07.01.1988
Neðri deild: 49. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3793 í B-deild Alþingistíðinda. (2696)
63. mál, lánsfjárlög 1988
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Ég ætla við 1. umr. þessa máls hér í deildinni aðeins að fjalla um einn þátt sem snertir það frv. til lánsfjárlaga sem hér er til umræðu, en það er sú hlið sem snýr að fjárhag Ríkisútvarpsins. Ég vil þó áður en ég kem að því minna á þá tillögu fulltrúa stjórnarandstöðunnar í fjh.- og viðskn. Ed., sem kom fram þar við 2. umr. þessa frv., að eðlilegt væri með tilliti til þess hvað allt er á floti í sambandi við efnahagsstefnu og efnahagsmál hjá hæstv. ríkisstjórn að vísa þessu máli frá. Ég tel að síðan sú bókun var gerð og sú tillaga flutt hafi komið enn skýrari rök fyrir því að sú málsmeðferð verði hér viðhöfð og ég minni í því sambandi á forsíðufregn í málgagni hæstv. fjmrh., að vísu málgagni sem hann vill ekki alltaf gangast við, þ.e. Alþýðublaðinu, forsíðufrétt þar í morgun þar sem fjallað er um áhrif af nýsamþykktum lögum um söluskatt og færð að því rök í Alþýðublaðinu að ekki komi þær lækkanir fram í sambandi við söluskattinn sem hæstv. fjmrh. hafði boðað og gert ráð fyrir heldur muni þeim seinka verulega, þær lækkanir sem varða tollalög. Og án þess að ég fari að vitna í þetta málgagn sem liggur frammi hér í þinginu og menn geta kynnt sér, þá er þetta staðhæft og varað við þeim hækkunaráhrifum sem fram komi nú á næstunni vegna álagningar söluskatts. Neytendur muni ekki njóta lækkana vegna ákvæða tollalaga sem boðuð hefðu verið fyrr en einhvern tímann síðar. Þannig muni hugmyndir hæstv. fjmrh. og staðhæfingar varðandi áhrif á framfærsluvísitölu að öllum líkindum ekki standast í bili a.m.k. hvað snertir verðþróun og þess geti jafnvel verið nokkuð langt að bíða að þær verðbreytingar verði sem hann treystir á þegar hann staðhæfir að áhrif vegna þessara nefndu laga á framfærsluvísitölu verði engin eða verði núll þegar saman er lagt. Á þetta minni ég.
Ég minni líka á þá skýrslu sem Þjóðhagsstofnun hefur gert fyrir ríkisstjórnina og greint var frá á Stöð 2 fyrir tveimur kvöldum síðan þar sem ríkisstjórnin mun hafa óskað eftir grg. Þjóðhagsstofnunar um ákveðnar ráðstafanir í efnahagsmálum, þar á meðal varðandi gengislækkun og gengisbreytingar. Segir það okkur nokkuð um það hvað verið er að undirbúa á ríkisstjórnarheimilinu í þessum efnum. Ég tel því að það sé eðlilegt að þetta frv. verði látið liggja í bili a.m.k., ef ekki vísað frá með rökstuddri dagskrá, þangað til efnahagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar liggja fyrir því að við því hafa hæstv. ráðherrar gengist að á næstunni verði gripið til efnahagsráðstafana og blasir auðvitað við hverjum manni að ríkisstjórnin verður að glíma við uppvakninga þá sem hún sjálf hefur vakið upp, uppvakninga og fylgjur eigin athafna.
Það ákvæði varðandi Ríkisútvarpið sem ég ætla að gera aðeins að umræðuefni við þessa 1. umr. kemur fram í 22. gr. frv. þar sem segir, með leyfi forseta:
„Þrátt fyrir ákvæði 22. og 23. gr. laga nr. 68/1985, útvarpslaga, skulu tekjur á árinu 1988 vegna aðflutningsgjalda af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum ásamt fylgihlutum renna í ríkissjóð.“
Þessi útvarpslög sem hér er vitnað til voru samþykkt á árinu 1985, nr. 68 það ár, og snerta fjármál Ríkisútvarpsins, 22. og 23. gr. þeirra laga. Í 22. gr. útvarpslaga segir m.a., með leyfi forseta:
„Megintekjustofnar Ríkisútvarpsins eru gjöld fyrir útvarpsafnot, gjöld fyrir auglýsingar í hljóðvarpi og sjónvarpi, aðflutningsgjöld af hljóðvarpsog sjónvarpstækjum og hlutum í þau og aðrir tekjustofnar sem Alþingi kann að ákveða.“
Og í 23. gr. er kveðið á um að í sjóð sem nefnist framkvæmdasjóður Ríkisútvarpsins skuli leggja 10% af brúttótekjum stofnunarinnar. Aðflutningsgjöld af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum og hlutum í þau renni óskipt í sjóðinn. Fé framkvæmdasjóðs skal verja til að tryggja viðunandi húsnæði, tækjakost og dreifikerfi fyrir starfsemi Ríkisútvarpsins.
Um þessi efni er nánar kveðið á í reglugerð um Ríkisútvarpið sem sett var af fyrrv. menntmrh., Sverri Hermannssyni, 23. júlí 1986 og eru tiltekin þau atriði sem í lögunum eru og ég hef þegar lesið varðandi framkvæmdasjóð Ríkisútvarpsins.
Það er ekki í fyrsta sinn sem ríkisstjórn skerðir þennan tekjustofn því það var gert af fyrrv. ríkisstjórn fyrir síðasta ár, árið 1987, og er talið að sú tekjuskerðing sem Ríkisútvarpið þá varð fyrir hafi numið a.m.k. 300 millj. kr. vegna þess að það naut ekki tekna af aðflutningsgjöldum af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum ásamt fylgihlutum sem lögin þó gera ráð fyrir. Á árinu 1988 hef ég heyrt áætlað að tekjur af þessu nemi lægri upphæð vegna breytinga væntanlega á tollalögum sem ákveðnar hafa verið og nemi 150 millj. kr. en er samt veruleg og myndarleg upphæð.
Ég minni á það, herra forseti, að þegar rætt var hér um frv. til útvarpslaga á Alþingi 1985, þá voru höfð uppi um það mörg orð og ýmsir svardagar af þeim sem réðu þar ferðinni að það skyldi sannarlega búið vei að Ríkisútvarpinu þó að opnað yrði fyrir einkastöðvar sem kepptu við það í útvarpsrekstri. Af hálfu stjórnarandstöðunnar á þeim tíma var reynt að búa þannig um hnútana að það yrði tryggt, m.a. með þeim tillögum sem Alþb. stóð að í sambandi við frv. til útvarpslaga, að einkastöðvar nytu ekki tekna af auglýsingum. En tillögur okkar alþýðubandalagsmanna um það atriði voru felldar. Nú hefur það komið á daginn og hefur verið tíundað af talsmönnum Ríkisútvarpsins og fleirum að samkeppnin á auglýsingamarkaði milli Ríkisútvarpsins og hinna svokölluðu frjálsu útvarpsstöðva, einkastöðvanna, hefur leitt til verulegs og stórfellds samdráttar á tekjum Ríkisútvarpsins af auglýsingum. Þetta bætist við þá skerðingu sem varð á síðasta ári á tekjum framkvæmdasjóðs Ríkisútvarpsins af aðflutningsgjöldum, og ég hef hér nefnt, og áformað er að skerða enn á ný með ákvæðum þessa frv. sem hér er til umræðu.
Fjárhagur Ríkisútvarpsins á síðustu árum hefur verið afar bágborinn frá því hin nýju útvarpslög voru sett vegna aðgerða stjórnvalda á þessum tíma. Á síðasta ári var þannig að stofnuninni búið að hún var rekin með miklum halla sem nam um 100 millj. kr. Sá halli stafaði, fyrir utan þau skerðingarákvæði sem ég hef nefnt, af þeirri staðreynd að Ríkisútvarpinu var synjað um hækkun á afnotagjöldum í eitt og hálft ár, frá ársbyrjun 1986 til 1. júlí 1987. Síðan hefur verið heimiluð mjög veruleg hækkun afnotagjalda, eins og fram hefur komið, en það er auðvitað of seint að verki verið og mjög óheppilegt að verið sé að taka risastór stökk í sambandi við afnotagjöld hjá þessum fjölmiðli og hlýtur að veikja með vissum hætti samkeppnisstöðu hans gagnvart öðrum útvarpsstöðvum sem virðast vera á sérstöku hægra brjósti stjórnvalda, eins og fram kom í sambandi við afgreiðslu tollalaga og söluskatts í sambandi við afruglarana svonefndu sem á að undanþiggja söluskatti með röksemdafærslu sem við heyrðum hjá hæstv. fjmrh. fyrir þeirri ákvörðun sinni og hans stuðningsmanna, röksemdafærslu sem var sannarlega býsna skotheld.
En það gilda sem sagt önnur lögmál um Ríkisútvarpið. Sá fjölmiðill er hnepptur í viðjar skulda og taprekstrar þó svo að nokkrar úrbætur hafi fengist á fjármálum stofnunarinnar í sambandi við 3. umr. fjárlaga og lokaafgreiðslu fjárlaga hér á Alþingi, þar sem þó var horfið frá því ráði sem fyrir lá samkvæmt frv. hæstv. fjmrh. að reka Ríkisútvarpið á árinu 1988 með 82 millj. kr. halla. Ef Ríkisútvarpið heldur sínum hlut og bætir sinn hlut á auglýsingamarkaði eins og verið er að gera ráð fyrir, en er auðvitað algjörlega óvíst, þá kann að vera að það takist að reka Ríkisútvarpið án halla á næsta ári en aðeins með miklu aðhaldi varðandi framkvæmdir og rekstur allan. Eftir sem áður glímir Ríkisútvarpið við skuldabagga frá taprekstri undangenginna ára. Þetta er vissulega mjög alvarlegt mál og snertir alla landsmenn, snertir fjölmiðlun í landinu. Og þó að við séum að gagnrýna á stundum, m.a. hér á Alþingi, starfshætti Ríkisútvarpsins og fréttaflutning þá berum við þessa stofnun fyrir brjósti og hljótum að gera það, ekki síst fulltrúar hér á Alþingi úr dreifbýli en auðvitað er þetta mál landsmanna allra, stórkostlegt menningaratriði, að hægt sé að reka Ríkisútvarpið, hljóðvarp og sjónvarp, með eðlilegum hætti, tryggja samkeppnisstöðu þess bæði um starfsfólk en einnig varðandi dreifikerfi, sendibúnað og allt sem lýtur að rekstri stofnunarinnar.
Vegna þess hvernig að þessum málum er staðið hafa forráðamenn Ríkisútvarpsins orðið að gera áætlanir um verulegan samdrátt frá því sem áformað hafði verið, m.a. í sambandi við flutning sjónvarpsins í útvarpshúsið við Efstaleiti, en ráðgert var að innrétta það á yfirstandandi ári og selja síðan húseignina að Laugavegi 176 á móti þeim kostnaði sem þarna væri um að ræða. Ég held að þetta aðhald, sem Ríkisútvarpið er knúið til, sé meira en hæpið í sambandi við rekstrarstöðu þess, það verði ekki af því sparnaður heldur í rauninni kostnaðarauki til nokkurs tíma litið.
En það er fleira sem hefur orðið að draga saman af fyrirhuguðum framkvæmdum hjá Ríkisútvarpinu, framkvæmdum sem einmitt átti að kosta úr framkvæmdasjóði Ríkisútvarpsins og það er þá sérstaklega uppbygging á dreifikerfi Ríkisútvarpsins, uppbygging á langbylgjusendum og styrking á langbylgjukerfinu sem fyrirhuguð hafði verið. En það er verkefni áætlað upp á um 400 millj. kr. sem hefði þurft að leggja fram í því skyni og væntanlega hefði verið dreift á einhver tímabil, e.t.v. lengur en yfirstandandi ár. Uppbygging á langbylgjukerfi Ríkisútvarpsins, hljóðvarps er löngu tímabært verkefni. Við vitum það að sendistöðina á Vatnsendahæð og möstrin sem þar eru hefði þurft að endurnýja og endurbyggja fyrir löngu. Þetta gildir um endurvarpsstöðvar víða um land, t.d. endurvarpsstöðina á Eiðum á Austurlandi sem er orðin algjörlega úrelt. Það kostar stofnunina verulegar upphæðir að lappa upp á þetta eiginlega úrelta og ónýta kerfi með aðferðum sem eru svona eins og menn séu að stoppa í götin á sokkunum sínum með ærinni fyrirhöfn. Býsna stór göt því að þarna er í rauninni um handavinnu að ræða í sambandi við endurbætur á tæknibúnaði, að halda við þessum stöðvum.
Þetta mál snertir öryggismál í landinu. FM-kerfið getur alltaf bilað og fallið út á einstökum stöðum og svæðum og þá þarf að vera hægt að treysta á langbylgjukerfið, að það sé virkt. Það snertir að sjálfsögðu öryggi manna í byggðum landsins, ferðamanna, og einnig sjómanna á hafi úti sem búa við algjörlega ófullnægjandi skilyrði í sambandi við dreifikerfi Ríkisútvarpsins, hljóðvarps og raunar sjónvarpsins vissulega líka.
Ég gæti, virðulegur forseti, vitnað hér til umræðna um þessi mál, bæði þegar útvarpslagafrv. var til umræðu hér á Alþingi en ekki síður ummæla sem urðu á síðasta ári í sambandi við afgreiðslu lánsfjárlaga, ummæla m.a. frá talsmönnum Alþfl. á þeim tíma sem voru þá í stjórnarandstöðu, flokks hæstv. núverandi fjmrh., þar sem talsmenn Alþfl. höfðu uppi hin hörðustu mótmæli og harða gagnrýni vegna þeirrar skerðingar sem þá var gerð á tekjustofnum Ríkisútvarpsins. Í umræðuhefti nr. 1 frá haustþinginu 1986 er að finna m.a. ræðu hv. þm. Eiðs Guðnasonar í Ed. varðandi þetta mál og væri freistandi að vitna til hans en tímans vegna verður það að vera stutt. Ég gríp þó hér niður, með leyfi forseta, í örstuttan kafla í hans máli. Þar segir, með leyfi virðulegs forseta:
„Það er rík ástæða til að gera þetta mál að sérstöku umtalsefni hér vegna þess að fyrr á þessu ári óskaði Ríkisútvarpið eftir 10% afnotagjaldahækkun. Því var synjað.“
Síðan harmar ræðumaður að hæstv. menntmrh. er ekki viðstaddur og hann er því miður ekki viðstaddur hér heldur sá sem settur er fyrir þann sem fjarverandi er af þingi og fjarvistarleyfi hefur. Hv. þm. Eiður Guðnason minnti á í sinni ræðu með orðunum „Núna situr Ríkisútvarpið ekki lengur eitt að þeim auglýsingamarkaði á öldum ljósvakans sem það hefur setið eitt að í 55 ár.“
Þetta er tilvitnun í hans mál. Alþfl. stuðlaði reyndar að því að Ríkisútvarpið missti af þessum auglýsingatekjum því að þm. Alþfl. greiddu því atkvæði að aðrir fjölmiðlar kæmust inn á auglýsingamarkaðinn, að einkastöðvarnar kæmust inn á auglýsingamarkaðinn, og eiga því sinn hlut í því hvaða staða er uppi hjá Ríkisútvarpinu að þessu leyti.
Hv. þm. Eiður Guðnason sagði einnig: „Spurningin er: Á nú að koma Ríkisútvarpinu, þessum fjölmiðli okkar allra, á kné með því að setja Ríkisútvarpið í fjárhagslega spennitreyju eins og mér sýnist allt benda til að núverandi stjórnarflokkar séu að gera.“
Og hann segir: „Hér í lánsfjárlögum er gert ráð fyrir að taka með afturvirkum hætti — og ég spyr nú hvernig ráðherranum falli það í geð — [það mun vera menntmrh. sem spurður er] í 27. gr. lánsfjárlaga á að taka af Ríkisútvarpinu allar tekjur vegna aðflutningsgjalda af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum ásamt fylgihlutum fyrir árin 1986 og 1987. Á fyrri helmingi þessa árs eru þetta 60 millj. kr. Og ég spyr, m.a. með tilliti til þess að fyrr á þessu ári var Ríkisútvarpinu synjað um hækkun afnotagjalda: Er það stefna ríkisstjórnarinnar og er það með samþykki hæstv. menntmrh. að koma þessari stofnun nú á kné eða að minnsta kosti að setja hana í fjárhagslega spennitreyju þannig að hún megi sig hvergi hræra'? Mér þætti vænt um að fá svar við þessu“, segir hv. þm. Eiður Guðnason og ég geri orð hans í fyrra að mínum. Mér þætti vænt um að fá svör við því frá hæstv. fjmrh.: Ætlar hann að standa að málefnum Ríkisútvarpsins með þeim hætti sem harðlega var gagnrýnt af fulltrúa Alþfl. í útvarpsráði, hv. þm. Eiði Guðnasyni, og endurtaka á nú á yfirstandandi ári eftir allar þrengingarnar sem Ríkisútvarpið hefur búið við á þessum tíma?
Ég tel að hér sé svo stórt mál á ferðinni að það verði að taka á því af fyllstu alvöru við umræður um þetta frv. og við megum ekki skilja við þennan fjölmiðil í því horfi að honum sé ætlað að vera sviptur tekjustofni sem lögboðinn var 1985 og sem áreiðanlega réð stuðningi sumra þáv. hv. þm. við það frv. til útvarpslaga og einstök ákvæði þess sem lögfest voru á því ári. Ég geri kröfu til þess, virðulegur forseti, að fjh.- og viðskn. fari vandlega ofan í saumana á þessu máli og við 2. umr. verði gerð grein fyrir stöðu Ríkisútvarpsins og framtíðarhorfum miðað við þá skerðingu tekjustofna stofnunarinnar sem hér er ráðgerð og miðað við þörfina, hina brýnu þörf á því að byggja upp Ríkisútvarpið þannig að það geti sinnt lögboðnum skyldum sínum, þannig að unnt sé að koma sjónvarpinu inn í Útvarpshúsið með eðlilegum hætti eins og hagkvæmt mun vera og ekki síður og enn frekar kannski að byggja upp langbylgjukerfi Ríkisútvarpsins öllum landsmönnum til hagsbóta og aukins öryggis bæði á landi og sjó.