31.12.1987
Neðri deild: 44. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3505 í B-deild Alþingistíðinda. (2474)

Nýársóskir í neðri deild

Albert Guðmundsson:

Hæstv. forseti. Ég vil fyrir hönd okkar þm. þakka forseta fyrir réttláta og góða fundarstjórn og góðar óskir okkur til handa og fyrir hönd okkar allra óska forseta og fjölskyldu hans gleðilegs og farsæls komandi árs. Þá vil ég líka fyrir okkar hönd þakka starfsfólki öllu þolinmæði og vel unnin störf og vona að þess bíði farsælt og gott ár líka. Ég bið hv. alþm. að rísa úr sætum og staðfesta þessar óskir. [Þingmenn risu úr sætum.]