07.01.1988
Neðri deild: 49. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3748 í B-deild Alþingistíðinda. (2654)

Afgreiðsla þingmannafrumvarpa

Ragnhildur Helgadóttir:

Herra forseti. Ég kemst ekki hjá því að vísa á bug ásökunum hv. þm. Guðrúnar Helgadóttur um að þmfrv. komist ekki áfram í nefndum. Ég er sjálf formaður einnar nefndar í þessari hv. deild. Þar á Guðrún Helgadóttir, hv. 13. þm. Reykv., sjálf sæti. Hún flutti þmfrv. um breytingu á lögum um almannatryggingar snemma í haust ásamt öðrum þm. stjórnarandstöðunnar. Þetta frv. fékk hraðan framgang efnislega og voru sérstakar ráðstafanir gerðar einmitt í nefndinni til að koma þessu máli áfram og efnisatriði þess urðu að lögum fyrir jól. Þess vegna tel ég að þessi gagnrýni komi úr hörðustu átt.