30.12.1987
Neðri deild: 42. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3491 í B-deild Alþingistíðinda. (2452)

196. mál, söluskattur

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Ég verð að viðurkenna að það er kominn svolítill ruglingur á alla pappíra því að hér er, eins og áður hefur verið nefnt, þeyst úr einu málinu í annað og ég er eiginlega ekki fyrr búin að koma reiður á pappíra í einu máli en annað mál er komið á dagskrá. En ég vona að ég sé með rétta málið í höndum. Það mun vera um söluskattinn sem við erum að ræða núna. Öll þessi vandræði stafa náttúrlega af því að ég vil gjarnan halda mig við það mál sem á dagskrá er og þess vegna er ég að reyna að hafa réttu pappírana með mér.

Það þarf ekkert að endurtaka það og fara mörgum orðum um að það er afskaplega stórt mál sem við erum að fjalla um og raunverulega erfitt að taka nógu sterkt til orða. Það er eiginlega farið að sneyðast um lýsingarorð til að lýsa því sem hér er að gerast. Þetta mál, þ.e. frv. til l. um söluskatt, er að mínu mati langt frá því fullrætt í nefndinni og get ég í raun og veru aðeins vísað til þess sem kom fram í upphafi fundar í morgun um það mál þar sem því var lýst hvernig þetta mál var meðhöndlað í nefndinni.

Við fengum vissulega ýmsa gesti á nefndarfund eins og hv. formaður nefndarinnar lýsti, en höfðum allt of lítinn tíma til að ræða við þessa gesti okkar. Við höfðum ýmsar spurningar fram að færa en lítinn tíma til þess að hlusta á svör þeirra. Óneitanlega gleymdust einhverjar af þeim spurningum sem við hefðum viljað bera upp þar sem allt of lítill tími var gefinn.

En það kom vissulega margt athyglisvert fram í samræðum við þessa gesti okkar. Ég hafði ekki tíma til að setja það neitt skipulega upp á blað til að flýta fyrir og gera ræðu mína skiljanlegri, en ég held að ég sé hér með þá réttu pappíra og takist nú að vitna eitthvað í það því að þessar athugasemdir eiga vissulega erindi inn í þessa umræðu.

Við fengum t.d. formann Manneldisfélags Íslands til viðræðu að ósk þeirrar sem hér stendur og þarf engum að koma á óvart því að við kvennalistakonur höfum haft mörg orð um það sem lýtur að manneldissjónarmiðum. Það var mjög fróðlegt að fá formann Manneldisfélagsins á fund nefndarinnar. Ég heyrði það mér til mikillar ánægju í máli hv. formanns fjh.- og viðskn. að hann hafði hrifist af málflutningi formanns Manneldisfélagsins og ræddi það einmitt í máli sínu áðan. Hann kom m.a. inn á að það væri ástæða til að taka tillit til þeirra sjónarmiða t.d. við skattlagningu á sykur og sykurvörur og orðaði það einhvern veginn þannig að sykurinn mundi vera of ódýr, ef ég man rétt hans orð. Það er einnig skoðun okkar kvennalistakvenna að með tilliti til manneldissjónarmiða og hollustusjónarmiða sé ástæða til að leggja álögur á sykur og sætindi og við flytjum till. um það í tengslum við vörugjaldsfrv. og tollalögin. Það veldur töluverðum vonbrigðum, eftir að hafa þó heyrt þessa jákvæðu afstöðu formanns nefndarinnar, að hann skuli þá ekki vilja stíga það skref til fulls núna úr því að hann er þeirrar skoðunar að þetta sé rétt afstaða.

Formaður Manneldisfélags Íslands lýsti áhyggjum sínum vegna þeirra áhrifa sem þessar lagabreytingar varðandi tolla, vörugjald og söluskatt mundu hafa á neyslumunstur landsmanna og þau slæmu áhrif sem þau mundu hafa á heilsusamlegt mataræði. Hann lagði fyrir okkur niðurstöður könnunar á mataræði Íslendinga sem er að vísu nokkuð gömul, hún er frá árinu 1979–1980, en þar komu fram mjög athyglisverðar upplýsingar sem gefa það til kynna að við neytum allt of mikillar fitu. Við neytum of mikils af kolvetnum í formi sykurs og fæðan er alls ekki rétt saman sett með tilliti til manneldis- og heilbrigðissjónarmiða. Þessi mál höfum við rætt einnig við lækna og matvælafræðinga og aðra sérfræðinga og þar kemur alls staðar fram sama viðhorf, að á síðustu árum hefur verið lögð aukin áhersla á rétt mataræði og aðra hollustuhætti og það er þeirra álit að það beri að taka tillit til slíkra sjónarmiða og marka stefnu í lögum m.a. með verðlagningu á matvæli. Með slíkri manneldisstefnu erum við að stuðla að betra lífi fyrir einstaklingana og stuðla að sparnaði í þjóðfélaginu því að aukin heilbrigði og heilbrigðir og ánægðir einstaklingar eru þjóðfélaginu afar mikils virði.

Það hefði sannarlega verið ástæða til þess fyrir stjórnvöld að stuðla að því að hægt væri að gera nýja neyslukönnun. Það kom fram hjá formanni Manneldisfélagsins að það er fullur vilji á því að gera slíka könnun, en bolmagn til þess væri ekki fyrir hendi, fjármagnið skorti til þess. Er það athugunarvert fyrir heilbrmrn. að mínum dómi. Þetta finnst mér vera mjög mikilsvert atriði og ég get, til þess að taka ekki of langan tíma, vísað til ræðu minnar við 2. umr. þessa máls þar sem ég fór mjög ítarlega í þetta mál.

Við fengum líka forstjóra Þjóðhagsstofnunar á fund nefndarinnar og það spunnust þar mjög ágætar og fróðlegar umræður, svo lengi sem leyfðist vegna eftirrekstrar og pressu, og hefði þurft að gefast miklu meiri tími til að ræða við hann, spyrja hann og fá hans sjónarmið fram. Ég spurði m.a. um forsendur þeirra orða í grg. með frv. að heildaráhrif þessara breytinga, þá eru það þær breytingar sem ætlað er að koma fram með lögfestingu þessara þriggja frv. sem við höfum undir í deildinni, að heildaráhrif þeirra á verðvísitölu að teknu tilliti til niðurgreiðslna séu þau að framfærsluvísitalan muni ekki breytast, byggingarvísitalan muni lækka um 2,3% og lánskjaravísitalan lækka um 0,8%. Það er þá fyrst til að taka að forstjóri Þjóðhagsstofnunar upplýsti það að hér væri ekki um réttar tölur að ræða. Það væri að vísu álitið að framfærsluvísitalan mundi ekki breytast en álitið væri að byggingarvísitalan mundi lækka um 1,6% og lánskjaravísitalan um 0,5–0,6%. Það er eitt atriði sem er vert að leggja áherslu á og athuga vel í þessu sambandi: áhrifin af matarskattinum, sem við fyrst og fremst höfum við að athuga í þessu frv. hér, áhrifin af matarskattinum koma strax fram. Þau koma strax fram þegar sá skattur hefur verið lagður á. Lækkun byggingarvísitölu og lánskjaravísitölu, ef um einhverjar lækkanir verður að ræða, koma alls ekki fram fyrr en síðar og eru auk þess afskaplega litlar þannig að ég efast um að fólk finni beinlínis fyrir þeim.

Við spurðum einnig um það hvort við útreikning þessara heildaráhrifa, sem eru hér með furðumikilli nákvæmni sett fram, hvort þar hefði verið gert ráð fyrir einhverjum hliðaráhrifum því að það er margreynt að umtalsverðar breytingar á vöruverði verða tæpast reiknaðar út frá einhverjum núllpunkti. Í þessu dæmi eru svo margir óvissuþættir að ég held að það sé ákaflega vafasamt að setja fram svo ákveðnar tölur, enda var það fyllilega viðurkennt að grunnurinn undir þessum fullyrðingum, sem eru settar fram sem slíkar, væri ekki fjarskalega sterkur.

Það kom einnig fram sú skoðun forstjóra Þjóðhagsstofnunar að vafalaust mundu þessar söluskattsbreytingar hafa mikil áhrif á kaupkröfur og þeirri skoðun hafa vissulega fleiri lýst sem komið hafa á fund nefndarinnar.

Ég held að ég hafi skrifað það rétt niður eftir forseta Alþýðusambandsins að hann sagði sem svo að málið í heild, og átti þá við öll frv. þrjú, væru með þungann í neðri enda. Þessar ráðstafanir mundu þyngja byrðar þeirra sem eyða mestum hluta tekna sinna í nauðþurftir. Svo ég hafi þetta orðrétt eftir þá talaði hann um 50% stærri „effekt“ af matarskattinum á lægstlaunaða fólkið. Ég held að það þurfi ekki að þýða þetta yfir á neitt annað mál. Það skilja allir hvað átt er við. Hann sagði enn fremur að þetta kæmi til með að auka þungann í kröfugerð í komandi samningum.

Eftir formanni BSRB hef ég skráð hér að þessar breytingar mundu koma þyngst niður á barnmörgum lágtekjuheimilum. Hann talaði um að kjarasamningar, sem gerðir hefðu verið að undanförnu, hefðu verið gerðir á forsendum lækkandi verðbólgu. Með þessum aðgerðum væri grafið undan því trausti sem er forsenda samningsgerðar sem fyrst og fremst byggir á aukningu kaupmáttar á grundvelli lægri verðbólgu. Og hér er að lokum ein setning sem ég skráði niður eftir honum: Að stór hópur einstæðra mæðra yrði mjög illa úti. Það eru margar fleiri slíkar setningar sem ég gæti vitnað til sem fram komu á þessum fundum. Við fengum formann Neytendasamtakanna, Jóhannes Gunnarsson, sem lýsti sig, og þarf engan að undra, afar mótfallinn hækkun á mikilvægum matvælum. Hann talaði um verri stöðu láglaunamannsins, sagði að þessar aðgerðir mundu veikja stöðu þeirra sem standa höllum fæti o.fl. o.fl., sem vissulega væri ástæða til að vitna til, en ég ætla nú ekki að lengja þetta allt of mikið.

En það var einn gestur enn sem ég sé ástæðu til að nefna og það var skattrannsóknarstjóri sem kom á okkar fund í morgun og lýsti þar sínu viðhorfi til þessara breytinga. Okkur lék forvitni á að vita að hve miklu leyti vandinn vegna söluskattsskila, sem hefur verið umtalað sem vandamál, að hve miklu leyti sá vandi lægi á sviði vöruverslunar. Og það voru hans orð að matvöruverslunin væri aðeins brot af þeim vanda. Það væri í raun og veru of mikil áhersla á það lögð að þessi eina breyting létti verulega róðurinn. Sú yfirlýsing er vissulega mikils virði.

Það hefur verið til umræðu jafnvel árum saman hversu alvarlegt vandamál slæm skil einkanlega söluskatts væri í þessu tekjuöflunarkerfi ríkissjóðs. Venjulega hefur því sem nefnt hefur verið „undanþágufargan“ verið kennt um. Ég get út af fyrir sig fallist á það að það er þeim mun erfiðara að hafa eftirlit sem skattkerfið er flóknara og undanþágur fleiri. En þá hlýtur maður að spyrja hvað verið sé að gera með þessum frv., með þessu frv. sem hér er til umræðu. Hvað er verið að leggja hér til? Byltingin felst raunverulega í því einu, þ.e. breikkun söluskattsstofnsins, felst í því einu að fella niður undanþágur á söluskatti á matvæli, eða svo til því einu. Það er að vísu enginn smábiti eins og hér hefur margsinnis verið minnt á. En kerfisbreytingin er í raun og veru ekki stór og við höfum hér orð ríkisskattstjóra fyrir því að vandræðin vegna innheimtu söluskattsins varðandi söluskattsskilin væru alls ekki að svo stórum hluta tengd þessum þætti skattlagningar. Hún vegur að sjálfsögðu eitthvað en það er ekki þarna sem aðalvandamálið liggur, það er í sambandi við þjónustu af ýmsu tagi, það er t.d. í sambandi við byggingariðnaðinn, viðgerðarþjónustu, bílskúrastarfsemi og fleira af þessu tagi. Á því er hins vegar ekkert tekið í þessu frv. eða í þessum lagabreytingum sem verið er að koma hér í gegn. Að mínum dómi má segja að almenningur hafi verið blekktur hvað þetta varðar. Ég gæti trúað að ýmsir, sem hafa ekki tök á því að fylgjast með störfum ríkisstjórnarinnar og Alþingis út í hörgul en láta sér nægja yfirborðskenndar fréttir af blaðamannafundum ríkisstjórnarinnar og fréttir af þeim málum sem hér eru til umræðu, haldi að hér sé um verulega kerfisbreytingu að ræða. En eins og ég hef lýst þá tel ég að svo sé ekki.

Í tilefni jóla, herra forseti, fá margir góða gesti, jafnvel utan lands frá. Og það stendur svo á fyrir þeirri sem hér stendur að ég hef verið þeirrar ánægju aðnjótandi að fá gesti á þessum jólum, hjón frá Bandaríkjunum, sem búa þar, og þau spyrja að sjálfsögðu frétta eins og gesta er siður. Að vonum hef ég ekki margar fréttir að segja af öðru en því sem gerist hér á þessum vinnustað. Maður er nú yfirleitt ekki annars staðar þessa dagana. Ég ég ætla ekkert að reyna að lýsa undrun og hneykslun þessa fólks á því sem hér er til umræðu. Það datt alveg hreint yfir þau að við værum í raun og veru að ræða um þá ætlan stjórnvalda að leggja þessa hrikalegu skattprósentu á, sem er nánast óskiljanleg í þeirra augum, og það á matvæli. Þetta fannst þeim svo yfirgengilegt, sérstaklega hversu háa skattprósentu við værum að tala um, og þá ekki síður að einhverjum yfirleitt dytti það í hug leggja svona háan skatt á matvæli eða yfirleitt nokkurn skatt. Í því fylki sem þessi hjón búa í í Bandaríkjunum, sem er Flórída, er söluskatturinn að þeirra sögn 5% á ýmsum vörum. Ég fór nú ekki svo nákvæmlega út í það til að eyðileggja ekki gjörsamlega jólaskapið á hvað vörur slíkur söluskattur væri lagður. En hann er ekki á matvælum að þeirra sögn. Og þeirra orð voru þau að ef stjórnvöldum dytti það í hug að skattleggja matvæli í því landi sem við höfum stundum kallað guðs eigið land þá yrði það ekki liðið. Það mundi jaðra við byltingu.

Það hefur verið upplýst, ég þekki að vísu ekki skattalög og skattlagningu í öllum heiminum eins og hv. 4. þm. Norðurl. e. er vel kunnugur og lýsti hér fyrr í dag, en ég held að það sé ekki fjarri lagi að taka undir það að hér muni vera um heimsmet að ræða. Jafnvel frú Thatcher, sem nýtur töluverðrar virðingar meðal stjórnmálamanna, gerist ekki svo djörf að leggja matarskatt á Breta og má það nú vera hæstv. ríkisstjórn til ævarandi háðungar að vilja leika umbjóðendur sína verr heldur en „járnfrúin“ sem er nú ekki beinlínis þekkt að miskunnsemi.

Herra forseti, ég vildi svo aðeins kynna í örfáum orðum þær tillögur sem Kvennalistinn flytur. Þingkonur Kvennalistans í Ed., Danfríður Skarphéðinsdóttir og Guðrún Agnarsdóttir, fluttu þessar tillögur við afgreiðslu málsins frá Ed. Ég kynnti þær reyndar lítillega við 1. umr. þessa máls og þarf þess vegna ekki að vera orðmörg um þær núna. Þær eru á þskj. 465 og lúta að því að það verði ekki lagður söluskattur á matvæli. Það orðalag sem hér er á fyrri brtt. á þskj. 465 er sambærilegt við það orðalag sem haft er á undanþágu þeirri sem nú er í reglugerð um söluskatt og hv. þm. geta að sjálfsögðu lesið það sjálfir. Ég ætla ekki að tefja tímann með því að lesa þetta upp. Við erum enn fremur með till. um það að heilsuræktarstöðvar verði hér inni í þeirri upptalningu í B-liðnum yfir þá staði sem að verði undanþegnir söluskatti af aðgangseyri. Síðan er 2. brtt. um það að heimilt verði að fella niður eða endurgreiða söluskatt af fjárfestingarvörum til nota við garðyrkju.

Herra forseti. Mig langaði til að vita hvort hæstv. forsrh. væri hér inni í húsinu. Ég vildi gjarna segja við hann örfá orð áður en ég lýk máli mínu. (Forseti: Hæstv. forsrh. er í þinghúsinu. Óskar þm. eftir því að honum verði gert viðvart?) Já. (Forseti: Það verður þá gert.)

Á meðan ég bíð eftir hæstv. forsrh. gæti ég rifjað upp fyrir þm. nokkur orð úr stefnuyfirlýsingu og starfsáætlun ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar. Það er kannski ástæða til að lesa margar tilvitnanir úr henni en ég læt nægja hér að minna á nokkra punkta úr kafla á bls. 13 sem heitir Heildarendurskoðun skattakerfisins. Þar er fyrsti punkturinn sem hljóðar svo:

„Megintekjustofnar hins opinbera verði sem almennastir svo að skattlagning verði sem hlutlausust.“

Mér datt nú í hug þegar ég las þetta að þessi spurning um túlkun væri dálítið umhugsunarverð. Það liggur þá beint við að álykta sem svo að hæstv. fjmrh. þyki það hlutleysi að íþyngja almenningi með matarskatti.

Annar punkturinn er hins vegar varðandi það að skattlagning mismuni ekki fyrirtækjum eftir rekstrarformum.

Í þriðja lagi er hér mjög athyglisverð setning, sem er ástæða til að rifja upp, en hún hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Undanþágum og sérreglum verður fækkað þannig að unnt verði að hafa álagningarhlutföll sem lægst.“ — Og er nú fyllsta ástæða til að biðja menn að rifja þetta upp.

En ég þakka hæstv. forsrh. fyrir að koma hér og hlýða á örfá orð sem ég ætla að segja hér að lokum. Það er að verða nokkuð áliðið, fundir búnir að standa lengi og síðasti dagur ársins rennur brátt upp og það er engin launung á því að það er nokkur óvissa hér um afgreiðslu allra mála.

Stjórnarandstaðan hefur verið sökuð um málþóf og nú síðast gerði það hæstv. forsrh. í fréttum Ríkissjónvarpsins. Ég verð að segja það að ég uni þeirra einkunnargjöf illa. Slík einkunnargjöf, slíkar athugasemdir kalla e.t.v. á skýringu á því hvað er meint með málþófi. Ég get alveg viðurkennt það að ég flutti langt mál hér við 1. umr. um þetta mál, óvenjulega langt ef ég má svo segja hvað sjálfa mig varðar. Það sýnir hins vegar það eitt að mér var mikið niðri fyrir og er enn mikið niðri fyrir varðandi þetta mál. Og ég fullyrði að þeir sem hafa rætt þetta mál hér í dag og fyrr hafi haldið sig við það sem hefur verið á dagskrá. Ég skil hins vegar á vissan hátt óþreyju hv. þm. sem eru orðnir þreyttir á löngum þingfundum og vilja gjarnan njóta áramótanna með fjölskyldum sínum.

Það hefur aftur og aftur verið minnst á tilboð og e.t.v. er hæstv. forsrh. að lesa um eitthvað slíkt í þeirri bók sem hann hefur með höndum. En það hefur verið gefið í skyn að um einhver tilboð hafi verið að ræða til þess að greiða fyrir málum eða geti verið um að ræða af hendi ríkisstjórnarinnar. Ég hef hins vegar ekki heyrt um neitt slíkt tilboð. Hins vegar hefur stjórnarandstaðan reynt eftir föngum að liðka til. Við gerðum t.d. beint tilboð sem birtist í nál. á borðum þm. í dag. Við gerðum beint tilboð um endurvinnslu þessara mála sem gæti orðið til þess að leysa þennan hnút og sem gæti tryggt ríkisstjórninni nauðsynlegar tekjur, en um leið losað almenning undan matarskattinum. Ég vil koma hreint fram í þessu efni vegna þess að ég hef aftur og aftur nú í dag verið spurð í hliðarsölum og á göngum hvað stjórnarandstaðan ætlist fyrir, og virðist vera reiknað með því að við séum með — ég vil kannski ekki nefna samsæri en séum með samantekin ráð um það að koma einhverju illu af stað. Það liggur svona í orðanna hljóðan. Ég hef verið spurð að því hvað við ætlumst fyrir og hvað við getum sætt okkur við án þess þó að nokkuð sé gefið í skyn að eitthvað sé í boði. Ég sé enga ástæðu til að vera með hvískur um þessi mál eða tala í gátum og vil segja það hér beint út svo að það fari ekkert á milli mála að stjórnarandstaðan er ekkert að leika sér hér í ræðustól. Við höfum mikla og ríka ástæðu til að tjá okkur um þetta mál og þessi mál sem eru á dagskrá í dag. Okkur er mikið niðri fyrir og við eigum margt ósagt. Það er engin spurning. En ríkisstjórnin getur ef hún vill höggvið á þennan hnút. Það er hennar að velja ef hún vill eitthvert samkomulag. Ég vil því lýsa eftir þessu tilboði ríkisstjórninnar ef um eitthvert slíkt tilboð er að ræða sem hvað eftir annað hefur verið gefið í skyn að hafi verið um að ræða eða sé hugsanlegt að sé um að ræða. Ég kann því heldur illa að menn séu með þetta pukur og séu að gefa eitthvað í skyn í einkasamtölum hér og þar í gluggakistum og skotum. Og ég vil lýsa því hér yfir að það er mitt mat að ef ríkisstjórnin vill bjóða einhverjar tilslakanir þá er stjórnarandstaðan fús til að ræða það og til þess að greiða götu þingmála, sem hún hefur alltaf verið tilbúin að gera, greiða fyrir því að þau þingmál sem ríkisstjórnin telur mest áríðandi að afgreiða fyrir þau áramót sem eftir rúman sólarhring eru staðreynd. Jafnvel þótt það kostaði að við yrðum þá að stilla máli okkar í hóf.

Þetta var erindi mitt við hæstv. forsrh. sem er mikill hæfileikamaður og hefur vafalaust öll tök á því að heyra hvað þm. hafa við hann að segja þótt hann kjósi að lesa um leið í bók. En ég vona að ég fái svar við þessum fsp. um það hvort um eitthvert tilboð sé að ræða og hvert það tilboð þá sé.