07.01.1988
Efri deild: 51. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3843 í B-deild Alþingistíðinda. (2714)

181. mál, stjórn fiskveiða

Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Ég ætla aðeins að gera tilraun til að svara þeim fsp. sem til mín hefur verið beint og þá í fyrsta lagi frá hv. þm. Skúla Alexanderssyni, en ég vænti þess að ég hafi náð hans spurningum svona nokkurn veginn. Ég leit yfir þær á hlaupum hér í kvöld. Það er rétt hjá hv. þm.

Það var í fyrsta lagi hvort fyrirhugaðar væru einhverjar aðgerðir til þess að takmarka sókn í smáfisk. Nú er rétt að taka það fram að veiðarnar á undanförnum árum hafa byggst á tiltölulega fáum árgöngum og veiðarnar núna undanfarin ár hafa m.a. byggst að miklu leyti á árganginum frá 1980. Og í sambandi við tal um smáfisk og að það sé rétt að veiða hann upp jafnvel, eins og haldið var fram af vísindamönnum, líffræðingum, haustið 1983, þeir héldu því fram, komu fram með þá kenningu opinberlega, svokallaða grisjunarkenningu, að það ætti að veiða sem allra mest til þess að þeir einstaklingar sem eftir lifðu hefðu meira svigrúm í hafinu og meiri fæðu. Ef þetta hefði nú verið gert hefði það komið mjög og í enn meira mæli niður á árganginum frá 1980 sem hefur verið mikil uppistaða í afla frá árinu 1986, yfir 100 þús. tonn komu á land úr þeim árgangi. Það er því miður svo að uppistaðan í aflanum núna eru fyrst og fremst árgangarnir frá 1983 og 1984 og sá fiskur er eðlilega smár. Það eru engir aðrir sterkir eldri árgangar í stofninum. Þótt þeir séu bærilegir er það ekki neitt til að bera uppi alla þá veiði sem við stundum.

Það er að sjálfsögðu aðalatriðið nú á þessari stundu að þessir árgangar verði ekki aðeins uppistaðan í veiðinni á næsta ári heldur á næstu árum og því þarf að reyna að takmarka sókn í þorskstofninn. Sjútvrn. hefur ávallt samþykkt allar þær tillögur sem hafa komið frá Hafrannsóknastofnun í sambandi við skyndilokanir og viðmiðunarmörk í því sambandi og nú fyrir nokkrum dögum gerði Hafrannsóknastofnun þá tillögu að í stað þess að gripið væri til skyndilokana þegar 30% af fiski væru undir viðmiðunarmörkum eða 55 cm er því breytt í 25% og var sú tillaga þegar samþykkt eins og áður hefur verið gert á undanförnum árum, meðan ég hef verið í því ráðuneyti.

Auk þess fara fram tilraunir með það hvort megi breyta gerð á trolli. Þær tilraunir voru hafnar á sl. ári og þeim verður haldið áfram, þ.e. að setja það upp á svokallaðan legg þannig að möskvinn haldist betur opinn. Það er hins vegar ljóst að þótt möskvinn hafi verið stækkaður tryggir það ekki nægilega verndun á smáfiskinum og skyndilokanir hafa stundum komið nokkuð seint.

Allt eru þetta aðgerðir sem miða að því að vernda smáfiskinn og ég vil einnig benda á það að í Nd. var það samþykkt að ráðuneytið hefði ekki heimild til þess að undanþiggja að öllu leyti smáfisk frá aflakvóta. Í því sambandi er rétt að geta þess að í upphafi sl. árs var gert ráð fyrir að allur smáfiskur yrði talinn með í aflakvóta. Það upphófust mikil mótmæli í því sambandi og sjómenn sögðu að þá yrði honum öllum hent fyrir borð sem er að sjálfsögðu erfitt að trúa, að slík hótun sé framkvæmd. En eftir nokkrar viðræður og umhugsun var ákveðið að hann yrði utan kvóta. Nú verður að sjálfsögðu að verða breyting á í samræmi við þessa brtt.

Í öðru lagi spurði hv. þm. um það hvort óskir sjómanna á Breiðafirði varðandi bann við notkun á 6 tommu möskva á bilinu 1. janúar til 1. maí yrðu teknar til greina. Nú er það svo að óskir sjómanna í þessu sambandi hafa verið misjafnar eins og gengur og gerist og það hefur verið gert þannig á undanförnum árum að 6 tommu möskvi hefur verið bannaður fram að páskastoppi en eftir páskastopp hefur hann verið leyfður.

Það var mikið kvartað yfir því, það er nú orðið alllangt síðan, að óþægilegt væri fyrir skipin að byrja á ný eftir páskastopp og þurfa síðan að skipta um net þannig að þeir geti ekki byrjað að nota 6 tommu möskvann strax eftir páskahlé. En nú eru páskarnir snemma og þess vegna verður að taka þetta til endurskoðunar eins og svo margt annað.

Ég get alveg tekið undir það með hv. þm. að það væri æskilegt að leyfa ekki þennan 6 tommu möskva. Hitt er svo annað mál að sá fiskur sem veiðist í hann er yfirleitt stærri en smæsti fiskurinn sem togararnir fá og því hefur oft verið haldið fram af bátasjómönnum að það sé óeðlilegt að þeir geti ekki tekið hluta af þessum árgöngum, þ.e. þennan smærri fisk á sama tíma og togararnir veiða þann fisk. Þessir menn hafa vissulega mikið til síns máls því að þrátt fyrir allt er sá fiskur sem veiðist í 6 tommu möskvann heldur stærri en smæsti fiskurinn sem togararnir koma með að landi. Þetta verður hins vegar tekið til endurskoðunar. Ég vil engu spá um niðurstöðu í því sambandi, en það er með þetta mál eins og annað að hér er um að ræða misjafnar skoðanir. Sérstaklega með tilliti til þess hvað páskarnir eru nú snemma er einsýnt að þetta mál þarf að ræða og ekki ólíklegt að það þurfi að verða þar breyting á.

Ég skal lýsa því sem minni skoðun að ég er því sammála að reyna eigi að takmarka sem mest notkun á þessum minni möskva, en það er með þetta eins og annað að það verður að virða þær skoðanir sem fram koma frá þeim aðilum sem í atvinnugreininni vinna og þær eru misjafnar og þótt ég kannist við þessar óskir frá sjómönnum sem róa við Breiðafjörð hygg ég að ekki séu allir sammála um það frekar en annað.

Í þriðja lagi spurði hv. þm. hvort einhverjar aðrar aðgerðir væru fyrirhugaðar til þess að tryggja viðgang þorskstofnsins. Ég náði þessu ekki alveg orðrétt, en ég vænti þess að ég hafi skilið það rétt.

Ég sé ekki að það sé beinlínis hægt að grípa til annarra aðgerða til að vernda þorskstofninn en að takmarka sókn í hann og reyna að koma í veg fyrir að fiskur sé veiddur of smár. Auðvitað eru margvíslegar aðrar aðgerðir sem eru nauðsynlegar í fiskveiðum eins og að tryggja sem besta meðhöndlun o.s.frv., en takmörkun veiðanna og það að koma í veg fyrir að fiskurinn sé veiddur of smár eru aðalatriði þessa máls. Frv. sem hér er til umfjöllunar fjallar um það að skipta takmörkuðu magni milli aðila í landinu með ákveðnum hætti og stuðla að því að þorskstofninn fái að vaxa.

Nú er það að sjálfsögðu margt sem getur orðið til þess að þorskstofninn vaxi umfram það sem við sjáum fyrir í dag. Þar koma til náttúrleg skilyrði. Við væntum þess að það komi ganga frá Grænlandi því að við vitum að hluti af þeim seiðum sem komust vel á legg 1983 fór þangað og vonandi kemur hluti af þeim stofni til baka hér á miðin 1990–1991 eins og svo oft áður. Og það skiptir að sjálfsögðu sköpum hvernig það mun ganga að sá hluti komi inn í hrygningarstofninn. Þetta gerðist 1981 síðast. Þá var veiðin mjög mikil. Ég er þeirrar skoðunar að þá hafi verið veitt allt of mikið og að betur hefði verið ástatt ef við hefðum takmarkað veiðina mun meira þá og meira komið þá inn í hrygningarstofninn.

Í fjórða lagi spurði hv. þm. um það hvort ráðuneytið gæti tryggt það að allir fái ókeypis upplýsingar um hvaðeina sem þetta mál varðar með svipuðum hætti og gert er ráð fyrir því að ráðuneytið eigi að fá ýmsar upplýsingar ókeypis frá aðilum sem stunda veiðarnar. Ég tel þetta ekki vera sambærilegt. Hitt er svo annað mál að ég veit ekki betur en að á hverjum einasta degi sé sjútvrn. að veita upplýsingar til aðila um land allt um hvaðeina sem veiðarnar varðar. Ég er þeirrar skoðunar að starfsfólki sjútvrn. farist þetta verk vel úr hendi. Þar er fátt fólk sem er í sambandi við aðila um allt land á hverjum einasta degi og ég sé ekki að það verði gert með betri hætti nema þá það sé fjölgað mjög mikið í starfsliði ráðuneytisins, en þar er mjög fátt fólk eða nokkuð innan við 20 manns. Auðvitað getur þetta litla ráðuneyti ekki svarað öllum fsp., öllum ályktunum sem til þess berast eða öllu því sem til þess er beint. Þar er kannski ekki alltaf um sanngjarnar fsp. að ræða og ætlast til mikils og það verður að reyna að svara því sem talið er mikilvægt og ég tel að það sé gert. Auðvitað kunna að vera á því einhverjar undantekningar eins og gengur og gerist í önnum dagsins, en ég tel að þar sé um minni háttar mál að ræða.

Að því er varðar málefni einstakra fyrirtækja eða einstök bréf sem hér var vitnað í tel ég ekki eðlilegt að ég svari því hér á hv. Alþingi. Ég tel eðlilegt að það sé fjallað um slík mál í ráðuneytinu og mun ég að sjálfsögðu geta greitt fyrir því. En ég tel ekki eðlilegt að ég fjalli um einstök mál hér á hv. Alþingi og mun ekki gera það.

Í öðru lagi spurði hv. þm. Júlíus Sólnes um meðalþyngd þorsks og ég vil aðeins vitna í og benda á töflu í skýrslu Hafrannsóknastofnunar á bls. 33 þar sem meðalþyngd kemur skýrt fram og sem betur fer hefur hún farið nokkuð vaxandi á síðustu árum og þar koma fram fróðlegar upplýsingar. Að því er varðaði fund sem hann vitnaði til var m.a. ákveðið í framhaldi af honum að breyta þeim viðmiðunarmörkum sem ég hef áður vitnað til.

Að lokum spurði hv. þm. Svavar Gestsson um mismuninn á aflamarki og aflahámarki. Þar er ekki í reynd um neinn mismun að ræða. Það er rétt sem hann sagði að á einum stað í 10. gr. var orðið aflamark notað. Það er ekki notað í þeim texta sem nú liggur fyrir eins og greininni hefur verið breytt, en hér er um að ræða að þau hugtök sem notuð eru eru fyrst og fremst sóknarmark og aflamark. Á þessu er mikill munur og síðan hefur verið talað um aflahámark í sóknarmarkinu, en að því er varðar smábátana skiptir í reynd engu máli hvort talað er um aflamark eða aflahámark. Það er raunverulega það sama sem við er átt, en það má út af fyrir sig segja að það sé óeðlilegt að vera að nota bæði hugtökin að því er varðar þeirra veiðar enda er það ekki gert í núverandi grein eins og hún liggur fyrir. Í reynd er hér ekki um neinn mismun að ræða hvort sem talað er í því tilfelli um 100 tonna aflamark eða 100 tonna aflahámark. Það er í eðli sínu enginn munur þar á.

Herra forseti. Ég vænti þess að ég hafi svarað þeim fsp. sem til mín hefur verið beint.