07.01.1988
Neðri deild: 48. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3744 í B-deild Alþingistíðinda. (2637)

181. mál, stjórn fiskveiða

Matthías Bjarnason:

Ég mótmæli þeim úrskurði að það sé ekki hægt að bera þessa till. upp í tvennu lagi. Hún fjallar um óskyld efni, greinin. Í fyrsta lagi er fyrri hluti greinarinnar um gildistíma þessara laga. Ég er andvígur gildistíma laganna, en ég er aftur samþykkur því sem kemur á eftir, ákvæði sem eiga að gilda vegna þess að frv. varð ekki að lögum fyrir áramót. Ég skil ekki þennan úrskurð. Ég bendi á að í fjölmörgum atriðum hefur slíkt verið gert, bæði í þessari þingdeild og Ed. áratugum saman.