05.01.1988
Efri deild: 49. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3641 í B-deild Alþingistíðinda. (2558)

196. mál, söluskattur

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Það hefur bersýnilega verið þörf á þessari 7. umr. um þetta mál í þessari deild því enn þá einu sinni kemur hæstv. fjmrh. og heldur því fram að verðlagsforsendur þær sem hann byggi á hafi ekki verið vefengdar. Ég lýsi því yfir að ég véfengi þessar forsendur. Ég segi: Kjör láglaunafólks versna verulega við þessa breytingu. Og ég segi í öðru lagi: Þær verðbreytingar sem verðbólguspár ríkisstjórnarinnar byggja á munu ekki skila sér til lækkunar gagnvart almenningi í landinu. Ég hef enga trú á því og ég ber ekkert traust til verðlagsyfirvalda hæstv. viðskrh. í þessu efni. Ég hef enga trú á því að þetta skili sér. Það liggur fyrir að talsmenn stjórnarandstöðuflokkanna og aðrir þeir sem hafa lýst andstöðu við þetta frv. hafa vefengt þetta og þeir gera það. Og það er alveg sama hvað hæstv. fjmrh. tyggur oft yfirlýsingar sínar í þessu efni. Þær munu engu breyta. Við skulum athuga hvað kemur upp úr talningunni hjá Hagstofunni og verðlagskönnun hennar þegar verður farið að skoða þau mál síðar á þessu ári, 1988. Við skulum fylgjast með því og við skulum athuga hver niðurstaðan verður. Hún verður ekki sú að þær skili sér í þágu láglaunafjölskyldnanna breytingarnar sem hér er verið að tala um.

Í annan stað er alveg hlálegt að heyra það endurtekið einu sinni enn við 7. umr. málsins í þinginu að þetta skipti sáralitlu máli t.d. gagnvart kjörunum í landinu í heild. Það er alveg ljóst að hjón sem hafa 40 000 kr. fyrir sig að leggja og eyða 25 000 kr. í mat, svo ég nefni heimsfræga matarútgjaldatölu sem hæstv. fjmrh. ætti að kannast við, koma miklu harkalegar út úr þessum breytingum en t.d. hjón eða fjölskylda sem eyðir 25 000 kr. í mat á mánuði en hefur 200 000 kr. á mánuði í tekjur. Það er augljóst mál að þau síðarnefndu fara betur út úr þessari kerfisbreytingu. Hagur þeirra batnar. Hin fyrrnefndu fara verr út úr þessari kerfisbreytingu.

Hagur þeirra versnar. Fólk verður að borða. Það má segja að það séu í raun og veru einu rökin sem hafa heyrst fyrir þessum matarskatti að hér sé um að ræða alveg óhjákvæmilegan skattstofn sem ekki sé nokkur leið að svíkja undan. Og það er rétt. Menn verða að éta. Það er það sem hæstv. ráðherra sér. Það er jafnaðarstefnan. Matarskatturinn.

Hitt atriðið sem ég vil sérstaklega nefna snýr að niðurgreiðslunum. Það stendur þannig í dag að það er tiltekin upphæð til niðurgreiðslna. Það er gert ráð fyrir að þessi upphæð verði óbreytt allt árið 1988 hver sem verðbólgan verður. Það segir sig alveg sjálft að þetta þýðir að í lok ársins 1988 verða menn farnir að innheimta söluskatt af mjólk, af kindakjöti og af osti. Tökum dæmi af vöru sem kostar 100 kr. 20 kr. eru niðurgreiddar í dag. Í lok ársins kostar þessi vara miðað við 25% verðbólgu 125 kr. Áfram verða 20 kr. í niðurgreiðslur. Það þýðir að það er farið að taka 3–5 kr. í matarskatt af þessum vörum. Það er bersýnilegt að hæstv. fjmrh. hefur haft Framsfl. undir í þessu máli, svínbeygt hann. Framsfl. ætlar að láta yfir sig ganga að það verði lagður söluskattur á þessa vöru líka undir lok ársins 1988 ef hæstv. fjmrh. talar fyrir ríkisstjórnina alla, en það leyfir maður sér reyndar stundum og býsna oft að draga í efa, því að stundum hefur það gerst að hæstv. landbrh. hefur haft eitt og annað við það að athuga sem hæstv. fjmrh. hefur sagt og lagt fram í þinginu eins og frægt er og ég ætla ekki að endurtaka raðherranum til ánægju.

Það er augljóst mál, ef það á að halda þessu svona miðað við þær verðbólguspár sem uppi eru, hvort sem það er 15, 20 eða 30% verðbólga, að skera á þessar niðurgreiðslur niður að raungildi á árinu 1988. Það er óhjákvæmilegt að inna hæstv. landbrh. eftir því hvort hann ætlar að láta kratana beygja sig svona. Ætlar hann að láta kratana knésetja sig með þessum hætti? Hvað ætlar hann að segja við bændur í Meðallandi og Landbroti þegar hlé verður gert á störfum þingsins næstu daga, ef svo fer, og þeir spyrja: Voru það kratarnir sem voru látnir ráða? Eru þeir farnir að stjórna landbrn. líka? (GHG: Stjórna öllu.) Stjórna öllu, segir hv. þm. Sjálfstfl. og þekkir þetta af eigin raun. — Það er óhjákvæmilegt að hæstv. landbrh. svari því hvort hann ætlar að láta þessi ósköp yfir sig ganga, hvort kratarnir eiga líka að fara að stjórna þessum málaflokki alveg lið fyrir lið, landbúnaðarmálunum. Það er best að segja það, herra forseti, að bændur landsins verða látnir vita af því að framsókn er að leggja skatt á matvörur og þessar landbúnaðarvörur. Alþb. mun láta bændur landsins vita af því tryggilega ef Framsfl. lætur kratana knésetja sig með þessum hætti eins og hæstv. landbrh. er að gera. Og ég beini þeirri spurningu til hæstv. ráðherra hvort hann ætlar virkilega að haga sínum „seglbúðum“ með þeim hætti að hæstv. fjmrh. ráði þeim vindum sem blása.