05.01.1988
Efri deild: 49. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3643 í B-deild Alþingistíðinda. (2560)
196. mál, söluskattur
Frsm. fjh.- og viðskn. (Halldór Blöndal):
Herra forseti. Ég vil aðeins til að ekki valdi misskilningi taka það fram að ég hef litið svo á um þær fjárhæðir sem nefndar eru í fjárlagafrv. varðandi niðurgreiðslur að í þeim sé gert ráð fyrir sömu verðlagsþróun á árinu og varðandi fjárlagafrv. í heild. Í mínum huga er enginn vafi um að niðurgreiðslufjárhæðirnar geta breyst í samræmi við breytt grundvallarverð á vörum til bænda. Ég held að menn verði að gera sér þetta ljóst. Hugsunin á bak við þær fjárhæðir er sú að annað er óhugsandi. Ég hef að vísu ekki séð þann útreikning sem lagður er til grundvallar varðandi þessar fjárhæðir í fjárlagafrv., en efast ekki um að ég hafi rétt fyrir mér í þessu efni.