05.01.1988
Neðri deild: 46. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3587 í B-deild Alþingistíðinda. (2524)
196. mál, söluskattur
Fjármálaráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):
Herra forseti. Eins og fram kom í ræðu minni í gærkveldi er þessi tillaga efnislega óþörf. Ástæðurnar fyrir því eru þær að í texta þessara laga er óbreytt orðalag frá upphafi vega úr söluskattslögum og að þessum hlutum, heimildum að því er varðar skip og búnað fyrir skip, er vikið bæði í 9. lið sömu greinar og í 4. gr. þessara laga og á grundvelli 4. gr. er í gildi og hefur lengi verið í gildi reglugerð sem tekur af tvímæli um að búnaður fyrir skip er undanþeginn söluskatti svo sem verið hefur þannig að samþykkt frv. eins og það liggur fyrir felur ekki í sér neina breytingu af neinu tagi á framkvæmd málsins eins og það hefur verið að undanförnu. Þess vegna er þessi till. óþörf og ég segi nei.