06.01.1988
Neðri deild: 47. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3716 í B-deild Alþingistíðinda. (2591)
181. mál, stjórn fiskveiða
Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Forseti. Það er nú liðið að lokum þessarar umræðu sem hefur verið mjög málefnaleg og það eru ekki margar fsp. sem hefur verið beint til mín en þó hafa þær komið fram. M.a. beindi hv. þm. Stefán Valgeirsson þeirri fsp. til mín hvernig stæði á hinu mikla drápi á smáfiski og hvað þar kæmi til.
Auðvitað er það rétt sem fram kom hjá honum að þar kemur afar margt til. Ég vil minna á það að Hafrannsóknastofnunin hefur gert tillögur um skyndilokanir og einnig um viðmiðunarmörk og eftir þessum viðmiðunarmörkum hefur verið farið í einu og öllu. Nú nýlega gerði stofnunin tillögu um nýja viðmiðun að því er varðar smáfisk og skyndilokanir og hefur verið fallist á þá tillögu.
Hitt er svo annað mál að veiðarnar nú byggjast í allt of miklum mæli á ungum árgöngum, þ.e. 1983 og 1984, og ég vil minna á það í því sambandi vegna þeirrar umræðu sem hér hefur orðið að veiðarnar fram að þeim tíma byggðust að langmestu leyti eða mjög verulegu leyti á árganginum frá 1980.
Það er kannski rétt að minna á þá umræðu sem varð hér haustið 1983, sem hv. þm. Hjörleifur Guttormsson minntist á, og nokkrir ungir líffræðingar voru upphafsmenn að þar sem þeir héldu því fram að það væri ekkert annað að gera en að veiða frjálst, þ.e. að engar takmarkanir yrðu á veiðum og allur sá smáfiskur sem næðist til yrði drepinn til að grisja sem mest í hafinu. Ef farið hefði verið að þessum hugmyndum hefði 1980-árgangurinn aldrei náð að vaxa og við hefðum ekki notið þess góðæris sem við höfum í reynd notið. Góðærið byggist á því að hér hefur verið tiltölulega góð veiði og þessi árgangur fékk að vaxa. Sem dæmi má nefna að árið 1986 voru rúmlega 100 þús. tonn veidd úr þessum árgangi. Það var enginn annar árgangur sem gat staðið undir veiðunum og það breyttist ekki fyrr en árgangarnir 1983 og 1984 koma nýir inn og geta staðið undir veiðum.
Auðvitað er það umdeilanlegt hversu mikið skuli í þá sótt, hvað mikið skuli veitt og hvað mikið skuli verndað. Það byggist m.a. á því að það sé mat aðila að sæmileg skilyrði séu fram undan og að þessir árgangar geti dafnað. Auðvitað hefur það komið fyrir að árgangar hafa misfarist og ekki komið fram í veiðinni vegna skilyrða í hafinu og skal ég ekkert tiltaka neina sérstaka árganga í því sambandi, en auðvitað eru það þessi skilyrði sem skipta sköpum. Það er þó meginmál að þegar þau skilyrði myndast sé fiskur fyrir sem getur vaxið og dafnað í því umhverfisástandi sem þá kemur upp. Auðvitað er hér um flókið samhengi að ræða í náttúrunni og ég tek undir það að það er mikil ástæða til þess að reyna að efla allar rannsóknir og þrátt fyrir takmarkaðar fjárveitingar til þess málaflokks á undanförnum árum tel ég samt að það sé smátt og smátt verið að styrkja stöðu hafrannsókna hér á landi þótt þar megi miklu við bæta og miklu betur gera.
Ég vildi aðeins vegna þess sem ég kom hér inn á að því er varðar rækjuveiðarnar geta um það sem fram hefur farið í því sambandi. M.a. gerði ég ekki að umtalsefni seinni hluta tillögu hv. þm. Matthíasar Bjarnasonar sem orðast þannig: „Ráðherra skal setja ákvæði í reglugerð um skiptingu á leyfðum úthafsrækjuafla á milli vinnslustöðva að höfðu samráði við Félag rækju- og hörpudiskframleiðenda.“
Nú er það svo að til eru heimildir til að setja mjög nákvæmar reglur í þessu sambandi í lögunum um samræmingu veiða og vinnslu sem ég veit að hv. 1. þm. Vestf. þekkir mjög vel og miklu betur en ég, þannig að á það skortir ekki að til séu nægilegar heimildir til þess að sjútvrh. geti gert það. Rækjuframleiðendur lögðu fram tillögur þar sem þeir náðu um það samstöðu að skipta rækjuaflanum með ákveðnum hætti milli vinnslustöðva.
Það liggur alveg fyrir að um það getur ekki náðst friður milli veiða og vinnslu að aflanum sé skipt á rækjuverksmiðjurnar. Hins vegar er það ljóst að um það getur ríkt bærilegt samkomulag að sett sé hámark á hverja rækjuvinnslustöð og að því er unnið og verður gert í samráði við Félag rækju- og hörpudiskframleiðenda, þ.e. að engri einni verksmiðju sé heimilt að taka við nema ákveðnu magni, sem byggir á þeirra tillögu.
Það sem stendur hins vegar út af til þess að hægt sé að ganga frá þessu mali er sú staðreynd að nokkrar verksmiðjur hafa bætt við sig verulega í magni á árinu 1987, þ.e. það eru aðilar sem hafa fengið ný skip til að leggja þar upp. Þar eru aðilar á Akureyri, á Skagaströnd, á Blönduósi, Akranesi og nokkrir aðrir og ef eingöngu er byggt á þeim tillögum sem upphaflega komu frá Félagi rækju- og hörpudiskframleiðenda munu þessir aðilar verða fyrir allverulegri skerðingu miðað við árið 1987.
Mér er það ljóst að þarna þarf að nást niðurstaða sem byggir á einhverri millileið sem er verið að ræða við Félag rækju- og hörpudiskframleiðenda. Það er ekki full samstaða um málið enn þá þar, en þeirrar samstöðu er verið að leita og það verður af hálfu sjútvrn. sett hámark á rækjuvinnslustöðvarnar. Með því verður í reynd lokað fyrir fjölgun þeirra og komið í veg fyrir það að þær stöðvar sem minnst magn hafa geti aukið sína framleiðslu svo neinu nemi. Slík niðurstaða ætti að tryggja að verulegu leyti áframhaldandi vinnslu á þeim stöðum sem vinnsla hefur verið byggð upp á og vænti ég þess að um það geti ríkt bærilegur friður. Þetta vildi ég taka fram af þessu tilefni, en hins vegar er það alveg ljóst að um svo veigamikla breytingu, eins og að skipta aflaheimildum á milli verksmiðjanna þannig að skipin fengju annaðhvort ekki aflaheimildir eða aðeins hluti þeirra, er ekki hægt að fá neinn frið, þar er um mjög mikla breytingu að ræða. Hitt er svo annað mál að auðvitað mæla ýmis rök með því að auka hlutdeild vinnslunnar og rétt vinnslunnar, en það á ekki aðeins við um rækjuna, heldur ýmsar aðrar fisktegundir.
Hv. frsm. sjútvn. Nd. gerði grein fyrir brtt. sem meiri hl. nefndarinnar flytur og ég vil taka það fram að ég er sammála þeim brtt. og einnig sammála því mati að afli þeirra báta sem minnstir eru sé miðaður við 60 tonn. Auðvitað eru slík mörk umdeilanleg og auðvitað er það aðalatriði fyrir þessa báta að þeir fái að byggja á eigin reynslu, þannig að ef sú reynsla er betri verður sú viðmiðun tekin. Þetta er í fullu samræmi við álit meiri hl. sjútvn. Ed., en í framsöguræðu hv. frsm. Guðmundar H. Garðarssonar kom skýrt fram að þeir teldu að þau mörk sem var miðað við í upphaflegum hugmyndum væru allt of þröng og þau þyrfti að rýmka. Þá dagana var einmitt verið að vinna að sundurgreiningu á þessum bátum að því er varðaði 1985 og 1986 og afla þeirra og það var ekki fyrr en þá að það lágu fyrir nægilega góðar upplýsingar um meðalafla þessara báta. Og enn liggja ekki fyrir upplýsingar um meðalafla þeirra á árinu 1987.
Ég vildi aðeins taka það fram vegna þeirrar umræðu sem hér hefur orðið um að sjávarútvegsnefndir Alþingis fari yfir tillögur Hafrannsóknastofnunar að ég tel það sjálfsagt mál og mjög mikilvægt að sjávarútvegsnefndir þingsins taki sér það fyrir hendur að fara ofan í slíka þætti mála alveg án tillits til þess hvort frv. er fyrir þinginu eða ekki og að sjálfsögðu geta sjávarútvegsnefndir eða nefndir þingsins tekið sér ýmislegt fyrir hendur í hinum ýmsu málum án þess að fyrir nefndunum liggi ákveðin frumvörp. Það er jafnframt mikilvægt fyrir Hafrannsóknastofnun að fá tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri og sínum rannsóknum og mér er kunnugt um það að forstjóri Hafrannsóknastofnunar hefur sérstakan áhuga fyrir því að kynna öllum aðilum þessi mál og vera í sem bestu sambandi bæði við nefndir þingsins og hina ýmsu hagsmunaaðila.
Ég vildi aðeins að lokum vegna ummæla hv. þm. Steingríms J. Sigfússonar þar sem hann gerði nokkuð mikið úr orðum mínum þegar ég gerði að umtalsefni 4. brtt. hv. þm. Matthíasar Bjarnasonar um sérstaka samráðsnefnd, en greinin er þannig orðuð með leyfi hæstv. forseta:
„Sérstök samráðsnefnd skal fjalla um álita- og ágreiningsmál varðandi veiðileyfi, aflamark og sóknarmark samkvæmt lögum þessum og reglugerð settri samkvæmt þeim. Í nefndinni eigi sæti fimm menn. Þrír skulu kosnir af Alþingi, einn tilnefndur sameiginlega af samtökum sjómanna og einn tilnefndur af samtökum útvegsmanna. Ráðherra skipar formann nefndarinnar. Samráðsnefnd skal kappkosta að leysa öll ágreiningsefni sem til hennar er vísað. Verði nefndarmenn ekki á eitt sáttir skal deiluefnið borið undir ráðherra til úrskurðar.“
Nú er það sjálfsagt umdeilanlegt að hve miklu leyti löggjafarvaldið skuli hafa afskipti af framkvæmdarvaldinu. Þótt ég þiggi gjarnan námskeið hjá hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni í þessum efnum, en hann taldi mikla ástæðu til þess að ég færi á sérstakt námskeið í því sambandi, vildi ég fyrst ítreka þá almennu skoðun mína að ég tel að það sé ekki ástæða til þess og það eigi að reyna að forðast það að Alþingi kjósi sérstakar stjórnskipaðar nefndir. Ég hef oft lýst þeim skoðunum mínum hér og þótt ég hafi tekið þátt í slíkum athöfnum hér á Alþingi eins og gengur og gerist er ég almennt þeirrar skoðunar að það sé ekki æskilegt.
Í þessu sambandi er vert að geta þess að það er meginviðfangsefni sjútvrn. og í reynd aðalverkefni þess samkvæmt reglugerð um Stjórnarráð Íslands að fjalla um fiskveiðistjórnun, leysa úr hinum ýmsu málum, taka á þeim, svara fsp., gefa út veiðileyfi, leysa ágreiningsmál o.s.frv. Þetta hefur ráðuneytið gert í gegnum tíðina á grundvelli hinna ýmsu laga, m.a. á grundvelli laga um stjórnun fiskveiða frá 1976 sem eru mikilvæg lög og í þeim eru hinar ýmsu heimildir. Þetta hefur ráðuneytið leyst af hendi gegnum tíðina án þess að nokkrar sérstakar athugasemdir hafi verið við þær ráðstafanir. Síðan er það ákveðið þegar þau lög voru sett sem nú eru að ganga úr gildi að það skuli haft sérstakt samráð um þessi mál við hagsmunasamtök sjómanna og útvegsmanna vegna sérstakrar þekkingar þeirra á málinu. Þetta samstarf hefur tekist vel og ég tel að þessi nefnd í samvinnu við ráðuneytið hafi leyst þessi viðkvæmu mál ágætlega af hendi.
Ef hins vegar tillaga sem þessi yrði samþykkt felur hún í sér veigamiklar breytingar. Það koma vissulega upp spurningar: Hvert er þá vald ráðherra, ábyrgð hans, eftir að sérstök þingkjörin nefnd hefur tekið við þessu hlutverki? Ég bendi á að það er ekki gert ráð fyrir að starfsmaður viðkomandi ráðuneytis eigi sæti í þessari nefnd nema hann verði þá kosinn sérstaklega hér á Alþingi. Ég endurtek að ég tel það fullkomlega óeðlilegt að slík skipan sé höfð, enda vakna þá spurningar hvort starfsmenn ráðuneytisins séu þá að einhverju leyti orðnir starfsmenn þessarar nefndar þannig að hér er ekki um einfalt stjórnarfarslegt atriði að ræða. Og ef ákveðið yrði að gera það með þessum hætti má spyrja hvort viðkomandi ráðherra yrði ekki að einhverju leyti óþarfur og hvort bæri þá að skipa málefnum hinna ýmsu ráðuneyta í meira mæli með þessum hætti.
Ég tel að það sé ekki saman að jafna þegar talað er um flugmálastjórn. Þar er sérstakur flugmálastjóri — af því að það var nefnt hér. Hins vegar mætti mjög vel hugsa sér þá skipan að þessi mál yrðu þá færð til fiskimálastjóra og hann settur upp eins og eru einhverjar brtt. hér um og fiskimálastjóra fylgdi einhver sérstök þingkjörin nefnd. En allar slíkar ákvarðanir mundu að sjálfsögðu hafa mjög veigamiklar breytingar í för með sér á starfsemi sjútvrn.
Þetta vildi ég taka fram aðeins til að skýra mína afstöðu. Ekki það að ég geri mér fulla grein fyrir því að framkvæmdarvaldið þiggur vald sitt frá löggjafarsamkomunni og er að sjálfsögðu undir hana og meiri hluta löggjafarsamkomunnar sett, en ég held að það sé ekki til bóta að rugla þessum reytum allt of mikið saman þó að það sé vissulega ekki hægt að komast hjá því að öllu leyti. Ef það er gert í of miklum mæli hlýtur það að raska ábyrgð viðkomandi ráðherra í ríkisstjórn á hverjum tíma, sem er að sjálfsögðu mikilvægt að sé ekki dregið úr, því að sá ráðherra sem fer með málaflokk sem honum er falinn skv. reglugerðinni um stjórnarráðið verður að sjálfsögðu að bera fulla ábyrgð á gerðum sínum og síns ráðuneytis og úr því má ekki draga.
Ég vænti þess að ég hafi skýrt mína afstöðu fyrir hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni, en vil taka það skýrt fram að ég þigg gjarnan námskeið bæði hjá honum og öðrum þeim sem hann getur bent mér á í þessu sambandi og ég vænti þess að hann þurfi ekki að vera að vitna í afstöðu Ólafs heitins Jóhannessonar í þessu sambandi. Það kemur þessu máli ekkert við. Ég efast ekkert um að hann hefur haft á þessu nokkuð svipaðar skoðanir og ég lýsi hér og ég hef rætt þetta mál allítarlega við þá menn sem mjög vel þekkja til í stjórnsýslurétti og byggi þessar skoðanir mínar m.a. á þeim samtölum.