05.01.1988
Neðri deild: 46. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3588 í B-deild Alþingistíðinda. (2529)

196. mál, söluskattur

Ragnhildur Helgadóttir:

Herra forseti. Ég hef tilhneigingu til að bætast í þann hóp þm. sem hefur fyrirvara á atkvæði sínu. Mér þykir í raun og veru það vera til bóta að breyta þessu ákvæði á þann veg sem hv. þm. Hreggviður Jónsson leggur til. Þess vegna treysti ég mér ekki til að standa að því að fella till. Ég tel að hér sé ekki um að ræða meiri háttar pólitískt mál eða breytingu á pólitískri afstöðu eða afstöðu til ríkisstjórnarinnar. Þess vegna segi ég já við þessari tillögu.