04.01.1988
Neðri deild: 45. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3541 í B-deild Alþingistíðinda. (2505)
196. mál, söluskattur
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Ég biðst forláts að hafa ekki verið alveg viðstaddur. Ég sat í hliðarsal og kom mér satt best að segja ekki til hugar að svo gagnorður og skorinorður yrði hv. síðasti ræðumaður að hann mundi ljúka máli sínu á svo stuttum tíma. En ég mun að sjálfsögðu reyna að fylgja góðu fordæmi og hafa mín orð sem hnitmiðuðust og eins fá og ég tel mér unnt. Ég hef reyndar rætt þetta mál allítarlega við tvær umræður hér í deildinni og hef ekki miklu við það að bæta.
Ég hef satt best að segja verið að vonast til, og vona reyndar enn, að hæstv. fjmrh. heiðri okkur með þátttöku í þessari umræðu áður en lýkur því að við erum nú ekki aðkreppt. Það er langt til næstu áramóta og aðrar tímasetningar af því tagi ættu ekki að hindra nú að hæstv. ráðherra geti svarað þeim fjölmörgu spurningum sem til hans hefur verið beint við fyrri umræður og tekið þátt í að rökræða ofurlítið sjálfan grundvöll þeirrar skattlagningar sem hér er lögð til.
Mér finnst það mjög miður ef hæstv. fjmrh., talsmaður hæstv. ríkisstjórnar í þessum skattamálum öllum, reynir ekki að rökstyðja betur nauðsyn þess að standa að hlutunum eins og hér er lagt til. Ég tel að flestar þær röksemdir sem færðar hafa verið fram fyrir þessari skattlagningu, á matvæli einkum og sér í lagi, séu í raun og veru fundnar, það standi ekkert eftir af því að það sé óhjákvæmilegt að grípa til jafn vissulega umdeildra og óheppilegra aðgerða eins og þeirra að leggja 25% söluskatt á öll matvæli.
Það væri einnig, herra forseti, æskilegt að fá að heyra í einhverjum talsmönnum hinna stjórnarflokkanna, t.d. fá að heyra eina dálítið mergjaða stuðningsræðu við matarskattinn frá einhverjum hv. þm. Framsfl. Ég hefði haft mjög gaman af því að heyra einhvern talsmann þeirra, t.d. hæstv. heilbrrh., halda heita hvatningarræðu um matarskattinn. Ég dreg auðvitað ekki í efa stuðning hæstv. heilbrrh., hv. 1. þm. Norðurl. e., við matarskattinn. Það hvarflar ekki að mér eitt augnablik að hæstv. ráðherrann styðji hann ekki af hellum hug, af öllu hjarta og allri sálu sinni ef ég má taka svo til orða. En það er svolítið leiðinlegt að þetta mál skuli fara hér algjörlega í gegnum alla umræðuna og það er eingöngu hæstv. fjmrh. sem til umræðu er. Þetta er auðvitað skattamál allrar ríkisstjórnarinnar. Og þó að ég hafi ekkert á móti því að hæstv. fjmrh. sitji uppi með umtalsverðan hluta af skömminni af þessu máli, þá finnst mér það ósanngjarnt að það skuli allt lenda þar. Ég tel að aðrir stjórnarliðar væru menn að meiri ef þeir kæmu upp og deildu ábyrgðinni og sökinni með hæstv. fjmrh. og væru ekki sífellt að þvo hendur sínar af öllum hlutum sem þeir óttast að þessi ríkisstjórn geri og ekki muni mælast vel fyrir.
Það er reyndar, herra forseti, sérstakt rannsóknarefni í íslenskum stjórnmálum hvernig Framsfl. tekst ævinlega að vera og vera ekki í ríkisstjórnum. Shakespeare gamli velti þessu fyrir sér á sínum tíma en það er alveg ljóst að þetta er enn sígilt viðfangsefni og spurningin er þessi: Er eða er ekki Framsfl. í ríkisstjórn? Því að það er ævinlega þannig að séu einhverjir þeir hlutir að gerast í stjórn eða rétt eftir að stjórn hefur farið frá sem Framsfl. annaðhvort situr í eða var í, þá er óðara eins og hann hafi þar hvergi nærri komið, þessi sérkennilegi flokkur. Mér segir svo hugur um að ef þeir þm. Framsfl. fara nú að funda úti um landið á næstu vikum, sem gæti hugsast, og þar beri á góma þessa matarskattlagningu, þá er ég ekki viss um að þeir ætli sér að bera fulla ábyrgð á því með hæstv. fjmrh. Einhvern veginn hef ég á tilfinningunni að það gæti gerst að einstakir hv. þm. Framsfl. þættust hafa heldur lítið nærri þessu komið. En það auðvitað dugar ekki, herra forseti. Allra síst vil ég nú láta mér detta þetta í hug vegna þess virðulega forseta sem hér stjórnar fundum.
Ég held að það verði ekkert fram hjá því litið að þetta er skattapakki hæstv. ríkisstjórnar þó að hér sé mælt fyrir honum af hæstv. fjmrh. og stjórnarflokkarnir og hver einasti stjórnarþm., sem ekki gerir þá rækilega grein fyrir afstöðu sinni, og gerir meira en það að þvo hendur sínar heldur greiðir atkvæði á móti þessu, beri þarna ábyrgð. Það er alveg nauðsynlegt að hafa þessa hluti á hreinu vegna þess að hér eru að gerast tímamótaatburðir, tímamótaatburðir í skattheimtu í landinu. Það er engin leið að horfa fram hjá því að þessi gífurlega skattlagning á lífsnauðsynjarnar eru eitthvert versta óhappaverk að mínu mati um áratugabil sem gripið hefur verið til í skattamálum í landinu.
Það er mín bjargföst sannfæring, herra forseti, að hér sé verið að stíga mikið ógæfuskref. Við vitum hvernig það er að þegar svona skattlagning er einu sinni komin á, þá fær naumast nokkur mannlegur máttur hana af tekið. Það er bara reynsla liðins tíma um nánast alla skatta, sem nokkurn tíma hafa verið lagðir á. Svo fremi sem skattstofninn gufi ekki upp eða eitthvað annað gerist þá er slíkum sköttum viðhaldið. Hér er auðvitað á ferðinni langþýðingarmesti tekjustofn ríkissjóðs þar sem er söluskatturinn, sem skilar fyrir þessar breytingar meira en helmingi af öllum óbeinum sköttum í landinu. Og óbeinir skattar skila 87% af heildarskatttekjum í landinu, þannig það eru þessi hlutföll sem menn þurfa að hafa í huga þegar menn meta hversu stórt og alvarlegt málið er sem hér er til umræðu.
Ég fór nokkuð ítarlega yfir það hér í ræðu við 2. umr. hvernig skattheimtu af þessum toga er háttað í nágrannalöndum. Ég sýndi fram á það með því að fara yfir öll aðildarríki Efnahags- og framfarastofnunarinnar að það stendur til að slá heimsmet. Hvergi á byggðu bóli í heiminum er tekin svona há skattheimta af matvörum, hvergi. Þau lönd sem næst okkur komast eru hin Norðurlöndin. Flestöll önnur aðildarríki Efnahags- og framfarastofnunarinnar eru með mun lægri eða enga skattheimtu á matvæli og aðrar helstu lífsnauðsynjar. (Dómsmrh.: Þeir hafa þá kannski einhverja aðra skatta hærri?) Segir hæstv. viðskrh. Rétt hjá honum. Ég fór nefnilega líka yfir það. Ég sýndi fram á það að óbeinu skattarnir eru í sérflokki hér á Íslandi. Í öðrum nálægum löndum vega aðrir skattstofnar mun þyngra. Því er ekki á móti mælt. Ég sýndi líka fram á og hafði reyndar áður nefnt í umræðunni að skattheimta á Íslandi í heild sinni er mjög lág. Í raun of lág. Ég tel að það standi of veikar stoðir undir rekstri velferðarkerfisins hér, þannig að ágreiningurinn er ekki um það, a.m.k. af minni hálfu, að það sé ekki nauðsynlegt að taka einhverja skatta til að standa undir samneyslunni. Spurningin er um það hvar skattarnir eru teknir, hverjir greiða þá.
Ég held að þessi skattasúpa sé einhver hrikalegasta uppgjöf sem ég hef nokkurs staðar heyrt um gagnvart því að reyna að jafna lífskjörin í gegnum skattakerfið. Kórónan á þessu sköpunarverki er auðvitað þessi skattlagning á matvæli, brýnustu lífsnauðsynjarnar. Lengra verður ekki komist í þjösnaskap í skattkerfi heldur en að skattleggja lífsnauðsynjar af því tagi í hæsta flokki. Það eru alveg hreinar línur. Það er engin tilviljun að yfirleitt er tilhneigingin í þá átt að því lægri sem laun eru í viðkomandi löndum, þeim mun minna eða ekki neitt er matvaran og aðrar lífsnauðsynjar skattlagðar. Það eru fyrst og fremst þau ríki sem allra hæstan hafa kaupmáttinn sem leyfa sér að skattleggja matvöruna. Þetta geta menn lesið og sannfært sig um ef þeir skoða til að mynda þessa skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar. Þar kemur í ljós að þau aðildarríki OECD, sem lægstan hafa kaupmáttinn, eru auðvitað með minnsta eða enga skatta af þessu tagi. Og þá skulum við ekki gleyma því að kaupmáttur tímakaups á Íslandi er til muna lægri, til mikilla muna lægri en er á hinum Norðurlöndunum og annars staðar þar sem hæstur er neysluskatturinn, og matvaran er dýrari hér, þannig að allt er þetta í óhag heimilunum í landinu og eykur vægi matvælanna og þar með matarskattsins þegar hann verður lagður á. Því held ég að það sé alveg nauðsynlegt, ef menn vilja virkilega ná utan um þetta mál og átta sig á kjarna þess, að menn hafi þessi hlutföll, þessar staðreyndir í huga.
Ég trúi því auðvitað ekki að hv. þm. stjórnarliðsins sem létu glepjast til að styðja þessa hluti hafi ekki kynnt sér þessi mál, að þeir hafi ekki vitað út í hvaða fen var verið að fara með þá, en það liggur við að manni þætti betra ef í ljós kæmi að þeir hafi einfaldlega verið plataðir og ekki vitað hvað þeir voru að gera, því að slíkt getur maður fyrirgefið þó að það sé auðvitað ekki gott til afspurnar. En hafi menn gengið að þessu vitandi vits hvað hérna átti að fara að ske, að slá heimsmet í skattlagningu á matvöru þar sem hún er hvað dýrust í heiminum og láta blekkjast til þess að trúa því að einhverjar hliðarráðstafanir, sem jafnvel er boðað að verði tímabundnar, muni slétta þessa reikninga um aldur og ævi, ja, þá eru menn mikil börn.
Það er ljóst að það stefnir allt í það, allar pólitískar aðstæður eru slíkar, að niðurgreiðslur og aðrar slíkar ráðstafanir gufi upp, hjaðni á næstu árum. Þær geta hjaðnað umtalsvert þegar á þessu ári vegna verðbólgunnar. Ég spurði eftir því hvort það væri ekki svo eins og venjulega að á fjárlögum ríkisins væri áætluð föst krónutala í niðurgreiðslur sem ekki breytist þó að verðbólgan aukist. Þar með rýrna niðurgreiðslurnar strax innan ársins að verðgildi verði ekki gripið til sérstakra ráðstafana. Það hefur ekkert komið fram hér hjá talsmönnum ríkisstjórnarinnar um að það standi til. Ekki eitt orð um það að séð verði til þess að hliðarráðstafanirnar haldi verðgildi sínu þannig að það standist á út árið. Söluskatturinn hækkar með verðbólgunni, að sjálfsögðu, en hann er lagður ofan á endanlegt verð vörunnar sem væntanlega fer upp nokkurn veginn eftir því sem verðlag þróast.
Ég tel þess vegna alveg með ólíkindum, herra forseti, hvað menn ætla að láta bjóða sér hér í trúgirni og hráskinnaleik. Það er alveg ljóst að þetta er bara málamyndaaðgerð til að taka af sárasta höggið, þessar svonefndu hliðarráðstafanir. Það stendur ekki til, það er ekki boðað að þær eigi að halda sér. Ef hér væri verið að ganga frá hlutunum með þeim hætti t.d. að það væri ríkisstjórnarsamþykkt um það að á meðan þessi ríkisstjórn sæti mundu niðurgreiðslur og aðrar slíkar ráðstafanir vega að fullu upp alla skattlagningu á matvælum, út þetta kjörtímabil ef því væri að skipta, þetta væri ríkisstjórnarsamþykkt sem allir væru skuldbundnir af, þá væri hér eitthvað pínulítið annað á ferðinni. Svo er ekki. Það er ekki stafkrókur af þessu tagi á blaði. Ég ætlaðist a.m.k. til að það væri upplýst ef svo væri. En það hefur ekki verið gert og er þó þetta mál hér til 3. umr. í seinni deild.
Herra forseti. Ég spurði hæstv. fjmrh. allmargra spurninga, bæði hér við 1. umr. og einnig við 2. umr. Hæstv. ráðherra taldi sig hafa í framsöguræðu svarað því eða efnislega útskýrt málið. Hann hefur síðan ekki tekið þátt í umræðum, hann hefur ekki svarað því hvers vegna það hefur verið gefið í skyn í þessari umræðu að Ísland væri með þessum breytingum að stefna í svipaða átt og aðrar nálægar þjóðir, þegar í ljós kemur að svo er ekki, þegar í ljós kemur að hér stendur til að fara allt aðra leið en er við lýði og er stefnt á hjá flestöllum nálægum þjóðum. Ég held að hæstv. ráðherra skuldi Alþingi skýringu á því hvers vegna þarf að hafa þetta svona á Íslandi úr því að allar aðrar þjóðir sjá sér færar aðrar leiðir, mildari leiðir í þessum efnum, annaðhvort með mjög lága eða jafnvel enga skattlagningu á brýnustu lífsnauðsynjar eins og matvöru, ungbarnafatnað og jafnvel ýmsar nauðsynjavörur fyrir heimili og fjölskyldur.
Það getur vel verið að hæstv. ráðherra finnist þetta ekki svara vert, en þetta eru nú einu sinni þær spurningar sem brenna á þjóðinni. Og af því að við höfum nú sloppið út úr þessu húsi einstöku sinnum á undanförnum vikum, þó það hafi ekki verið oft en þó nóg til þess að maður hefur hitt að máli eða heyrt í þó nokkrum fjölda fólks, þá hef ég ekki talað við einn einasta mann sem styður þennan matarskatt, ekki heyrt eina einustu rödd utan talsmanna hæstv. ríkisstjórnar hér inni á Alþingi sem styðja þessa matarskattheimtu. Mönnum finnst þetta auðvitað fráleitt. Það skilur enginn í þessu. (Fjmrh.: Forseti Alþýðusambands Vestfjarða, Pétur Sigurðsson.) Það var þó loksins dreginn fram einn maður, sem er kallað fram í úr hliðardyrum að styðji þetta og sé hrifinn af þessu. (Gripið fram í.) Já. Hæstv. ráðherrar Alþfl. þora ekki hér á mælendaskrá, en þeir gjamma hér fram í þegar þeim hentar. Ég held að þeir ættu þá að draga fram þessa ræðu og lesa hana fyrir okkur. Kannski hæstv. viðskrh. geri það. Þessi alþýðuhetja af Vestfjörðum, það má vel vera að það sé hægt að draga hana fram til þess að verja þennan matarskatt. En hann er ekki merkilegri fyrir mér. Og ég ítreka það og endurtek að ég hef ekki hitt einn einasta mann — ég hef ekki hitt þennan foringja þarna að vestan, en enginn maður sem við mig hefur talað eða ég rætt við hefur stutt þessar aðgerðir. Eðlilega. Þetta er auðvitað svo fráleitt. Það er alveg leitun að snillingum sem hægt er að fá til þess að skrifa upp á þetta og samþykkja þetta eins og að þessu er nú staðið og eins og þessi prósenta er tilhöfð.
Herra forseti. Ég gæti út af fyrir sig farið yfir þetta allt saman aftur með hæstv. fjmrh. ef hann léti nú svo lítið að vera hér nálægur, en ég veit ekki hvort það hefur mikið upp á sig. Staðreynd málsins er sú að rökin fyrir matarskattinum eru hrunin, þau voru aldrei nein annað en skattagleði. Það voru aldrei nein rök annað en málamyndarök. Það eru engin rök fyrir því að það þurfi að vera á Íslandi skattakerfi sem er einstakt í heiminum, að við Íslendingar séum þeir aumingjar og skussar að við getum ekki innheimt skatta án þess að leggja þá án undantekningar yfir allar lífsnauðsynjar. Það þýðir ekkert að bera svoleiðis á borð fyrir menn þegar hið gagnstæða er gert eiginlega alls staðar annars staðar í heiminum. Eða hvers konar dómur er það þá um íslensku þjóðina og íslenska embættismenn, að það sé ekki hægt annað en hafa þetta svona hér? Það þýðir auðvitað ekki. Og hún verður þeim mun meira áberandi, herra forseti, eftir því sem umræðu þessari heldur fram og hún kemur nær sínum endalokum hér á þinginu, sú vonda staða, sú veika staða, gjörtapaða staða sem þetta matarskattamál ríkisstjórnarinnar er í. Það reynir enginn að verja það. Það reynir enginn að svara fyrir þá. Hæstv. ráðherrar gera í mesta falli það að gjamma hér pínulítið fram í. Aðrir þm. stjórnarliðsins reyna ekki að standa fyrir þessu máli. Þeir reyna það ekki. Þeir forða sér ævinlega úr þingsalnum um leið og matarskattarnir eru teknir á dagskrá. Þeir vilja ekki láta sjá sig inni á meðan verið er að ræða þessa hneisu.
Og að það skuli vera örlög Alþfl. að standa fyrir þessum hlutum, það er náttúrlega svo makalaust, það er svo yfirgengilegt hvernig búið er að fara með þessa aumingja menn í samstarfinu, að sitja uppi með matarskatta og hafa ekki komið neinu fram í þeim hugmyndum sem þeir voru með í skattamálum að öðru leyti. Hvar eru eignarskattar? Hvar eru skattar á fjármagnstekjur? Hvar er stóreignaskatturinn? Hvar eru öll afrekin af þessu tagi? Allt gleymt og grafið.
Svo er Alþýðublaðið að væla um það við og við að það standi nú til að fara í þetta svona í framhaldinu. Mér er sem ég sjái það. Niðurstaðan er auðvitað fengin. Alþfl. gaf eftir, lét undan, lagði á matarskatt. Þeir voru alveg ánægðir með það í Sjálfstfl., þeir höfðu ekkert á móti því meðan fyrirtækin og peningamennirnir voru látnir í friði. Þannig hefur það ævinlega verið og verður sjálfsagt lengi enn á þeim bæ. Ég býst ekki við að matarskatturinn eigi að bitna sérstaklega á Sambandinu úr því að framsókn hefur ekki gert neitt í því máli og þá eru þeir náttúrlega ánægðir, þvo bara hendur sínar og eru fjarri þingsölum þegar málið er til umræðu. Þetta er bara einhver aumingjalegasta niðurstaða sem ég hef nokkurn tíma horft upp á í stjórnarsamstarfi, og hefur maður þó ýmislegt séð síðustu árin, það verð ég að segja. Svo eiga bara hæstv. ráðherrar Alþfl., sérstaklega hæstv. fjmrh., að dingla í snörunni og hinir hlaupa í burtu með stólinn undan honum með sér.
Nei, þetta er heldur aumingjalegt. En það skal lengi í minnum haft, sérstaklega úti um byggðir landsins, það afrek framsóknarmanna að hjálpa til við það í ríkisstjórn að koma þessum matarskatti á. Ég get lofað hv. þm. og hæstv. ráðherrum Framsfl. því að sá sem hér stendur mun ekki draga af sér við það þegar málefni íslensks landbúnaðar, matvælaiðnaðar og kjör íslensks almennings koma til umræðu á næstu mánuðum að þætti Framsfl., þó hann vilji gleyma honum sjálfur, skal til haga haldið í þessu máli. Það mun varla takast að falsa söguna svo harkalega að það verði ekki almenn og útbreidd skoðun á Íslandi að Framsfl. hafi þó verið í þessari ríkisstjórn og líka í þeirri síðustu. En svo er nú komið að formaður þess flokks þvær nú sem ákafast hendur sínar af ýmsum þeim hlutum sem hann hafði forgöngu um sem forsrh. síðustu ríkisstjórnar, sbr. vaxtafrelsið. Nú ræðst hæstv. utanrrh. með offorsi á háa vexti og upplausn á peningamarkaðnum sem er bein afleiðing aðgerða sem hann hafði forgöngu um sem efnahagsmálaráðherra, alías forsætisráðherra hæstv. síðustu ríkisstjórnar.
Þessar staðreyndir er ástæða til að rifja upp og ef maður væri að ræða hér við Alþfl. svolítið meira persónulega en kannski er við hæfi á þingfundi, þá væri gaman að spyrja hæstv. ráðherra: Hafa þeir engar áhyggjur af því að þeir verði svolítið grátt leiknir í þessum leik, það standi til að fara dálítið illa með þá? Ég held nefnilega að öll þjóðin sé komin með það á tilfinninguna að þetta sé einhver versta útreið sem nokkur flokkur hefur nokkurn tíma fengið í ríkisstjórn að láta hann um öll skítverkin á meðan hinir hlaupa bara í burtu, þvo hendur sínar. Auðvitað hefur maður vissa samúð með þessum vesalings mönnum í Alþfl. sem rata í þessa ógæfu, það er ekki hægt að neita því.
Jæja, herra forseti. Ég ætla að setjast niður og bíða þess og sjá hverju fram vindur í umræðunni, hvort hæstv. fjmrh. tekur til máls. Það væri gaman að fá að heyra það.
Ég ætla aftur, bara svona fyrir þingtíðindin, að ítreka óskir mínar um það að hingað komi einhver framsóknarmaður og segi nokkur vel valin orð til stuðnings matarskattinum og auðvitað einhver hv. þm. Sjálfstfl., kannski hv. þm. Austf., sem hér er nýsestur inn, Kristinn Pétursson, taki það að sér. Það væri karlmannlega gert af honum ef hann tæki nú það verkefni að sér fyrir flokkinn að koma hér upp og segja nokkur eldheit orð um ágæti matarskattanna.
Þessi tímamót eru döpur byrjun á árinu 1988, það verð ég að segja, herra forseti. Ég ætla að vona að það ár beri ánægjulegri hluti í skauti sér fyrir almenning á Íslandi en þessi byrjun hér á hinu háa Alþingi gæti bent til þar sem verið er að ræða matarskatta.