04.01.1988
Neðri deild: 45. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3577 í B-deild Alþingistíðinda. (2513)

196. mál, söluskattur

Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):

Herra forseti. Hv. samþm. mínir á Norðurl. e., hv. 6. þm. og hv. 4. þm. kjördæmisins, hafa báðir beint til mín fsp. í þessum umræðum og ég mun að sjálfsögðu ekki skorast undan því að svara þeim. Ég hef yfirleitt reynt að verða við því hafi verið beint til mín einhverjum athugasemdum eða fsp. að koma hér upp og svara því.

Hv. 4. þm. Norðurl. e., sem því miður er ekki hér inni lengur við umræðuna, spurði um afstöðu mína til þessa frv. sem hér er til umræðu, um afnám undanþága og einföldunar á söluskattskerfinu. Þó að hann sé ekki hér þá mun ég reyna að svara þessum spurningum. Ég er að sjálfsögðu samþykkur og stuðningsmaður þessa frv. og ber þar með einnig á því ábyrgð ekki síður en fjmrh. Þetta frv. er flutt sem stjfrv. og það er stutt af þm. stjórnarflokkanna. Þetta veit hann auðvitað og þarf ekki að spyrja um. En ef honum er það ljúft að fá það hér fram í þessum ræðustóli, þá er auðvitað sjálfsagt að segja það hér sem þó allir vita og öllum er ljóst.

Ég er sannfærður um það að þetta söluskattskerfi, sem hér er verið að tala um, er miklu einfaldara og verður miklu skilvirkara en það sem við búum nú við, en mér er líka ljóst að í þessu sambandi verður ekki bæði haldið og sleppt frekar en í svo mörgum öðrum málum sem við þurfum að takast á við. Það er auðvitað auðvelt að finna, tína til og benda á ýmsa þætti sem við kannski gjarnan vildum hafa eitthvað öðruvísi en þeir eru en við verðum að sætta okkur við til þess að ná fram öðrum þeim sjónarmiðum sem við teljum mikilvæg í þessu sambandi.

Ég fullyrði að þetta muni bæta innheimtuna og ég hef reyndar marghaldið því fram að eldra kerfi hafi verið orðið ónýtt og lagfæring hafi verið nauðsynleg, ekki bara á söluskattskerfinu, heldur einnig þeim frv. öðrum sem hér voru til umfjöllunar fyrir áramótin og eru nú orðin að lögum, um tolla og vörugjald. Allt hangir þetta nokkuð saman eins og fram kom hér hjá hv. síðasta ræðumanni.

Þetta skattakerfi var orðið ónýtt, m.a. fyrir tilstilli stjórnvalda með ýmiss konar undanþágum og undanþáguheimildum sem veittar hafa verið og breytingar sem gerðar hafa verið á undanförnum árum. Eitt sinn var söluskattur á flestum tegundum matvæla, en niðurfelling og/eða undanþágur frá þeim ákvæðum á sínum tíma voru í raun eitt skrefið að því að ónýta þetta söluskattskerfi í því formi sem það er nú orðið. Ég hef heyrt að margir hv. þm. telja þetta léttvæg rök og kalla það uppgjöf við skattheimtu, uppgjöf stjórnvalda við að innheimta þá skatta sem á eru lagðir. Í þessu eru vissulega nokkur rök og þetta er að mörgu leyti rétt. En þetta eru hins vegar bara staðreyndir sem hv. þm. vita vel um. Og báðir þeir ágætu þm. sem hér beindu spurningum til mín, hv. 4. og hv. 6. þm. Norðurl. e., vita það af reynslu undanfarinna ára hvernig fyrrv. hæstv. fjármálaráðherrum hefur gengið að bæta söluskattsinnheimtuna. Þetta hafa verið fjmrh. sem þessir ágætu þm. hafa annaðhvort stutt eða þá að það hafa verið ráðherrar úr þeirra eigin flokkum, þ.e. flokkum hv. þm., og þeim er alveg ljóst að barátta þessara fjármálaráðherra við þetta söluskattskerfi og innheimtu á álögðum söluskatti hefur ekki verið auðveld og þess vegna er nauðsynlegt að grípa til aðgerða.

Til þess að lina þær álögur sem við þetta koma á þjóðfélagsþegnana hafa niðurgreiðslurnar verið stórauknar eins og hér hefur reyndar margkomið fram í þessum umræðum. Sú niðurgreiðsla leiðir t.d. til þess að það verður engin hækkun á ýmsum mikilvægum neysluvörum.

Bætur hafa líka verið hækkaðar. 280 millj. kr. er varið til hækkunar á tryggingabótum almannatryggingakerfisins. Það er nú svo í janúarmánuði eftir að tekjutrygging hefur verið hækkuð um 8% að þeir bótaþegar, sem fullar bætur fá frá þessu tryggingakerfi okkar og ekki hafa tekjur annars staðar frá heldur en frá almannatryggingakerfinu, grunnlífeyri, fulla tekjutryggingu og fulla heimilisuppbót, hafa fengið yfir 40% hækkun frá janúar 1987 til þeirra upphæða sem greiddar eru út nú í janúar 1988.

Greiðslur sjúkratryggðra fyrir lyf og læknisþjónustu voru nokkuð dregnar inn í umræðurnar fyrr um þetta frv. Það er vissulega rétt að þær greiðslur hafa verið hækkaðar með reglugerð nú nýlega. Út af fyrir sig á það ekkert skylt við söluskattinn og það mál sem hér er til umræðu, en af því að það var dregið inn í umræðuna áður þá leyfi ég mér að fara um það örfáum orðum. Þessar greiðslur eru ekki nýjar. Það er nokkuð gömul ákvörðun að þeir sem þurfa að njóta læknisþjónustu og lyfja greiði ákveðið grunngjald fyrir þessa þjónustu. Hún hefur hækkað aðeins einu sinni á ári og þá auðvitað verða þær upphæðir nokkuð háar þegar þær eru teknar í einu stökki frekar en ef þær væru látnar fylgja verðlagsþróun oftar á árinu. En þó var að þessu sinni þess gætt að þær greiðslur sem elli- og örorkulífeyrisþegar inna af hendi hækkuðu verulega miklu minna en almennt var og sumar sáralítið eða nánast ekki neitt, þrátt fyrir það að þeir bótaþegar sem fullar bætur fá frá tryggingakerfinu, eins og ég nefndi áður, hafa þó fengið hækkun um og yfir 40%.

Hv. 6. þm. Norðurl. e. spurði um eftirlit með innflutningi matvæla og hvaða vinnubrögð væru notuð af hálfu heilbr.- og trmrn. við það eftirlit. Hann sagði hér í umræðunum áðan að hann hefði reyndar spurt tvisvar sinnum um þetta áður og ekki fengið neitt svar. Ég heyrði spurningar hv. þm. við 2. umr. en eins og hann auðvitað man og við öll sem hér vorum þá lauk þeim skyndilega með samkomulagi þannig að ekki var svigrúm til svara í þeirri umræðu. Og hafi hann spurt þessara spurninga líka við 1. umr. þá verð ég að játa það að ég hef sennilega ekki verið viðstaddur. Ég vil þó ekki taka til mín sérstaklega neinar ásakanir frá ýmsum hv. þm. um það að ég hafi verið fjarverandi við umræður því að almennt held ég að ég sitji hér ekki síður en ýmsir aðrir og reyni að vera við umræður í hv. deild og sameinuðu þingi a.m.k. til jafns við marga aðra hv. þm., hvort heldur þeir eru stjórnarliðar eða stjórnarandstæðingar.

Það er út af fyrir sig spurning hvort þetta á erindi hér inn í umræðuna um söluskatt, en þar sem þessu var beint til mín þá vil ég segja hv. þm. og öðrum sem áhuga hafa á, ég þykist nú reyndar vita að hv. þm. sem spurði viti það, að eftirlit þetta er ekki eingöngu á hendi heilbrrn. Eftirlit með hættulegum smitsjúkdómum sem geta valdið smithættu í búfénaði og gróðurhúsaframleiðslu er í höndum landbrn. og að hluta til yfirdýralæknis, en eftirlit það er varðar manneldismál er á vegum Hollustuverndar ríkisins og þar með tilheyrandi heilbrrn.

Ég er ekki í nokkrum vafa um það að þetta eftirlit þarf að styrkja og bæta. Það þarf kannski fyrst og fremst að koma í veg fyrir skörun á milli þessara ráðuneyta og draga úr þeirri hættu að hver ætli öðrum eða skýli sér á bak við það að þetta sé hlutverk annarra. Að mínu frumkvæði var fyrir nokkrum vikum haldinn fundur í heilbrrn. með fulltrúum beggja þessara ráðuneyta og þeirra aðila sem þeim tilheyra og eiga að sjá um þetta eftirlit. Á þeim fundi var t.d. yfirdýralæknir mættur og fulltrúar frá Hollustuverndinni þar sem við ræddum um það hvernig þessu mætti koma fyrir og hvað þyrfti að gera til þess að styrkja og bæta þetta eftirlit. Sú vinna er sem sagt í gangi.

Einnig er í athugun hvernig bæta megi eftirlit með innflutningi ýmissa annarra matvæla sem kunna að innihalda efni svo sem rotvarnarefni, sem ekki eru leyfð í neysluvörum hér á landi. En allt kostar þetta fjármuni og mannafla og við heyrum líka stundum talað um það að ekki megi þenja út kerfið og þessar eftirlitsstofnanir okkar eins og Hollustuverndin og Vinnueftirlitið og ýmsar fleiri þenjist út óátalið og óviðráðanlega, en ég vonast þó til þess að geta komið á betra eftirliti hvað þetta varðar.

Eftirlit með geislavirkni hefur því miður verið mjög ófullkomið og af skornum skammti hér hjá okkur Íslendingum en það stendur nú til bóta. Þetta hefur reyndar ítrekað verið í umræðunni og komið fram í umræðum hér á hv. Alþingi í haust eða fyrri hluta vetrar þegar rætt hefur verið um mengunar- og umhverfismál, og á kannski betur heima í þeirri umræðu. Þar hefur komið fram að Geislavarnir ríkisins hafa verið vanbúnar til þess að framfylgja þessu eftirlitshlutverki sínu. En með stuðningi Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar stendur það nú mjög til bóta á þessu nýbyrjaða ári, svo og með fjárveitingum á nýsamþykktum fjárlögum fyrir þetta ár sem gera stofnuninni kleift að tækjavæðast og ráða til sín sérfræðiþekkingu og þjónustu, þannig að þetta eftirlit stendur því einnig mjög til bóta svo sem eftirlit með öðrum innfluttum matvælum.

Þær reglur og vinnuaðferðir allar eru nú í athugun og endurskoðun í samráði við landbrn. svo sem ég hef áður greint frá. Ég vonast til að þetta geti talist fullnægjandi svar við spurningu hv. þm.