05.01.1988
Neðri deild: 46. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3588 í B-deild Alþingistíðinda. (2531)
196. mál, söluskattur
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Ég tel það augljóst mál að staða hæstv. fjmrh. er að slíkri brtt. felldri harla afkáraleg við að framkvæma þann vilja Alþingis, sem þó er eða virðist vera fyrir hendi, að endurgreiða söluskatt í þessum tilvikum sem hér um ræðir. Ég tel augljóst mál að það er eðlilegra að ganga frá lögunum með þeim hætti að þetta ákvæði sé eins og brtt. Hreggviðs Jónssonar gerir ráð fyrir, hv. 11. þm. Reykn. Ég bendi á þær takmarkanir og þau skilyrði sem hæstv. fjmrh. á að setja í tengslum við þær heimildir sem veittar yrðu með þessum tölul. 3. gr. Ég segi því já, en vegna atkvæðaskýringar hv. formanns fjh.- og viðskn. hlýt ég að spyrja: Hvenær kom hv. fjh.- og viðskn. saman til þess að taka á þessu? (Iðnrh.: Atkvæðaskýring?) Ég er að fylgja í kjölfar á formanni fjh.- og viðskn. sem gaf hér skýringu og skýrði frá störfum meiri hl. fjh.- og viðskn. varðandi þetta efni ef iðnrh. vildi leyfa mér að ljúka atkvæðaskýringu minni og hætta að gjamma fram í eins og hans er vani. Getur forseti þaggað niður í iðnrh.? (Forseti: Ég vil biðja hv. þm. að hafa hljóð og ég vil minna hv. ræðumann á að hér er aðeins leyfilegt að gera grein fyrir atkvæði sínu, en aðrar umræður rúmast í ákvæðum um þingsköp.) Ég mun þá kveðja mér hljóðs um þingsköp að lokinni atkvæðagreiðslu. (Forseti: Að sjálfsögðu er ekki leyft að ræða um þingsköp undir atkvæðagreiðslu.)