06.01.1988
Neðri deild: 47. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3715 í B-deild Alþingistíðinda. (2590)

181. mál, stjórn fiskveiða

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Við upphaf umræðu um kvótamálið í þessari hv. deild gerði ég grein fyrir því að ég hefði gert ákveðinn fyrirvara við 9. gr. frv. sem nú er 10. gr. og fjallar um veiðar smábáta. Ég kvaðst ekki mundu samþykkja greinina óbreytta og ekki frv. að þeirri grein óbreyttri.

Jafnframt gerði ég þá grein fyrir brtt. sem ég hugðist flytja ef verulegar breytingar næðust ekki fram. Eftir að hv. sjútvn. þessarar hv. deildar hafði fjallað um frv. skilaði meiri hl. áliti þar sem fram komu talsverðar eða verulegar hagsbætur fyrir eigendur smábáta.

Nú hefur enn fremur verið flutt brtt. um 10 daga fækkun banndaga eins og þeir koma fram í B-lið 2. brtt. meiri hl. sjútvn. sem fjallar um 10. gr. Þá liggur fyrir samkomulag um hækkun á aflamarki báta undir 6 brúttólestum eins og það mun koma fram í reglugerð og er það hækkun umfram þau 55 tonn sem náðust fram í nál. meiri hl. sjútvn. Hæstv. sjútvrh. mun væntanlega staðfesta þetta samkomulag áður en frv. kemur til atkvæða hér í deildinni.

Samkvæmt þessu samkomulagi verður meðalaflahámark báta undir 6 brúttólestum 60 lestir. Þá hefur einnig náðst samkomulag um að bæta stöðu manna sem gert hafa bindandi samninga um smíði báta fyrir gildistöku laganna.

Herra forseti. Eins og 10. gr. liggur nú fyrir hafa að mínu mati og flestra sem um hafa fjallað verið gerðar svo veigamiklar endurbætur á greininni í meðförum hv. deildar að hún verður að teljast ásættanleg. Ég vænti þess fastlega að með þessum breytingum öllum hafi skánað nokkuð hagur smábátaeigenda.

Þær breytingar sem nú eru fyrirhugaðar eru gerðar með samkomulagi þar sem allir hafa gefið eftir af ýtrustu kröfum sínum.