04.01.1988
Neðri deild: 45. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3534 í B-deild Alþingistíðinda. (2504)

196. mál, söluskattur

Óli Þ. Guðbjartsson:

Hæstv. forseti. Það mál sem er á dagskrá er eitt af þremur meginmálum sem fjallað hefur verið um seinustu dægur liðins árs og á þessum fundi, þeim fyrsta á nýbyrjuðu ári. Það er út af fyrir sig ekki furða þó að einn hv. þm., sem talaði næst á undan mér, hafi nefnt þessa þrenningu þríhöfða þurs. Þar í felst náttúrlega ákveðið viðhorf sem bærilega hefur komið fram í máli þeirra fulltrúa stjórnarandstöðu sem hér hafa talað við umræðurnar allar.

Ég býst við að leitun sé á þjóðþingi þar sem svo viðamiklar breytingar sem hér er um að ræða eru undirbúnar á þann veg sem hér er, þær séu undirbúnar þannig að þær eru lagðar fyrir þjóðþingið innan við þriggja vikna tíma áður en ætlast er til að þingið afgreiði málin. Þegar því er ekki kyngt alveg á stundinni af viðkomandi stjórnarandstöðu er því haldið fram að um sé að ræða málþóf þegar menn vilja taka til máls um málin. Ég býst við að leitun sé á þjóðþingi þar sem aðstæður eru þannig, eins og hafa verið við þessi mál á undanförnum dögum, að fulltrúar stjórnarliðsins, sem er ekki lítill hluti þingsins, tekur nánast ekki til máls um aðalmál þingsins dögum og jafnvel vikum saman. Það er aðeins um að ræða hæstv. ráðherra og hins vegar þá hv. þm. sem neyðast til þess sem frsm. nefnda. Að öðru leyti er það stjórnarandstaðan sem ræðir raunverulega eða reynir a.m.k. að ræða málin efnislega.

Ég mun í væntanlega ekki mjög löngu máli leggja fyrir fsp. til hæstv. fjmrh. um það mál sem er sérstaklega á dagskrá. Ég get verið tiltölulega fljótur að segja kjarnann í áliti mínu og viðhorfi mínu til þessa máls. Ég er því andstæður fyrst og fremst vegna þeirrar ætlunar hæstv. ríkisstjórnar að leggja á hinn svonefnda matarskatt með þeim hætti sem hann er á lagður, fyrst og fremst vegna þess hvar hann lendir þyngst og einmitt þar sem síst skyldi.

Í athugasemdum með þessu frv. sem er til umræðu segir, með leyfi hæstv. forseta, eftirfarandi:

Þær breytingar sem hér er fjallað um eru fyrst og fremst í fimm atriðum. Í fyrsta lagi lækkun tolla og afnám sex annarra gjalda. Þetta er talið sem fyrsta atriðið og það sem kannski skiptir ekki minnstu máli, en ég vildi í því sambandi minna á að það eru ekki nein ný tíðindi að tollar séu lækkaðir hér á landi og það er ekki nein ný pólitík sem verið er að taka upp í því efni. Sú pólitík hefur staðið óslitið frá því á árunum í kringum 1970. Fyrir 1970 voru tekjur ríkisins af tollum og vörugjöldum eða innflutningsgjöldum yfir 50% af tekjum ríkisins. Síðan hefur þetta smám saman minnkað og það er rétt að minnast á það hvernig það hefur gerst. Árið 1975 er hlutfallið komið niður í 22%, 1976 er hlutfallið komið niður í 21,5%, 1977 fer það aðeins upp, í 21,9%, 1978 fer það niður í 20,4%, 1979 fer hlutfallið niður í 18,6%, 1980 niður í 17,6%, 1981 hækkar það lítillega, upp í 19,1%, niður aftur 1982, í 19%, 1983 niður í 17,3%, 1984 niður í 16,8%, 1985 niður í 14,7% og í hittiðfyrra, 1986, er þetta komið niður í 11% og mun hafa verið það sama á rétt nýliðnu ári. Þannig að ef við virðum fyrir okkur hvernig tollarnir hafa lækkað sem hlutfall af tekjum ríkisins er það ósköp álíka stökk sem hefur orðið 1984–1987, 5,8%, og nú er gert ráð fyrir í þeim breytingum sem samþykktar voru rétt fyrir síðustu áramót. Árið 1988 er sem sagt gert ráð fyrir því að hlutfallið verði 5,0%, fari niður um 6% með þessum breytingum, hlutfall tolla og aðflutningsgjalda, vörugjalda, í tekjum ríkissjóðs. Frá árinu 1983 til 1987 eru þetta 6,3%, mjög svipað hlutfall.

Þetta eru í sjálfu sér tíðindi, og ekki slæm tíðindi, að þessi tollapólitík sé rekin. Engu að síður vil ég enn minna á það sem mér finnst skipta máli í þessu sambandi, en það er hve hátt hlutfall innfluttrar vöru er í neyslu venjulegrar íslenskrar fjölskyldu. Ég hef að vísu ekki nákvæma úttekt á því. Sumir tala um að um 80% af neyslu venjulegrar íslenskrar fjölskyldu séu innflutt vara, aðeins um 20% séu heimafengin vara eða framleidd hér í landinu. Það hefur verið staðfest við mig einmitt af fulltrúa fjmrn. fyrir fáum dögum að þessi staðhæfing er í meginatriðum rétt. Það er líka rétt að það er á allt annan veg í þeim löndum öðrum sem hér er oft miðað við og einmitt er látið að liggja í sambandi við þær skattalagabreytingar sem hér er verið að fjalla um. Þar er þetta hlutfall allt annað. Mér segir svo hugur um að þessi staðreynd geri það einmitt að verkum að sú breyting sem verið er að ganga til hér, að hafa söluskattinn svona geysiháan og á seinasta stigi á nánast flestöllum vörum, sé breyting í ranga átt.

Við skulum aftur líta dálítið nánar á athugasemdir með lagafrv. Önnur meginbreyting er þar sögð vera fækkun undanþága og samræming söluskattsins. Það er einmitt það mál sem við erum með sérstaklega á dagskrá.

Þriðja breytingin er talin vera öruggari tekjuöflun ríkissjóðs. Ég efast varla um að það sé rétt, enda hefur það komið fram í nýsamþykktum fjárlögum að það voru ekki litlar upphæðir sem þar bætast við einmitt af þeim ástæðum sem hér er verið um að véla.

Í fjórða lagi er talað um að skattskilin muni batna stórkostlega. Um það efast ég stórlega og mun kannski koma svolítið nánar að því í máli mínu.

Í fimmta lagi er talað um að þessi breyting hafi í för með sér lækkun verðbólgu. Það er lítið rökstutt, að vonum, enda býst ég við því að þegar upp verður staðið, við skulum segja um þetta leyti næsta ár og að mál verði þá mæld dómi sögunnar, muni það koma í ljós að það markmið hafi ekki náðst. Ég býst við því að eimmitt þetta frv. sem við erum að fjalla um, söluskattsfrv., og einmitt það atriði að hafa söluskattinn þetta háan á matvælum verði sú ástæðan sem valdi því að síst náist það markmið að lækka verðbólgu.

Við höfum lifað nýliðin áramót. Skattskil og skattamál Íslendinga hafa löngum verið á baugi hjá hv. Alþingi í desembermánuði. Það eru ekki mörg ár liðin síðan hæstv. núv. fjmrh. flutti að mörgu leyti, að minni hyggju, merka ræðu í desember, það mun hafa verið 10. desember árið þar á undan, 1986, um virðisaukaskattshugmyndir sem þá voru á baugi. Við skulum ekki loka augunum fyrir því að það frv. sem við erum með til umfjöllunar er þriðja stigið af fjórum til þess að ná því markmiði fram að koma á virðisaukaskatti hér á landi. Það hefur oft verið vitnað til þessarar ræðu hæstv. fjmrh. og mig langar til þess að vitna til nokkurra kafla í henni af því tilefni að nú erum við sjálfsagt komin að lokum þessarar umfjöllunar hér.

Í athugasemdum með frv. segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Þessar breytingar koma til framkvæmda um leið og tekið verður upp staðgreiðslukerfi skatta. Með þessum aðgerðum og ákvörðun um 22% virðisaukaskatt, sem upp verður tekinn í ársbyrjun 1989, þegar gamla söluskattskerfið verður afnumið, er lokið umfangsmestu þáttunum í endurskoðun skattakerfisins. Skattlagning verður gerð einfaldari, réttlátari og skilvirkari.“ Allt eru þetta göfug og góð markmið.

Ég talaði um að þrepin hefðu verið fjögur. Fyrsta þrepið var þegar við myndun ríkisstjórnarinnar þegar söluskattur var lagður á tölvur og farsíma. Annað þrepið var þegar sérstakur 10% söluskattur var lagður á ýmis matvæli frá 1. ágúst. Og það er afskaplega áhugavert að veita því sérstaka athygli að þessi aðgerð, annað stig í skattlagningu hæstv. ríkisstjórnar frá 10. ágúst sl., er nú notað sem röksemd fyrir því í athugasemdum með þessu frv. að endilega þurfi að hækka þetta í eitt stig, 25%. E.t.v. kem ég að því síðar í máli mínu. Þriðja stigið sem talað er um í þessu sambandi er það sem við erum stödd við, að koma 25% söluskatti á nánast allar vörur. Fjórða stigið er svo upptaka virðisaukaskattsins í ársbyrjun 1989. Það er fyrirheitna landið. Það er þangað sem menn líta í dag í draumsýn og telja væntanlega að þar verði óskir þeirra allar uppfylltar.

En við skulum líta svolítið nánar á viðhorf hæstv. fjmrh. til þessa máls fyrir rösku ári. Þá var í hug hæstv. þáv. fjmrh., hæstv. núv. forsrh., að koma hér þegar á virðisaukaskatti sem þá var að prósentuupphæð 24%. Nú er stefnumiðið að vísu aðeins 22% þó að þetta millistig verði tekið fyrir árið í ár, 1988, 25% söluskattur. Við skulum athuga hvernig hæstv. fjmrh. tók þá á málinu. Hann var þá málsvari flokks síns, Alþfl., að vísu í stjórnarandstöðu og þá væntanlega einn af þeim, þess vegna, sem ræddu málin hér á hv. Alþingi en sátu ekki hjá eins og stjórnarliðar gera í dag. Hann hóf ræðu sína 10. desember á þennan hátt, með leyfi hæstv. forseta:

„Vegna ummæla hæstv. fjmrh. á þá leið að þrír stjórnmálaflokkar hafi lýst yfir stuðningi við tillögur um virðisaukaskatt vil ég taka það fram strax í upphafi máls míns að þingflokkur Alþfl. styður ekki þetta frv. Ég hef líka ástæðu til að ætla að því fari fjarri að stuðningur við þetta frv. sé víðtækur innan raða stjórnarflokkanna.“ Þarna reyndist þáv. hv. þm. og núv. hæstv. ráðherra vissulega sannspár. Þannig hef ég t.d. ástæðu til þess að ætla að þeir þm. séu allnokkrir í þingflokki Framsfl. sem geta ekki sætt sig við mörg veigamikil ákvæði í frv. Ég hef reyndar efasemdir um það þó að ekki séu þær rökstuddar að ekki sé einhugur um þessar hugmyndir í þingflokki Sjálfstfl.

Þetta reyndist allt á rökum reist hjá hv. þáv. þm. „Í því efni vek ég sérstaklega athygli á því að innan raða atvinnurekenda, einkum þeirra sem eru í forsvari fyrir minni þjónustufyrirtækjum, er verulegur uggur um það hvaða áhrif þetta frv., ef til framkvæmda kæmi, hefði á þær atvinnugreinar.“

Þetta var sagt um hugmyndir um virðisaukaskatt fyrir rösku ári. En höldum svolítið lengra, með leyfi hæstv. forseta. „Þetta segi ég strax til þess að taka af allan vafa um afstöðu okkar þingflokks vegna þess að hitt er rétt, að við erum opnir til viðræðna við aðra stjórnmálaflokka um það að taka upp virðisaukaskatt sem slíkan, sem hefur út af fyrir sig nokkra kosti umfram það söluskattskerfi sem við höfum þekkt á undanförnum árum," — en síðan segir í þessari ræðu hæstv. fjmrh.: „en þá því aðeins að sú löggjöf fullnægi mjög ströngum skilyrðum.“ Og það er þetta atriði hér í upphafi ræðu hæstv. fjmrh., þáv. þm. og stjórnarandstöðumanns, sem skiptir verulegu máli, að fullnægðum mjög ströngum skilyrðum. Hver skyldu nú þessi skilyrði hafa verið? Við komum að því nokkru síðar í ræðu hæstv. ráðherra.

Það meginskilyrði sem hæstv. fjmrh. lagði gegn því að hann gæti fylgt eða mælt með þessu frv. sem lagt var fram hér á hv. Alþingi fyrir rösku ári var sú staðreynd að skattprósentan væri of há, 24%. Þetta kemur margsinnis fram í þessari ræðu. Ég held að það sé alveg ómaksins vert að minna hæstv. núv. fjmrh. á þetta atriði vegna þess að í millistiginu í ár, 25% söluskatti, er þó alltént farið einu prósenti hærra. Ég viðurkenni að vísu fúslega að ætlunin er að lækka þetta niður í 22% um næstu áramót, en frá mér séð er það bitamunur en ekki fjár. Það er ekki nokkur einasti munur á stefnu, ekki þeirri stefnu sem hæstv. fjmrh. var að gagnrýna á þessum tíma, 10. des. 1986, og um það stendur deilan. Um það eiga menn að takast á, hina raunverulegu stefnu sem hér er lögð.

Við skulum líta svolítið nánar á ræðu hv. þáv. stjórnarandstöðuþingmanns, með leyfi forseta. Hann segir hér:

„1: því efni bendi ég sérstaklega á að það eru augljós rök fyrir því að endurskoða saman lög um tekju- og eignarskatt og um virðisaukaskatt.“ Ekki hefur það nú lukkast enn þó að það sé markmið á þessu ári. „Vegna þess að það mun ráða allnokkru um það hversu langt við viljum ganga í að aflétta tekjuskatti af launum, hvort ríkisvaldið bætir sér upp tekjumissi sinn við það með því að halda í allt of háa söluskatts- eða virðisaukaskattsprósentu eða ekki.“ Takið eftir: að halda í allt of háa söluskattseða virðisaukaskattsprósentu eða ekki. „M.ö.o.: Ef ríkisvaldið við upptöku virðisaukaskatts vill leiða í lög ákveðnar aðgerðir til tekjujöfnunar [vitaskuld hefur það verið gert í ár], sem óhjákvæmilegt virðist að gera, hefur það mikil áhrif á það í hvaða átt tekjuskattsbreytingin verður. Aflétting tekjuskatts af launum með því að hækka skattfrelsismörk í tekjuskatti mjög verulega er auðvitað partur af þeirri tekjujöfnun sem ella þyrfti að grípa til við upptöku virðisaukaskatts. Þess vegna er erfitt að taka afstöðu til annars þáttarins eins út af fyrir sig.“

Þetta er að sönnu rétt, en frekar um skattprósentuna:

„Ef spurt er hvers vegna Alþfl. er andvígur þessu frv. er rétt að tíunda þau rök í stuttu máli.

Í fyrsta lagi: [takið þið eftir því, það er fyrsta röksemdin] Prósentuálagningin, sem gert er ráð fyrir í þessu frv., er allt of há. Það eitt út af fyrir sig veldur því að frv. er með öllu óaðgengilegt. Þessi háa prósenta hefur verðhækkunaráhrif ...“ Takið eftir því, 24%, hefur verðhækkunaráhrif. 25% söluskattur núna á að hafa verðlækkunaráhrif, og ég dreg ekki nokkra dul á að ég er auðvitað með í huga tollalagabreytingarnar sem eru um 5% lækkun alveg eins og hefur gerst á sl. fjórum árum. Síðan segir hér áfram, með leyfi hæstv. forseta: „Þessi háa prósenta hefur verðhækkunaráhrif sem leiða til hliðarráðstafana og það er önnur meginröksemdin: [takið þið nú eftir, önnur meginröksemdin, hliðarráðstafanirnar] Þær hliðarráðstafanir, sem gert er ráð fyrir í þessu frv. að grípa til, þar sem aðalatriðið er meiri háttar niðurgreiðslur á hefðbundnum landbúnaðarafurðum, eru með öllu óaðgengilegar fyrir þingflokk Alþfl." Hvað var gert núna? Var verið að auka niðurgreiðslur vegna hefðbundinna landbúnaðarafurða? Auðvitað var það gert. „Við munum“ sagði þáv. stjórnarandstöðuþm. og núv. hæstv. fjmrh., „undir engum kringumstæðum fallast á þær.“ Þetta er aðeins rösklega ársgamalt viðhorf hjá þessum sama ágæta manni, stjórnmálaleiðtoga sem hefur nú fengið aðstöðu til þess að koma sínum málum fram.

Það hefur lengi verið um það rætt á meðal þm., meðal manna um allt þjóðfélagið að það skipti Íslendinga mestu að fá skattakerfi sem yrði skilvirkt. Þetta skilvirka kerfi hefur í rauninni margan dreymt um. Þegar þáv. fjmrh. og núv. hæstv. forsrh. lagði fram frv. sitt um virðisaukaskatt fyrir rösku ári þá gerði hann það auðvitað í þeim tilgangi að ná fram skilvirku kerfi, ná fram réttlátu kerfi. Við skulum heyra hvað hæstv. fjmrh. sagði um það atriði, með leyfi hæstv. forseta:

„Lítum aðeins nánar á fyrstu röksemdina, að skattprósentan sé allt of há, 24%. Rökin fyrir því að hverfa frá núverandi söluskattskerfi eru mörg. Menn segja í fyrsta lagi: Söluskattskerfið er ónýtt vegna þess hve undanþágum hefur verið fjölgað óhóflega á undangengnum árum. Þar af leiðandi er eftirlit allt í molum. Og menn eru yfirleitt á einu máli um það að söluskattsundandráttur sé mjög verulegur. En einmitt vegna þess, hve undanþágusviðið er vítt, hefur skattprósentan sjálf farið síhækkandi og er nú 25%.

Ef ætlunin er að reyna að ná einhverju samkomulagi um upptöku virðisaukaskatts verður ein meginforsendan að vera sú, þegar menn taka upp virðisaukaskatt og eru þar með að útrýma undanþágum og víkka út skattskyldusviðið, að skattálagningarprósentan lækki mjög verulega.“

Þetta átti að vera skilyrðið fyrir rösku ári, að skattprósentan lækkaði. En staðreyndin sem við stöndum nú blákalt frammi fyrir er að skattprósentan er nákvæmlega sú sama. Það er að vísu lofað 3% lækkun að ári, en það er öllum auðvitað hulið hvort það stenst eða ekki.

Í því frv. sem við erum hér að fjalla um er gert ráð fyrir því að hafa skattprósentuna hina sömu. Það er rétt að vekja athygli á því að hin raunverulega söluskattsprósenta hefur að vísu skv. lögum ekki verið nema 20%. En síðan hefur verið söluskattsauki sem hefur verið 2,5% , orkujöfnunargjald sem hefur verið 1,5% og síðan húsnæðisgjald sem hefur verið 1%. Þessi gjöld eru öll núna í gildi nema það seinasta, húsnæðisgjaldið sem féll niður vegna þess að það var tímabundið til sl. áramóta og það var þess vegna sem lækkunin varð úr 25 í 24%. Yfirleitt hefur þetta gjald verið umtalað í einu lagi og verið kallað sölugjald eða söluskattur.

Ég mun, hæstv. forseti, ekki lengja umræðuna öllu frekar. Þó vil ég koma hér að tveimur, þremur atriðum í viðbót ásamt því að mig langar til að leggja eina fsp. fyrir hæstv. ráðherra, ef hann væri hér nærhendis, en það kemur nú ekki alveg að því strax í máli mínu þannig að mér þætti vænt um að hæstv. fjmrh. yrði hér í salnum ef hann mætti vera að því þegar þar að kæmi. (Forseti: Fjmrh. mun vera genginn í salinn.) Já. (Fjmrh.: Ég fékk leyfi forseta til að fara frá í tvær mínútur.) Já. Í þessari ræðu, sem ég hef hér oft vitnað til og sem hæstv. fjmrh. flutti fyrir rösku ári, fjallar hann nokkuð um skilvirknina sem næðist með virðisaukaskatti og hann segir um það atriði m.a. þetta, með leyfi hæstv. forseta:

„Þetta vekur upp margar spurningar. Hvernig stendur á því, þegar gert er ráð fyrir því að taka upp skilvirkara kerfi, sem heitir virðisaukaskattur, að áhrif þessa, samkvæmt upplýsingum í grg. frv., eru ekki meiri en hér er talað um? Áhrifin af því að útrýma undanþágum“, taki menn nú eftir, „áhrifin af því að útrýma undanþágum og víkka út skattskyldusviðið, áhrifin af því að kerfið á að vera öruggara í innheimtu og áhrifin af því að eftirlit með innheimtu verður aukið, hvernig stendur á því að menn gera ekki ráð fyrir því að það auki tekjur ríkissjóðs um meira en 400 millj. kr.?"

Aðeins 400 millj. kr. Þetta var þann 10. desember á því herrans ári 1986. Nú höfum við lifað heilt ár í viðbót og við höfum lifað undirbúning að afgreiðslu fjárlaga, fyrstu fjárlaga þessa hæstv. fjmrh. sem hafa orðið með nokkrum eindæmum, náðu fram yfir jólahelgi. Og þá kemur það í ljós að einn meginstofninn í nýrri stefnumörkum hæstv. ríkisstjórnar, sem hefur verið smám saman að fæðast frá því á miðju sumri allt fram undir jól, allt frá því að soðningin fékk aflausn ef svo má segja og náð fyrir augum hæstv. ríkisstjórnar, þá gerist það að þetta söluskattsmál, sem er í rauninni mál málanna og kjarninn í því sem hér er um fjallað og margir hv. þm. hafa farið um mörgum orðum hér, nánast eingöngu stjórnarandstöðuþm. því að ég held að það sé leitun á því að nokkur stjórnarliði hafi yfirleitt tekið til máls um þessi efni eins og ég hef raunar áður komið að í ræðu minni. Ég man ekki til þess að nokkur einasti stjórnarliði, ef undan er skilinn hv. 2. þm. Vestf., hafi leyft sér yfirleitt að opna munn um þessi málefni og nánast enginn hefur lagt stjórninni lið í þessari umræðu sem hér hefur farið fram. Það eru ráðherrarnir og það eru frsm. nefnda sem til máls hafa tekið og þeir stjórnarandstæðingar sem hafa leyft sér síðan að fjalla um þessi mál nánast litnir því hornauga að þingsalir hafa tæmst. Það eina sem við erum þó að gera er að við erum að reyna að fjalla efnislega um málið. Og í þessari ræðu minni er ég að reyna að leiða fram álit, rétt rúmlega árs gamalt álit núv. hæstv. fjmrh. á nákvæmlega sömu atriðunum og hann sjálfur er um að véla þessa dagana og leiða yfir þjóðina með sínum hætti.

En ég hlýt að vekja athygli á því í leiðinni af því að ég er tiltölulegur nýgræðingur hér á þingi að það vekur nokkra athygli mína varðandi stjórnarliða úr öðrum flokkum stjórnarliðsins en flokki hæstv. fjmrh., þ.e. úr Sjálfstfl. og Framsfl., að það er eins og þeim komi þessi mál ekki við. Maður heyrir manna á meðal úti í þjóðfélaginu að þeir reyni gjarnan að bendla þá eðlilegu óánægju sérstaklega í sambandi við matarskattinn og þennan víðfeðma söluskatt við hæstv. fjmrh., að því er virðist í trausti þess og von um það að þær óvinsældir sem af þessu muni hljótast lendi á honum og hans flokki en ekki þeim hinum stóru flokkunum sem leggja til atkvæðin þegar hér eru gerðar upp hinar raunverulegu sakir.

Ég vildi í þessu sambandi leggja eina fsp. fyrir hæstv. fjmrh. og hún er um framfærslukostnað og framfærsluvísitölu. Í forsendum fjárlagafrv. er víða minnst á framfærsluvísitölu. — Og ég bið hæstv. fjmrh. forláts á því að nú þarf ég nauðsynlega að fá athygli hans til þess að geta lagt spurninguna fyrir hann og til þess að geta vænst svars og þá á annan veg en þann þegar ég lagði fram fsp. hér fyrir fáum dögum og hún fór um allmargra manna hendur og ég fékk síðan svar um allt aðra hluti en ég spurði um. Það kemur að vísu þessu máli ekki við. — En spurning mín er þessi:

Í forsendum fjárlagafrv. er víða tekið fram að það er gert ráð fyrir að framfærsluvísitala hækki frá meðaltali 1987 til meðaltals 1988 um 17–18%. Fyrri spurning mín er þessi: Er gert ráð fyrir því að þess áætlun um hækkun framfærsluvísitölunnar standist? Önnur spurning mín er þessi: Er það rétt sem fram kom á seinasta fundi fjvn. fyrir 3. umr. um fjárlög 1988, það var rétt fyrir kl. 3, áður en umræðan fór fram þá síðdegis, að hækkun framfærsluvísitölunnar á árinu 1988 eða þessi munur væri áætlaður 27% en ekki 17–18% eins og forsendur frv. gera ráð fyrir?

Mér finnst þetta atriði skipta verulegu máli. Ég geri ráð fyrir því að flestum sé ofarlega í huga að kjarasamningar eru lausir mjög víða í þjóðfélaginu. Viðræður fara í hönd síðar í þessum mánuði. Menn bíða þar sjálfsagt átekta vegna þeirra mála sem hér er verið að fjalla um, vegna þeirra ákvarðana sem hér er verið að taka. Ég geri mér fulla grein fyrir því að margt á sjálfsagt eftir að breytast sem jafnvel hæstv. fjmrh. getur ekki séð fyrir, en engu að síður vildi ég gjarnan fá um það skýr svör, hvort þessi mismunur, 17–18% eða 27%, hvort hann eigi í áætlunum stjórnarinnar við einhver rök að styðjast. Fundurinn sem þetta kom fram á í fjvn. var fundurinn þar sem tilkynnt var skattvísitalan, 131 stig, og það kann að skipta máli í þessu sambandi.

En að lokum þetta, hæstv. forseti. Ég vil ljúka máli mínu á því að vitna enn í ræðu hæstv. fjmrh. rúmlega árs gamla:

„Röksemdir okkar“, sagði hann á þeim tíma, „fyrir því að við getum ekki fallist á þetta frv. eru því þessar upp að telja:

1. Vegna þess að skattprósentan er allt of há.“ 24% var of hátt fyrir rösku ári. 25% er sjálfsagt í dag.

„2. Vegna þess að við tökum ekki trúanlegan talnagrundvöll frv. um það að ekki sé unnt með bættri innheimtu og niðurfellingu á undanþágum að tryggja ríkissjóði þegar af þeirri ástæðu meiri tekjur, þannig að unnt sé að lækka prósentuna og um leið að draga úr verðhækkunaráhrifum.“ — Þetta var önnur meginröksemd hæstv. fjmrh. á þeim tíma.

„4. Vegna þess að hliðarráðstafanirnar eru af því tagi að við getum ekki fellt okkur við þær.“

Beri menn síðan þessar staðhæfingar, þetta viðhorf saman við niðurstöðu dagsins í dag.

Ég hef lokið máli mínu, hæstv. forseti.