Íslendinga. Flm., sá fyrsti, að báðum þessum þáltill. var Jóhanna Sigurðardóttir og mismikill fjöldi alþýðuflokksþingmanna skrifaði upp á þessar tillögur. Báðar till. skrifaði þó hæstv. núv. fjmrh. upp á. Þessar þáltill. fóru í gegnum allshn. Þennan vetur var ég formaður allshn. Það þykja að sjálfsögðu nokkur tíðindi á hverjum tíma þegar formaður í nefnd á Alþingi Íslendinga hleypir í gegn með sínum stuðningi máli sem stjórnarandstæðingar flytja. (HJ: Hvað átti það líka að þýða?) Og hér heyrist hljóð úr horni: Hvað átti það líka að þýða? Það er ekkert skrýtið að þetta hljóð heyrist vegna þess að á grundvelli þessara till. skipaði þáv. hæstv. fjmrh. Albert Guðmundsson nefnd. Hvað átti það að þýða? Var maðurinn e.t.v. að undirrita sinn dauðadóm í Sjálfstfl.? Ég er ekki viss nema svo hafi verið, minnugur þess að ég veit ekki hvort fyrrv. hæstv. forsrh., Gunnari heitnum Thoroddsen, var nokkurn tímann fyrirgefið að koma á skattalögreglu hér á landi.
En það er ekki skrýtið þótt spurt sé úr salnum: Hvað átti það að þýða? Það blasir nefnilega við að nú hefur það komið upp að sá sem á sínum tíma stóð að því að flytja hér krefjandi þingmál sem stjórnarandstæðingur situr nú í þeirri stöðu að eiga að framkvæma þær þáltill. sem hann barðist fyrir að koma áfram. Það eru hvorki meira né minna en samanlagt tíu atriði á þessum till. sem voru sett inn. Og mín spurning til hæstv. ráðherra er: Hvað hefur hann komið miklu í verk að framkvæma af þessum tíu atriðum?
Forveri hans í starfi, hæstv. núv. forsrh., fékk sem sagt í arf, e.t.v. í óþökk, ég veit það ekki, í fyrsta lagi skýrslu sem var uppskera þessara till. og fjallar um umfang skattsvika. Nú stendur þannig á að verið er að gjörbreyta skattakerfi íslensku þjóðarinnar á þann veg að miklu stærri hluti en áður af tekjum ríkissjóðs kemur í gegnum söluskatt. Tollar voru hvergi nefndir sem stórkostlegur möguleiki til skattsvika í þessari skýrslu. Jafnvel þó eitthvert smygl hafi átt sér stað er það smávægilegt miðað við aðra möguleika. Eitt af því sem kom fram í skýrslunni var að höfundar hennar telja sig geta á því staðið að þeim mun menntaðri sem menn eru þeim mun meiri líkur séu á skattsvikum. Það er stöðug framför í menntun hjá þjóðinni.
Ég vil líka vekja athygli á því að þegar þeir vega og meta tíðni nótulausra viðskipta á Norðurlöndum eru það Norðmenn sem standa sig best í þeirri iðju. Og hvaðan erum við komnir? Frá Noregi. Búast má við því, ef menntun þjóðarinnar vex, að við verðum ekki eftirbátar Norðmanna. (JHB: Hvers vegna fórum við frá Noregi?) Það er kannski líka rétt að rifja það upp. Við vildum enga skatta greiða. Það var ástæðan, enga skatta greiða til Noregskonungs, hreinar línur. Spurningin er: Er útlit fyrir einhverja breytingu í þessum efnum? Ég sé ekki að það sé mikið útlit fyrir breytingu því nú hefur hæstv. Alþingi afhent útgjöld fyrir næsta ár, en þegar kemur að því að ganga frá tekjunum er hik, mikið hik á mönnum að afgreiða það mál. Viðleitnin virðist því vera á sama veg.
Ég ætla að víkja að einu atriði í 4. lið annarrar þáltill. sem samþykkt var. Þar er sett fram sú krafa, með leyfi forseta, að láta tafarlaust fara fram gagngera endurskoðun á fyrirkomulagi söluskattskerfisins með það markmið að koma á skilvísara eftirliti með innheimtu söluskatts. Heimild sú sem er í 17. gr. laga um söluskatt til að fylgjast með fjármagnsstreymi í fyrirtækjum verði notuð þar sem því verður við komið. Athugað verði einnig hvort hægt sé að fá betri skil með því að fækka undanþágum og lækka þar með söluskatt. Það merkilega hefur gerst að menn hafa snúið sér mjög skipulega að því að fækka undanþágunum. Það hefur ekki verið farið í það enn að framkvæma það, sem Alþingi krafðist þó á sínum tíma að gert væri, að fylgjast með fjármagnsstreymi hjá fyrirtækjunum. Hæstv. forsrh. og þáv. fjmrh. hlýddi ekki fyrirmælum Alþingis í þessum efnum.
Ég vil bæta örfáum orðum við. Hafi einhvern tímann verið arðbært að stela undan söluskatti á Íslandi verður það nú eftir áramótin. Og því gildir það að hæstv. fjmrh. hefur stuttan tíma til að koma sér að því verki sem hann sjálfur á sínum tíma krafðist að yrði farið út í. Er of mikið þó stjórnarsinni fari fram á það við hæstv. fjmrh. að það sem hann lagði til, fékk samþykkt, sjái hann nú um framkvæmdina á þannig að það verði til fyrirmyndar? Ég verð að segja eins og er að ég vænti þess að sá þm. og núv. ráðherra sem var 1. flm. að þessum till. hugleiði nú í fúlustu alvöru hvílík ábyrgð hlýtur að hvíla á henni sem félmrh. ef alþýða Íslands verður skattlögð eins og hér er verið að gera ráð fyrir en stór hluti af tekjunum kemur aldrei í kassann. Það sem gerir mig svartsýnan er hve lítil uppskeran hæstv. fjmrh. gerði ráð fyrir að,yrði skv. þeim fjárlögum sem hér voru samþykkt. Ég tel að það séu ekki undir 2 milljarðar sem ættu að verða tekjuafgangur hjá íslenska ríkinu á næsta ári ef það verður framkvæmt sem stóð í þessum þáltill.
Ég undirstrika að eitt af því sem verður að gera, ætli menn að ná einhverjum árangri í þessum efnum, er að greiða því starfsfólki sem vinnur á skattstofunum þau laun að þar tolli þeir menn sem hafa menntun og þekkingu til að vinna þessi verk. Ég veit að það er mikið af mönnum á skattstofunum sem hafa þekkingu og menntun til þess en engu að síður tel ég að þeir séu yfirhlaðnir störfum og eftirlitið í dag sé nánast í molum.
Þetta var það erindi sem ég átti í ræðustól til að koma á framfæri við hæstv. fjmrh. Ég vona að hann geri sér grein fyrir því að það verður fylgst með því hvernig að þessu verki verður staðið.