07.01.1988
Neðri deild: 49. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3759 í B-deild Alþingistíðinda. (2660)

181. mál, stjórn fiskveiða

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Ég hef ekki flutt brtt. við þetta frv. Aftur á móti hef ég greitt atkvæði með nokkrum. En ég tel mig einnig í þeim átökum, sem orðið hafa um heildarniðurstöðu þessara mála, hafa náð fram ýmsum atriðum sem horfa til bóta. Ég tel að þetta megi mönnum m.a. ljóst vera ef þeir kynna sér þær breytingar sem orðið hafa á upprunalegri gerð frv. og þeim niðurstöðum sem nú liggja fyrir hér í deildinni.

Það er kunnara en frá þurfi að segja að ég hef ekki verið og er ekki ánægður með hvernig til hefur tekist í fiskveiðistjórnun okkar Íslendinga. Það er mjög langt bil mundi ég segja frá þeim hugmyndum sem ég hef haft þar um og þeim sem birtast í kvótakerfi og þeim sem birtust í skrapdagakerfi. Ég var og er þeirrar skoðunar að það sé aðeins ein grundvallarregla sem hljóti fyrr eða síðar að verða heildarsáttaniðurstaða þessara mála og það er að svæðaskipta landinu gagnvart veiðum.

Það er nú einu sinni svo að það heitasta sem upp hefur komið í deilunni á þessu tímabili nú er það þegar ákveðin svæði í krafti fjármagns hafa getað hrifsað til sín mikinn fjölda veiðiskipa og nánast hælast um yfir því að hafa náð þeim frá öðrum veikari svæðum. Þetta er eitt af því sem í sjálfu sér gengur ekki. Ástæðan er einfaldlega sú að þó að menn vilji hafa atvinnufrelsi í landinu, eins og stjórnarskráin gerir ráð fyrir, þá er fjöldi einstaklinga búinn að fjárfesta á ákveðnum stöðum á Íslandi vegna atvinnutækja sem þar voru og þeirra eignir verða einfaldlega verðlausar ef hægt er að sópa skipunum fram og til baka.

Ég er aftur á móti þeirrar skoðunar að það sé ekki hægt að skorast undan þeirri ábyrgð sem fylgdi því þegar við fengum landhelgina færða út, þegar okkur var til þess trúað að gæta þeirra fiskistofna sem eru hér í norðanverðu Atlantshafi innan okkar lögsögu. Varðveisla þeirra hlýtur að vera stórt mál, svo stórt að önnur smærri verði að víkja í þeim átökum sem eiga sér stað í þingsölum um stefnur. Ég vil undirstrika það í þessu sambandi að ekkert kjördæmi á Íslandi á meir undir því en Vestfirðir að þess sé gætt að fiskistofnunum sé ekki eytt. Í engu kjördæmi á Íslandi er stærri hluti af því fólki sem þar býr sem vinnur annaðhvort við fiskveiðar eða fiskvinnslu.

Hér hafa menn deilt um gildistíma laganna. Hér hafa menn deilt um það hvernig eigi að standa að því að undirbúa frv. að næstu lögum. Hvorugt er að mínu viti aðalatriði þessa máls. Það hlýtur í sjálfu sér að vera meginregla allra laga að þau gildi þar til önnur betri taka við þó að sú kenning hafi rutt sér til rúms að sólsetursákvæði væru æskileg í lögum til þess að stuðla að örari yfirferð yfir lögin og ýta á framkvæmdarvaldið að meta það hvort það telji eðlilegt að leggja til breytingar á lögunum.

Við undirbúning að frv. ríkisstjórna hefur sú meginregla ávallt verið í gildi að ríkisstjórn styðst við ákveðinn þingmeirihluta á Alþingi og náist viðunandi samstaða innan þess meiri hluta til þess að koma frv. fram, þá er það samið í trausti þess að þannig sé hægt að þoka málum áfram. Það tekur oft ærinn tíma að komast svo langt að hægt sé að koma málum fram og fá þau lögð fram með þessum vinnubrögðum. Þannig má öllum ljóst vera að það tók lengri tíma en æskilegt var að hægt væri að leggja fram það frv. sem nú er til umræðu. Menn geta svo hugleitt það í fúlustu alvöru hversu erfitt gæti verið að koma fram frv. ef sú regla yrði látin til hliðar, sem verið hefur um undirbúning frv. ríkisstjórna, og sagt að það ætti að sjá til þess að hlutfallskjörinn þingmannahópur hér á þingi stæði á bak við stjfrv. á hverjum tíma. Sú regla gengi einfaldlega ekki upp.

Hér hefur verið minnst á ýmis mál, sem hafa verið hitamál með réttu, eins og töpuð fiskiskip. Vissulega er það rétt að skip hafa farist og tapast og þeir sem urðu fyrir því tjóni fengu tryggingaverðmæti skipsins greitt og annað ekki. Hafi þeir átt verulegt fé í þessum skipum umfram skuldir verður að ætla að þeir hafi átt nokkra möguleika á að eignast önnur skip — vissulega bundnir við það að þurfa að kaupa þau skip hér innan lands. Það er þess vegna of stórt sagt þegar menn fullyrða að þeim hafi beinlínis verið fleygt út úr tilverunni og gert ókleift að standa að því að stunda sjósókn eða að stunda útgerð í landinu. Það hefur áður verið gert að banna mönnum innflutning á skipum. Þetta hefur verið gert vegna þess að menn hafa ekki talið skynsamlegt vegna heildarfjármagnskostnaðar í fiskiskipum að fjölga skipum við veiðar og tefla þar með rekstrarafkomunni allri í hættu. Þetta eru einnig fjötrar á það að ungir menn komist að. Menn verða að gera sér grein fyrir því.

Ég held þess vegna að þó að vissulega sé það erfitt við að una eða fullyrða hvernig eigi að leysa þetta í sanngirni þá sé mjög erfitt að leggja þar eitt eða neitt til sem fullnægi réttlætinu og hægt sé að segja: Nú höfum við fundið hina einu sönnu lausn. Ég hygg að sú hugmynd sem hér kemur fram sé t.d. jafnfjarri þeim veruleika og aðrar sem settar hafa verið fram í þessum efnum. Þar á ég við þá hugmynd sem kemur fram í brtt. Sighvats Björgvinssonar.

Ég hef horft á þá þróun sem átt hefur sér stað í landinu, að fiskmarkaðir eru að ryðja sér til rúms. Persónulega tel ég þessa þróun að vísu ekki komna svo langt að hægt sé að sjá fyrir að öllu leyti hvert hún leiðir. En mér sýnist að hún sé af hinu góða. Mér sýnist að hún hafi stuðlað að meiri sérhæfingu í vinnslu afla og mér sýnist að hún muni stuðla að hærra verði á ýmsum fisktegundum sem lítillar virðingar nutu áður og einu sinni voru svokallaðir skrapdagaveiðitúrar þegar menn voru að veiða þær fisktegundir.

Ég er þess vegna þeirrar skoðunar að það skipti verulegu máli ef skip fara frá einu svæði til annars hvort viðkomandi svæði eða viðkomandi byggðarlag hefur aðgang að fiskmarkaði eða ekki eða hvort þannig hagar til að sé skipið flutt burtu, þá standi frystihúsið eða fiskvinnslustöðin eftir án nokkurra möguleika á því að kaupa fisk nema að semja um að fá skip í viðskipti eða kaupa annað í staðinn. Persónulega er ég þeirrar skoðunar að þetta sé eitt af þeim málum sem verði að taka á. Ég greiddi þess vegna atkvæði með þeirri tillögu sem hv. 1. þm. Vestf. flutti, þar sem hann ræddi um einn möguleikann til þess að taka á þessu vandamáli. Ég held aftur á móti að í 2. brtt. hv. 5. þm. Vestf., þar sem hann talar um að undanþiggja 20% af afla, sé ekki um þá lausn að ræða sem dygði til eins eða neins. Ef við erum með 500 manna þorp ættum við þá að halda eftir atvinnu fyrir 100? Værum við þá sáttir við niðurstöðuna?

Ég tel að annað tveggja verði að koma til: Að ráðherra hafi heimild til að veita leyfi. Það gæti verið viðunandi lausn. Mér er ljóst að það er mjög vandfarið með slíka heimild. Eða þá að það verði sett í lög hjá félmrn., flutt af félmrh., að sveitarfélög hafi forkaupsrétt að fiskiskipum.

Hér erum við með í lögum að hvert einasta sveitarfélag hefur forkaupsrétt að því landi sem er til sölu í viðkomandi byggðarlagi. Þó að ekki sé verið að selja nema 100 m af landi, þá hefur sveitarfélagið forkaupsrétt. En hvort skyldi nú skipta sveitarfélagið meira máli að hafa forkaupsrétt að aðalatvinnutækinu á staðnum eða einhverjum smáskika af landi? Það fer ekkert á milli mála. Forkaupsréttur að skipinu er miklu meira virði. Mér þætti það jákvætt mjög ef núverandi ríkisstjórn mundi hugleiða það hvort hún treysti sér til að standa að stjfrv. þar sem lagt yrði til að forkaupsréttur á fiskiskipum yrði fyrir það sveitarfélag sem skipið væri í þannig að heimamenn gætu metið það á hverjum tíma áður en það væri farið burtu hvort þeir treystu sér til að leysa skipið til sín.

Ég ætla að víkja örlítið frá umræðunni og til Noregs vegna þess að í Noregi eiga sér nú stað mjög hörð átök um auðlindir hafsins í norskri landhelgi. Þar standa átökin á milli Norður-Noregs og Vestur-Noregs. Hið tiltölulega auðuga svæði, Vestur-Noregur, fjölgar stöðugt mjög vel búnum veiðiskipum sem halda norður með Noregi, veiða þar þann fisk sem áður gaf afkomumöguleika fyrir sjómennina þar og skila arði af þessari útgerð á sama tíma og útgerðin í Norður-Noregi er í hnignun. Hér á landi er nefnilega það sama að eiga sér stað. Og við erum ekki búnir að sjá fyrir endann á þeirri þróun. Við sitjum uppi með það sem félagsfræðilega staðreynd að auður Íslendinga safnast saman á vissum svæðum en annars staðar eru fjárhagslega mjög veik svæði sem hafa ekki getað staðið undir því að bjóða upp á sambærileg lífskjör og sambærilega möguleika.

Ég held að það hvíli alveg sérstök skylda á þéttbýlisbúum þessa lands, á fólkinu sem býr hér á suðvesturhorninu, að setjast niður og gera sér grein fyrir því hvort það telur að sú þróun eigi stöðugt að halda áfram á sama veg. Er þetta hin æskilega þróun í byggð Íslands sem þarna á sér stað? Vegna þess að það er höfuðborgarsvæðið sem ræður því hvort svo fer sem horfir. Valdið til að ráða því er komið hingað. Þannig standa málin.

Hér hafa sumir viljað halda því fram að þar sem fiskurinn í sjónum er þjóðareign Íslendinga, þá eigi íslenska ríkið að selja réttinn til þessara veiða. Það eigi að selja aðgang að miðunum. (HG: Hverjir hafa haldið því fram?) Hv. 2. þm. Austurl. hefur fylgst mjög vel með umræðum og lesið tillögur og honum er ljóst að þar er að finna hugmyndir um að selja veiðileyfi. Það liggur alveg ljóst fyrir. — Hugleiði menn nú að á sama tíma og Noregur greiðir verulega fjármuni með störfum í sjávarþorpum, verulega fjármuni, hugleiði menn nú hver yrðu lífskjörin í sjávarþorpunum á Íslandi, sem þurfa að keppa við fisk frá Noregi, ef staðan væri sú að þau væru skattlögð fyrir aðganginn að miðunum á sama tíma og olíuauður Noregs yrði notaður til að borga með á hinum stöðunum ef menn stæðu að sjávarútvegi. Ætli lífskjaramunurinn á milli yrði ekki ærinn ef þetta yrði ofan á? Hafa menn gert sér grein fyrir því hvað raunverulega er verið að ræða um ef þetta yrði upp tekið?

Ég ætla að víkja hér að þeim valkostum sem mér virðast blasa við í þessu máli. Annars vegar er um það að ræða að samþykkja stefnu sem þýðir stjórnun í fiskveiðum. Stjórnun sem hefur vissulega fært þessari þjóð verulega farsæld í efnalegu tilliti þó að mér sýnist að það hafi af ýmsum ástæðum ekki verið á þann veg sem ég vildi gagnvart svæðaskiptingunni. Og kannski hefur það farið meira í taugarnar á mér en flest annað að það skuli vera leyft að ákveðnir einstaklingar geti selt fisk í sjónum öðrum sem fari af stað og veiða hann. Þetta er sem sagt annar valkosturinn sem blasir við. Það er hægt að samþykkja þá stjórn nokkuð líka því sem verið hefur eða að við blasir að Alþingi Íslendinga er ekki sammála um eina eða neina stefnu, hvernig eigi að standa að fiskveiðum í landinu. Þar eru skoðanirnar ansi skrautlegar ef skoðað er. Það eru þess vegna hnífakaup í myrkri við stuðningsmenn Jóns Marteinssonar eða afkomendur ef menn taka ákvörðun um það að fella það frv. sem hér er til staðar. Og það skal viðurkennt að ég hætti ekki á þau hnífakaup.

Ég ætla aftur á móti örlítið að lengja þann tíma sem ég hef verið hér í ræðustólnum með því að lesa hér upp, með leyfi forseta, úr þskj. hv. 2. þm. Austurl., þar sem hann hefur ljósritað kafla úr Fiskifréttum frá 13. nóv. 1987 og textinn heitir: „Ádrepa Jakobs Jakobssonar“. Með leyfi forseta:

„Það voru sláandi upplýsingar sem Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, kom fram með í ræðu sinni á aðalfundi LÍÚ á dögunum. Jakob benti mönnum á að nýting þorskstofnsins nú jafnaðist næstum á við versta smáfiskadráp breska flotans á Íslandsmiðum á sínum tíma. Sagðist Jakob efast um að þorskastríðið hefði unnist ef Íslendingar hefðu sagst ætla að nýta þorskstofninn á þann hátt sem gert er í dag.

Í máli Jakobs kom fram að gert er ráð fyrir því að meðalþyngd þorsksins í ár sé rétt um 3 kg. Það þýði að veiða verði 131 millj. þorska til þess að ná 380 þús. tonna afla á árinu. Benti Jakob á að aflinn árið 1980 hefði verið 118 millj. þorska og 124 millj. árið eftir. Aflinn á þessum árum hafi hins vegar ekki verið 380 þús. tonn, heldur 430 þús. tonn 1980 og 465 þús. tonn árið 1981.

„Haldi menn að há meðalþyngd í afla þessi tvö ár hafi verið vegna markvissrar fiskveiðistjórnar hafa þeir á röngu að standa. Ástæðan var einfaldlega sú að mikill hluti 1973-árgangsins ólst upp við Grænland svo að við náðum ekki að veiða hann fyrr en 1980 og 1981. Við verðum að fara aftur til daga fyrstu svörtu skýrslunnar, til ársins 1976, til að finna álíka nýtingu þorskstofnsins og við stefnum nú að. Það ár veiddum við 120 millj. þorska. Aflinn þá varð 346 þús. tonn. Það er að segja að á verstu dögum smáfiskadráps Breta fór meðalþyngdin aðeins niður fyrir það sem við stöndum frammi fyrir nú. Sé þetta hins vegar athugað lengra aftur í tímann komum við að árinu 1955. Þá veiddist um 131 millj. fiska, þ.e. nákvæmlega jafnmargir þorskar og nú er gert ráð fyrir að veiðist í ár. Var aflinn þá 380 þús. tonn eins og hann verður væntanlega í ár? Nei, góðir fundarmenn, hann var 538 þús. tonn," sagði Jakob Jakobsson.“

Þetta segir okkur kannski í stuttu máli meira en margt annað um þá alvöru sem við stöndum frammi fyrir. Og þó að það sé vissulega rétt að það sé margt sem fiskifræðingar vita ekki þá treysti ég mér ekki sem leikmaður til þess að segja að einhverjir aðrir viti þar meira um. Ég held að alvaran í þessu dæmi sé svo mikil að smærri hlutir verði að víkja og stjórnun fiskveiða er þess vegna ærin nauðsyn.

Herra forseti. Ég hef lokið máli mínu.