07.01.1988
Neðri deild: 49. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3781 í B-deild Alþingistíðinda. (2679)
181. mál, stjórn fiskveiða
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Það má nú segja að í þessari atkvæðagreiðslu skipist veður í lofti. Hér var lögð fram tillaga sem orðrétt er úr stefnuskrá ríkisstjórnarinnar, bls. 8 og 9, og miklu meira en einhverjar stjörnuupptalningar. Greinin er orðrétt svo til öll upp úr stjórnarsáttmálanum. Þá víkur svo við að stjórnarliðar fella sinn eigin stjórnarsáttmála, en stjórnarandstaðan lítur svo á að hún sé skynsamleg.
Þetta, herra forseti, tel ég að sýni með hverjum ósköpum sú afgreiðsla hefur verið sem fer fram á þessu fiskveiðalagafrv. þegar hv. stjórnarsinnar eru svo niðurnegldir í afstöðu sinni að þeir geta ekki einu sinni greitt atkvæði með sinni eigin stefnuskrá.