07.01.1988
Neðri deild: 49. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3781 í B-deild Alþingistíðinda. (2677)
181. mál, stjórn fiskveiða
Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):
Herra forseti. Ég þakka forseta fyrir hans umburðarlyndi og líka þingdeildinni. Allt er þegar þrennt er. Í þessari 3. tillgr. hv. 5. þm. Vestf. eru talin upp nokkur stjörnumerkt efnisatriði sem taka skuli afstöðu til við ráðgerða endurskoðun laganna. Þessi atriði eru reyndar öll tekin orðrétt upp úr starfsáætlun ríkisstjórnarinnar. Með tilliti til þessa og með tilliti til þess að í ákvæði til bráðabirgða I í frv. eins og það var samþykkt fyrr í dag eftir 2. umr. í þessari hv. þingdeild, reyndar þá með 25 shlj. atkv., felst að mínum dómi að endurskoðunarnefndin sem þar er ákveðin skuli taka afstöðu til allra þessara atriða segi ég því nei.