04.01.1988
Neðri deild: 45. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3559 í B-deild Alþingistíðinda. (2510)
196. mál, söluskattur
Ingi Björn Albertsson:
Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessa umræðu mikið enda tel ég að flest það sem fram þarf að koma undir þessu máli sé þegar komið fram og það oftar en einu sinni þó að það sé að verða algild regla að það þurfi að særa ráðherra sem aðra stjórnarliða upp í pontu til að svara.
Ég vildi kannski í upphafi, með leyfi forseta, fá að vitna í hv. fyrrv. þm., Björn heitinn Jónsson, hvernig hann hóf umræðuna um söluskatt árið 1960, maður krötum vel kunnur. Hann sagði: „Herra forseti. Það eru ekki mörg orð höfð í framsögu fyrir þessu máli, enda má með vissum hætti segja að þetta frv. sé óhreina barnið stjórnarflokkanna. Það verður að vísu ekki synjað fyrir faðernið, en glöggt má þó finna að allir tiltækilegir tilburðir eru hafðir í frammi til þess að komist verði hjá því að meira beri á því en ýtrasta nauðsyn krefur, svo tilgangslaust og raunar barnalegt sem slíkt þó er, þar sem eðli þessa afstyrmis er það að þrengja kosti almennings í landinu dag hvern árið um kring og minna menn þannig á tilvist sína, en þannig hefur þetta verið um þetta mál frá upphafi.“
Þessi orð, sem voru mælt fyrir 27 árum rúmum, eru í fullu gildi í dag og gætu alveg eins verið sögð fyrir nokkrum dögum þegar þetta frv. var lagt fram. Hv. fyrrv. þm. Björn Jónsson talar um óhreina barnið stjórnarflokkanna og ég held að nánast öll þjóðin sé sammála því að matarskattsbletturinn á núverandi ríkisstjórn er hið óhreina barn sem hann talar um. Hann talar líka um að það verði að vísu ekki synjað fyrir faðernið. Það gæti að vísu reynst erfiðara nú þar sem ég tel að faðernið sé ekki eins skýrt í þessu dæmi eins og þá var því ég ég held að ábyrgð Sjálfstfl. í þessu máli sé meiri en fram hefur komið hingað til og má kannski álykta sem svo að það sé ein af ástæðunum fyrir því að varla sést sjálfstæðismaður hér í sölum nú á dögum. Svona fljótt á litið þá sé ég bara einn í salnum nú. (AG: Er það ég?) Nei, það eru þessir nýmóðins sjálfstæðismenn sem ég er að tala um.
Herra forseti. Ég get tekið undir nánast hvert orð sem hv. þm. Kristín Einarsdóttir sagði hér áðan um þingstörfin og mætingar hjá þingherrum stjórnarliðsins. Þær eru til háborinnar skammar og vart til eftirbreytni fyrir nýliða. Ég hvet forseta — sem reyndar hét því fyrir nokkrum dögum að hann skyldi taka á þessu máli þegar fram kom að yfir helmingur þm. var í burtu án leyfis en ég sé að það hefur ekki dugað til — til að taka málið upp að nýju.
Ég vildi gjarnan spyrja hæstv. fjmrh. og vona kannski að hann svari í lokin nokkrum orðum um þessa nýársgjöf sem hann er að gefa íslensku þjóðinni núna með matarskattinum. Mig langar að spyrja hann í fyrsta lagi hvernig hann ætli að haga eftirliti með innheimtu í framtíðinni sem nú á að verða stórhert og stórbætt. Hvernig sér hann það fyrir sér?
Mig langar að spyrja hann hvernig hann ætli að fylgjast með lögfræðingum og endurskoðendum og öðrum slíkum sem vinna inni á stofnunum en vinna ekki sjálfstætt. Hvernig á að gera upp söluskattinn við þá?
Mig langar að spyrja hann hvort hann vilji lofa íslensku þjóðinni því hér í pontu að þær hliðarráðstafanir og niðurgreiðslur verði verðtryggðar og fylgi launum og öðrum vöruhækkunum?
Ég vil spyrja hann hvort hann vilji staðfesta það hér, þó að viðurkennt sé að 22% virðisaukaskattur verði allt of hár, og lofa íslensku þjóðinni því strax, hér og nú, að hann verði ekki hærri? Enda segir í athugasemdum við frv., orðrétt: „Með þessum aðgerðum og ákvörðun um 22% virðisaukaskatt sem upp verður tekinn ...“ o.s.frv. Þarna er staðhæft að hann verði 22%. Getur hann lofað íslensku þjóðinni að hann verði ekki hærri? Auðvitað á hann að vera lægri samkvæmt fyrri ummælum hans sem mikið hefur verið vitnað í hér í umræðum.
Þá vil ég spyrja hann í framhaldi af því sem fram kemur hér í athugasemdum við frv. Þar segir: „Þannig hefur skattsviðið smám saman verið að þrengjast, en það hefur óhjákvæmilega leitt til hækkandi skatthlutfalls.“ Þarna er hann að tala um núgildandi söluskattskerfi. Hvernig stendur þá á því þegar skattstofninn hefur verið víkkaður eins mikið og raun ber vitni að skatthlutfallið fer enn hækkandi?
Þá vil ég spyrja hann hvernig hann fái það út að kaupmáttur launa haldist þegar yfir dynja daglegar hækkanir á öllum kostnaðarliðum, síauknar skattbyrðar á almenning, síauknar skattbyrðar á fyrirtæki sem valda því að það verður ekki hægt að greiða þau laun sem krafist verður, væntanlega, í komandi kjarasamningum. Hvernig á fjölskylda, venjuleg barnafjölskylda, sjúkir eða aldraðir, að kljúfa þetta? Má nefna sem dæmi um barnafjölskyldu að samkvæmt Hagtíðindum, gefnum út í nóvember 1987, hækkar t.d. mánaðargjald á leikskóla frá nóvember 1986 til nóvember 1987 um 60%, á dagvistunarheimili hækkar það um 52%, strætisvagnaferðir um 43%, klipping um 57% o.s.frv.
Borgarafl. hefur lagt fram brtt. við þetta frv. á þskj. 466. Fyrsta tillagan sem flokkurinn gerir er við 3. gr. Þar er gerð tillaga um þá breytingu að á eftir 22. tölul. A-liðar komi nýr liður. Þetta tekur á matarskattinum og þarna er farið fram á að felldur verði niður söluskattur á fiski og fiskmeti, kjöti og unnum kjötvörum, mjólk og mjólkurafurðum, eggjum, brauði, grænmeti og ávöxtum.
Farið er fram á þá breytingu að við 14. tölul. B-liðar sem hljóðar svo: „Aðgangseyrir að íþróttasýningum, íþróttamótum, sundstöðum og skíðalyftum“ bætist: „gufubaðstofum, nuddstofum, heilsuræktarstofum, útisamkomum og að sýningum á íslenskum kvikmyndum," eins og var áður. Fyrir þessu öllu er búið að tala og þarf ekki að hafa lengra mál um það.
Við 4. gr. er lagt til í fyrsta lagi að síðasti málsliður 7. tölul. falli niður. Þetta er sá tölul. sem tekur á hinni margfrægu byggðastefnu Alþfl., þ.e. afruglaranum. Er satt að segja ótrúlegt hvernig heill flokkur reynir að verja það að gefa eftir söluskatt á afruglurum þegar hann er lagður með fullum þunga á matarnauðsynjar fólksins í landinu. Má reyndar spyrja hvað vaki þarna fyrir hæstv. ráðherra, hvers vegna hann þrjóskast við að taka þessa undanþágu úr gildi. Ég hef spurt hvaða tengsl séu þarna á ferðinni, hvort þau séu flokksleg eða fjölskylduleg. Væri athyglisvert að fá að heyra svör við því. Ráðherra segir að Ríkisútvarpið hafi sín áskriftargjöld. Það hefur náttúrlega Stöð 2 alveg jafnt og Ríkisútvarpið og til að upplýsa ráðherrann eru það nákvæmlega 1250 kr. á mánuði. Þá má líka spyrja og hefur reyndar oft verið spurt þannig og hef ég m.a. gert það: Hver eru raunverulegu rökin fyrir því að ekki er hægt að hafa fleiri en eitt skattþrep? Hér var talað um í upphafi, eða því var alla vega fleygt, að matarskatturinn ætti að vera sennilega um 17%. Úr 10% fór hann reyndar upp í 25%, sem er 150% hækkun. Það má spyrja hvers vegna þetta er. Er þetta vegna lélegs eftirlits sem var?
Einföldunin verður ekki séð með góðu móti og væri fróðlegt að fá skýringu á því í hverju hún felst. Ég held að ef ráðherra hefði í raun og veru viljað fá einföldun hefði hann einfaldlega sett þetta upp í 100%. Þá væri ekkert mál að reikna þetta út.
Hvar eru allir milljarðarnir sem voru týndir eða voru í skattsvikunum um árið? Nú er reiknað með að þetta skili sennilega um 500 millj. kr. Það var talað um 2–3, ef ekki 4 milljarða. Hvar eru þeir í dag? Af hverju skila þeir sér ekki í þessu stórbætta kerfi sem verið er að tala um?
Síðasta brtt. sem Borgarafl. gerir er um að 19. tölul. 4. gr. orðist svo: „Gjöfum til björgunarsveita, svo og til mannúðar- eða líknarstarfsemi og menningarmála.“ Þarna er bætt við „menningarmála“ og trúi ég því ekki að menn geti mælt á móti því svo menningarglaðir sem þeir eru.
Herra forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni en ég vænti þess að fá svör við þeim fjölmörgu spurningum sem ég hef lagt fram. Annars á ég seinni umferðina eftir til að endurtaka þær ef í það fer.
Núna rétt í lokin fór hv. þm. Óli Þ. Guðbjartsson í gegnum ræður hæstv. fjmrh. síðan í fyrra sem og margir hafa gert. Og ég vil að lokum vitna í orð ráðherra sem ég ætla að biðja hann að muna alla tíð: „Menn verða að hafa pólitískt þrek til að vera sjálfum sér samkvæmir," hæstv. ráðherra.