07.01.1988
Neðri deild: 49. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3771 í B-deild Alþingistíðinda. (2665)

181. mál, stjórn fiskveiða

Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Ég vildi aðeins segja nokkur orð varðandi þær fsp. sem hér hafa komið fram og þau ummæli sem hafa verið viðhöfð, sérstaklega varðandi þær heimildir sem afgreiddar eru til viðkomandi ráðherra. Það hefur komið fram í orðum nokkurra þm. að með því sé verið að setja í vald ráðherra hvort viðkomandi heimildir séu notaðar eða ekki. Ég hef ekki áður heyrt slíkar skilgreiningar eða litið svo á að það væri ætlun löggjafans með slíkum heimildum að viðkomandi ráðherra gæti nánast notað þær að eigin vild, heldur væri það alveg skýrt að með því er löggjafarvaldið að leggja þær skyldur á viðkomandi ráðherra að nota slíkar heimildir að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Og þannig er það að því er varðar bæði tillögur um ný skip eða það að afhenda öðrum aflaréttindi ákveðinna skipa.

Nú vil ég vekja á því athygli að það er gert ráð fyrir því í þessu frv. að sé skip selt fylgi því aðeins meðaltalsaflaheimildir, þ.e. ákveðin fiskveiðiréttindi sem eru meðaltalsaflaheimildir á viðkomandi stað. Skipinu fylgir ekki sá veiðikvóti sem það hefur haft áður. Þannig er það og hefur ávallt verið við sölu á fiskiskipum að þeim hefur fylgt veiðiréttur.

Nú er ég ekki með þessum orðum að gera lítið úr þeim vanda sem upp kann að koma í ákveðnum byggðarlögum, en ég tel það vera mjög vafasamt og í reynd óframkvæmanlegt að ætla að leggja það í vald ráðherra að meta slíka hluti. Ég ítreka þá skoðun sem ég hef áður komið fram með í þessum umræðum að ég tel að Alþingi eigi að taka á slíkum vandamálum og ráða fram úr þeim.

Það hefur sérstaklega verið nefnt í þessu sambandi að eitt ákveðið byggðarlag eigi nú í miklum vanda á Vestfjörðum, þ.e. Patreksfjörður. Ég tek undir það og mér er það ljóst að þetta byggðarlag á við mikinn vanda að stríða.

Þessi ákvæði, sem hér eru til umfjöllunar, munu ekki leysa vandamál þess byggðarlags. Þar eru skip fyrir og aðilar í fjárhagslegum erfiðleikum. Þessa fjárhagslegu erfiðleika þarf að leysa með skuldbreytingum, með aukningu á eigin fé og endurskipulagningu á rekstri, þannig að viðkomandi aðilar fái haldið sínum skipum. Það er verkefni m.a. Byggðastofnunar að taka á slíku máli og það er nauðsynlegt að sjá svo til að sú stofnun hafi til þess fjárhagslega burði og að bankakerfið í landinu og sjóðakerfið hjálpi þar til.

Ástæðan fyrir því að ég kvaddi mér hljóðs var einkum fsp. frá hv. þm. Steingrími J. Sigfússyni sem ekki er viðstaddur, en ég vænti að það komi ekki að sök. (HG: Ég skal kalla á þm.) Já, kannski það væri rétt að hann hlustaði á svar mitt fyrst hann spurði. Ég ætla nú engu að síður að hefja það svar.

Það er að sjálfsögðu grundvallaratriði í sambandi við allt eftirlit í landinu að þeir sem atvinnurekstur stunda séu skyldugir að láta í té nauðsynleg gögn. Þannig þurfa fyrirtæki í landinu að telja fram til skatts og skila upplýsingum og ég veit ekki til þess að nokkrum manni hafi dottið það í hug að það hafi verið fluttar um það tillögur að ríkissjóður greiði sérstaklega fyrir þessa hluti eða það sé reiknað með því að atvinnurekendum sé greitt fyrir það gjald. Þeir hafa vissulega farið fram á það, t.d. kaupmenn, hafa ætlast til þess að ríkissjóður borgaði þeim fyrir söluskattsuppgjör og talið að nauðsynlegt væri að ríkissjóður greiddi þeim innheimtulaun. Ég er því algjörlega andvígur og ég vænti þess að flestir hér á Alþingi séu því andvígir að farið verði að greiða atvinnurekendum fyrir nauðsynlegar upplýsingar. Það sem hér er átt við er eingöngu upplýsingar er varða framkvæmd og eftirlit með þessum lögum. (Gripið fram í.) Það er alveg út í hött hjá hv. þm. að fara að tala um kyngreiningu þorsks og beinafjölda og annað sem hann tilnefndi í því sambandi því að það er að sjálfsögðu ekki nauðsynlegt til þess að hafa eftirlit með framkvæmd þessara laga (Gripið fram í: Hver ákveður það?) og það kemur skýrt fram í lagagreininni. Ég tel ekki ástæðu til þess að svara hv. þm. í þessu efni því að þetta er svo fráleitt. En þetta ákvæði er sótt í önnur lög.

Í IX. kafla laga um tekju- og eignarskatt nr. 75 1981, með síðari breytingum, eru grundvallarákvæði um upplýsingaskyldu og eftirlitsheimildir gagnvart innlendri skattlagningu. Í þessum kafla er a.m.k. fjórum sinnum beinlínis tekið fram að upplýsingar skuli veittar ókeypis. Til þessara laga er síðan vitnað í flestum öðrum lögum er varða innlenda skattlagningu og sagt að ákvæði þeirra gildi m.a. um eftirlitsheimildir og upplýsingaskyldu nema annað sé beinlínis tekið fram. Sums staðar eru tilvísanir enn nákvæmari. T.d. vísar 8. gr. launaskattslaga beint í fyrrnefnda 92. gr. og segir hana gilda varðandi launaskatt.

Í tollalögum nr. 55/1987, sem nýlega voru afgreidd hér á hv. Alþingi, eru sömuleiðis ýmis grundvallarákvæði að því er varðar skattlagningu á innflutning. Í þeim lögum eru einnig ákvæði um endurgjaldslausa þjónustu við eftirlitsaðila. Til þessara almennu ákvæða er síðan vísað í flestum lögum er varða innflutningsskatta. Það má segja að þetta ákvæði sé sótt til þessara fyrirmynda.

Nú er það sjálfsagt umdeilanlegt hvort það er nauðsynlegt að taka það fram að hér sé um ókeypis upplýsingar að ræða. Það má vel vera. En út af orðum hv. 1. þm. Vestf. sem gerði það að umtalsefni að menn teldu óskynsamlegt að taka þetta orð út, og ef það væri gert má að sjálfsögðu spyrja: Hver er vilji löggjafans, ef þetta orð verður tekið út? Er það vilji löggjafans með slíkri breytingu að þessir aðilar fái sérstaklega greitt fyrir slíkar upplýsingar eða hver er tilgangurinn með því hjá löggjafanum að taka slíkt orð út? Ég vænti þess að hv. fyrirspyrjandi sé mér sammála um það að atvinnureksturinn í landinu verður að veita stjórnvöldum nauðsynlegar upplýsingar, ókeypis, til þess að hægt sé að hafa nauðsynlegt eftirlit með starfsemi atvinnurekstrar í landinu. Því finnst mér nokkuð merkilegt hvað mikið hefur verið gert úr þessu eina orði og átta mig ekki á því hvað þar liggur að baki.

Ég ætla ekki að gera þetta frekar að umtalsefni og vænti þess að ég hafi gefið hv. þm. nauðsynlegar skýringar og vil að öðru leyti þakka fyrir málefnalega umræðu. Ég tek undir með þeim þm. sem hafa haldið því fram að hér hafi verið málefnaleg og góð umræða um þessi mál og ég vil mótmæla, ásamt fleirum, því sem hefur komið fram, m.a. í sjónvarpi, að hér hafi verið um málþóf að ræða. Ég hef lengi verið hér á Alþingi og fylgst með umræðum en það er langt frá því að hér hafi átt sér stað nokkurt málþóf. Ég sé að sjónvarpið er hér viðstatt og ég vil mótmæla þeim ummælum sérstaklega.