31.12.1987
Efri deild: 46. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3506 í B-deild Alþingistíðinda. (2483)
198. mál, tollalög
Frsm, meiri hl. fjh.- og viðskn. (Halldór Blöndal):
Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur komið saman og leggur meiri hl. til að frv. verði samþykkt með þeim gagnlegu leiðréttingum sem á því hafa verið gerðar í Nd. og felast í fyrsta lagi í því að tollur á fiski hefur verið ákveðinn 22% sem er nauðsynlegt vegna samninga við ríki Efnahagsbandalagsins. Dregið er nokkuð úr tollum á kornmat, sem notaður er til morgunverðar og ég kann ekki að fara frekar út í en er nauðsynlegur vegna samkeppnisaðstöðu nýrra iðnfyrirtækja hér á landi, úr 30 í 20%. Lækkaður er tollur úr 30 í 15% á ýmsum tækjum sem lúta að tónlist og myndatöku. Aðrar breytingar eru tæknilegs eðlis sem ég fer ekki nánar út í, en ég vonast til þess, herra forseti, að nefndarmenn taki þessu ljúfmannlega þar sem þetta er væntanlega síðasta afgreiðslan á þessu ári og eins og við sáum fyrir kvöldmatinn eru menn mjög hugljúfir hér í deildinni á þessum síðustu stundum ársins.