06.01.1988
Neðri deild: 47. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3698 í B-deild Alþingistíðinda. (2587)
181. mál, stjórn fiskveiða
Frsm. meiri hl. sjútvn. (Kjartan Jóhannsson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir brtt. á þskj. 488, við brtt. á þskj. 478, sem ég flyt ásamt eftirtöldum þm.: Alexander Stefánssyni, Guðna Ágústssyni, Ólafi G. Einarssyni, Matthíasi Bjarnasyni, Guðmundi G. Þórarinssyni, Ólafi Þ. Þórðarsyni, Árna Gunnarssyni, Jóni Sæmundi Sigurjónssyni og Kristni Péturssyni. Þessi till. er í tveimur liðum og ég ætla fyrst að rekja stuttlega síðari liðinn, síðari hluta brtt. sem merktur er b. Hann varðar G-lið 10. gr., en sá liður fjallaði um heimildir til að úthluta nýjum eða nýkeyptum bátum veiðileyfi ef þeir koma í stað sambærilegra báta sem slík veiðileyfi hafa fengið og horfnir eru varanlega úr rekstri, en því til viðbótar er ákvæði eins og það kom frá meiri hl. nefndarinnar þess efnis að bátar, sem smíði er sannanlega hafin á fyrir gildistöku laga þessara, eigi kost á veiðileyfi samkvæmt reglum hér að ofan, enda hafi verið gerður bindandi samningur um sölu þeirra fyrir sömu tímamörk.
Nú hagar svo til að erfitt getur reynst að sanna hvort smíði sé hafin á plastbát eða hvenær hún hafi raunverulega hafist. Og þá getur það komið fyrir að menn hafi jafnvel greitt mjög verulegan hluta af kaupverði slíks báts án þess að unnt sé að sanna með bærilegum hætti að smíði sé hafin. Þess vegna telja menn nauðsynlegt að þessi hluti verði umorðaður þannig að ekki sé gengið með óbærilegum hætti á rétt manna sem jafnvel hafa lagt fram umtalsverðar fjárhæðir í sambandi við kaup á slíkum skipum. Umorðunin felur það í sér að 3. málsl. G-liðar, sem ég rakti hér sérstaklega, umorðist þannig:
„Bátar, sem bindandi samningur hefur verið gerður um smíði á fyrir gildistöku laga þessara, eiga kost á veiðileyfi samkvæmt reglum hér að framan enda sé smíði þeirra sannanlega hafin fyrir sömu tímamörk eða a.m.k. þriðjungur umsamins kaupverðs sannanlega greiddur fyrir 31. des. 1987 og afhending fari fram fyrir 1. júlí 1988.“
Efni málsins er það að eins og þessi liður lá fyrir á brtt. frá meiri hl. sjútvn. lá opið fyrir að aðili, sem hefði greitt jafnvel mjög umtalsverðan hluta af kaupverði nýs báts, gæti ekki sannað að smíði væri hafin og yrði þess vegna af þeim réttindum sem hér er gert ráð fyrir. Í þessari till. er sem sagt gert ráð fyrir að fyrir það verði girt og þessi liður verði orðaður að nýju með nákvæmari hætti og með tilliti til aðstæðna í þjóðfélaginu og hvernig smíði báta fer fram nú á tímum.
Þá er að víkja að hinu atriðinu. Það hefur komið fram í máli manna, bæði hér í ræðustól og annars staðar, að menn hefðu sérstaklega áhyggjur af afkomu hinna smæstu báta. Það er tillaga flm. að síðari málsl. 1. mgr. B-liðar umorðist þannig að dregið sé úr banndagafjölda, sem svo er nefnt, þannig að í stað þess að áður var gert ráð fyrir að allur desembermánuður teldist til banndaga, þá teljist hann nú einungis frá 10. des. Með þessu móti er náttúrlega verið að stuðla að því umfram það sem áður var í einhverjum mæli að menn haldi sig frekar við handfæri og línu sem er náttúrlega hið eðlilegasta veiðarfæri í sambandi við þessa smæstu báta. Ef þessi brtt. sem ég mæli nú fyrir verður samþykkt, þá verður mismunur á banndagafjölda fyrir þessa báta fimm dagar eða u.þ.b. 8% fleiri en var á sl. ári. Þeir voru 65 ef ég man rétt en fara nú upp í 70, þannig að þar er ekki um verulegan mun að ræða. Þetta er svipað og menn höfðu á sl. ári og lifðu við þá.
Það er reyndar skoðun flm., og þeir hafa rætt það við ráðherra, að það sé líka hyggilegt að rýmka aðeins til í þeim viðmiðunartölum fyrir þennan smæsta flokk báta sem netaveiðar stunda. Þar var gert ráð fyrir því að aflahámark slíkra báta, og varðar þá fyrst og fremst nýliðun í greininni sem væru undir 6 brl. og þeir fengju sem sagt leyfi til netaveiða, væri 55 tonn. En okkur sýnist að það væri ástæða til þess að rýmka það nokkuð þannig að það yrðu 60 lestir í þeirri reglugerð sem út verður gefin. Þær brtt. sem ég mæli hér fyrir eru fluttar á þeirri forsendu og með þeim skilningi af flm. að slík muni verða raunin að þessi viðmiðunarmörk verði 60 tonn í reglugerðinni.