07.01.1988
Neðri deild: 49. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3782 í B-deild Alþingistíðinda. (2682)

181. mál, stjórn fiskveiða

Sólveig Pétursdóttir:

Hæstv. forseti. Ég vil gera grein fyrir atkvæði mínu þar sem ég sat áður hjá í atkvæðagreiðslu vegna till. frá hv. þm. Matthíasi Bjarnasyni þar sem um var að ræða tæmandi talningu á skipum þeim, tíu talsins, er fórust á árunum 1983–1984. Í till. sem hér er um að ræða frá hv. þm. Sighvati Björgvinssyni er aðeins gert ráð fyrir þremur skipum árlega og auk þess er um mismun að ræða eftir byggðarlögum. Ég segi því nei við þessari brtt.