07.01.1988
Efri deild: 51. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3855 í B-deild Alþingistíðinda. (2718)
181. mál, stjórn fiskveiða
Frsm. 1. minni hl. sjútvn. (Skúli Alexandersson):
Herra forseti. Ég ætla mér ekki að lengja þessa umræðu mikið úr því sem komið er en aðeins segja nokkur orð.
Í fyrsta lagi vil ég taka undir skoðun hv. 8. þm. Reykv., ekki alveg kannski út frá því að ég hafi fullkomlega gert mér grein fyrir því sjálfur að lögfræðilega væri málið á þann veg sem hann lýsti hér heldur vegna þess að ríkislögmaður var fenginn til að fjalla einmitt um þennan þátt mála á sameiginlegum fundi sjútvn. og þar lýsti ríkislögmaður því yfir að sá sem væri að búa sig undir rekstur í sambandi við þessi lög stæði verr að vígi en ef lögin væru ekki með sólarlagsákvæðum. Það væri talin frekari trygging í því að þau lög sem væru án sólarlagsákvæðis eins og hér er væru gildari en þau lög sem væru samþykkt eftir þessu. Þ.e. það er alveg tekið undir skoðun hv. þm. Eyjólfs Konráðs að það er fyrst og fremst verið að undirstrika að lögin skuli ekki gilda lengur en í þrjú ár. (EKJ: Eingöngu.) Eingöngu það. Það er verið að undirstrika að það er ekki verið að skapa neinn sérstakan rétt með þessum ákveðna árafjölda þó að því hafi verið haldið fram af ýmsum aðilum á hv. Alþingi.
Ég þakka kærlega fyrir að hv. þm. skyldi koma upp og minna á þennan þátt sem er mjög mikilsverður í sambandi við þá lagasmíð sem er á lokaumræðunni.
Ég beindi nokkrum spurningum til hæstv. sjútvrh. og hann svaraði nokkrum af þeim og ég þakka honum fyrir þau svör sem hann gaf mér þó að ég sé langt frá því ánægður með þau. Í fyrstu spurningu spurði ég um hvað ráðherra hefði í hyggju, hvort hann hefði sérstakar ráðstafanir í hyggju til að stöðva eða draga verulega úr sókninni í smáþorskinn. Hann benti þar á að staðan væri raunverulega þannig að um lítið annað væri að ræða en veiða smáfisk. Því miður er staðan á þann veg, eins og hv. þm. Guðmundur Garðarsson benti á áðan, og lítið hægt að gera ef á að halda svipuðum afla sem nauðsynlegur er til að halda þjóðarbúinu í gangi, að eftir þessa fiskveiðistjórn, eftir að kvótakerfið hefði verið í gangi í fimm ár stöndum við frammi fyrir því að við getum lítið veitt annað en smáfisk. Það er búið að ganga svo nærri stofninum. Það er engin sérstök ábyrgð sem menn taka á sig í sambandi við að framlengja þetta kerfi. Það er ekki verið að taka á sig mikla ábyrgð. Það er verið að fría sig undan ábyrgð um að reyna ekki að breyta kerfinu og koma með nýtt kerfi sem skapaði okkur betri stöðu til að byggja upp veiðistofninn en gert er. En ráðherra benti vitaskuld á að við munum halda áfram svipaðri aðferð og við höfum beitt á undanförnum árum, bannsvæði, minnka það magn sem má vera í veiði skipa til þess að svæðum sé lokað, jafnvel reyna einhverjar tilraunir með að breyta legu möskva í trolli, en hann nefndi ekki hvort það yrði breytt beint möskvastærð og þótti mér það miður.
Hann nefndi einnig vandamálið í sambandi við kvóta og smáfisk, undirmálsfisk. Í frv. eins og það nú er orðið verður ekki dreginn frá kvóta undirmálsfiskur sem veiddur er á línu. Ég held að ég fari rétt með það. Það var talið nauðsynlegt við síðustu breytingu að leyfa að smáfiskur, sem veiddur væri í troll, væri undanþeginn kvóta. Það væri gerð tilraun til að fá menn til að koma með hann að landi við þær aðstæður. En hlutirnir eru einhvern veginn á þann veginn að allt sem er reynt að lagfæra í þessu kerfi skapar ný vandamál og hefur kannski skapað þau vandamál að það hefur verið leyft að koma með smáfisk að landi, að það hefur verið gengið meira í smáfiskinn. Vegna þess að hann er undanþeginn kvóta hafa menn látið slag standa, taka smáfiskinn í land, undanþeginn kvóta.
Ég beindi þeirri fsp. til hæstv. ráðherra hvort hann mundi ekki verða við óskum sjómanna, útgerða og fiskvinnslu, næstum samhljóða áliti allra þessara aðila við Breiðafjörð, að það yrði ekki leyfður smærri möskvi en 7 tommu. Það var ekki verið að ræða um 6 tommuna eingöngu heldur yrði leyft alveg upp í 7 tommur. Hann sagðist að vissu leyti vera sammála því að eitthvað slíkt þyrfti að gera, það þyrfti að stækka möskvann, en þarna væru alls konar vandamál sem kæmu í veg fyrir að þetta væri gert, óskir væru misjafnar, misjafnar skoðanir og svo það, sem mér þótti furðulegast af öllu, að bátasjómenn vildu endilega komast að sömu aðstöðu og togaramenn að fá að veiða smáfiskinn á svipaðan máta og togaramennirnir. Ég hef aldrei heyrt þessa kenningu fyrr. Þegar bátasjómenn við Breiðafjörð biðja um að það verði lögbundinn stærri möskvi þar eru þeir ekki að biðja um að fá að sækja smáfisk svipað og togaramenn heldur eru þeir að biðja um að það verði lokað fyrir að þeir geti sótt smáfisk á miðin.
Þriðja spurning mín var í tengslum við þessar spurningar á undan og svar ráðherrans tengdist svari hans við þeim spurningum að takmarka sókn í smáfiskinn og reyndar ræddi hann nokkuð um að við ættum svolitla von í Grænlandsárgangi þannig að það gæti styrkt okkar fiskisókn, mig minnir að hann hafi sagt 1990 eða 1991, og að við ættum kannski þar einhvern smástofn frá hrygningunni 1981 og væri það vel ef svo væri.
Svo spurði ég ráðherra um hvernig ráðuneytið vildi koma fram við þá aðila sem í lögunum eru bundnir ákveðnum kvöðum gagnvart ráðuneytinu um að skila því ákveðnum upplýsingum, láta ókeypis í té ýmsar upplýsingar, sem tilheyra viðskiptum útgerðarmanna, skipstjórnarmanna og kaupenda afla, við ráðuneytið, hvort það yrði ekki gagnkvæmt, hvort það væri ekki hægt að treysta því, þegar þess væri krafist af almenningi eða þeim sem fást við sjávarútveg hér á landi að þeir væru til reiðu hvenær sem væri að afhenda allar upplýsingar til ráðuneytisins, að það væri gagnkvæmt frá hendi ráðuneytisins. Ráðherra vildi ekki svara þessu fullkomlega, sagði þó að ráðuneytisliðið væri sýknt og heilagt að svara ýmsum spurningum sem ég efa ekki og ég veit að þeir gera. En það gæti orðið á misbrestur. Hvernig stendur á því að báðir aðilar eiga ekki að hafa sama rétt undir þessum kringumstæðum? Þegar það er lögfest að annar aðilinn skuli skyldur að láta af hendi upplýsingar hvernig stendur á því að hinn aðilinn skuli ekki skyldur til að gera slíkt hið sama?
Ráðherra sagði líka í sambandi við svar hans við þessari spurningu að ekki væru þær alltaf sanngjarnar, fyrirspurnirnar sem sendar væru til ráðuneytisins. Ég gæti vel trúað því og ég efa ekki að þær eru margar ósanngjarnar, spurningarnar sem lagðar eru fyrir ráðuneytið. Ég efa ekki að ráðuneytismönnum finnst hinn mesti óþarfi að vera að svara þeim. En gæti ekki verið að það væri á sama veg hjá þeim aðilum sem ráðherra er nú að fá Alþingi til að samþykkja að skuli vera skyldir til að skila ráðuneytinu ókeypis upplýsingum um hvað eina í sambandi við fiskveiðistefnuna og þessi lög? Gæti það ekki verið þegar ráðherrann eða ráðuneytið kemur til aðila, sem hefur ekkert af sér gert skv. þeim lögum sem hafa verið hér í gildi og eru nú í gildi, og það er krafist fullra upplýsinga á marga vegu frá þeim aðila, að þeim aðila fyndist það nokkuð ósanngjarnt? Er það nema sjálfsögð skylda að ráðuneytið svari á sama máta og þeim aðila er ætlað sem ráðuneytið tekur til og segir að hafi gerst brotlegur gagnvart lögunum, hefur ekkert gert af sér, en ráðuneytið heimtar allar upplýsingar til hins ýtrasta og þær skuli vera ókeypis? Mér finnst skrýtið ef ráðuneytið í sínu valdi getur krafist þess og hinn sami aðili getur ekki krafist þess sama af ráðuneytinu.
Ég bað hæstv. ráðherra um upplýsingar um tvo þætti úr beinum viðskiptum fyrirtækja við ráðuneytið sem eru á þann veg að ég tel að eigi ekki að eiga sér stað. Ég taldi að hinn eini rétti vettvangur til að fá svar við því væri á hv. Alþingi. Aðilinn leitar upplýsinga hjá ráðuneytinu um ákveðna hluti í sambandi við kvótaúthlutun, biður um afrit af bréfum sem ráðuneytið hafði sent viðkomandi aðila en viðkomandi aðili hafði glatað bréfunum. Annars hefði hann ekki verið að biðja ráðuneytið um það. Ráðuneytið svarar, mætti kannski segja á sæmilega kurteisan hátt, að þessi gögn eigi að vera í höndum viðkomandi og ráðuneytið gefi ekki þessar upplýsingar. Mér finnst, burt séð frá öllum lagagreinum, mjög vafasamt að ráðuneytið geti svarað á þennan veg, en ég verð að hlíta því að ráðherra svari á þann veg sem hann svaraði hér, en hann lofaði mér því um leið að hann mundi láta ráðuneytið svara því á öðrum vettvangi og ég vænti þess að ég fái svar við þessari spurningu minni frá ráðherranum þó það sé ekki beint í umræðum á hv. Alþingi sem ég hefði talið þó eðlilegra.
Hitt var bein spurning um ákveðnar upplýsingar í sambandi við viðskipti annars fyrirtækis við ráðuneytið þar sem ráðuneytið hafði gefið upp að það væri með ákveðin gögn í höndunum sem ekki féllu heim og saman við það sem fyrirtækið taldi vera. Það var einungis beðið um ljósrit af plagginu. Það var ekki beðið um meira. Getur þetta sama ráðuneyti krafist þess með lagabókstaf að hver og einn sem fæst við sjávarútveg á Íslandi skuli á sama tíma vera skyldugur til að láta sama ráðuneyti hafa hvað eina sem snertir þessi mál og það skuli ókeypis vera? Mér finnst þetta furðulegt svar. Ég verð þó að hlíta því að svar við þessari spurningu minni komi á þeim vettvangi sem ráðherra lofaði í ræðu sinni, þ.e. eftir því sem mér skildist að ráðuneytið mundi veita beinar upplýsingar um það á öðrum vettvangi.
Það er komið að lokum þessarar umræðu. Hún hefur að mínu mati verið nokkuð góð og mikið betri en þær umræður sem ég hef tekið þátt í hér á undanförnum árum. Hún hefur tekið nokkuð lengri tíma í hv. deildum Alþingis og við höfum séð árangur gerða okkar þó nokkuð mikinn þó hann hefði mátt vera meiri. Frv. hefur lagast nokkuð í meðförum. En frv. hefur ekki lagast á annan máta en þann að við höfum ekki getað lagað mikið þá fiskveiðistefnu sem við bjuggum við heldur hefur okkur tekist að laga nokkuð það frv. sem ráðherra lagði fram í upphafi. Það frv. sýndi ekki neina mynd af endurskoðun eins og ríkisstjórnin hafði lofað að yrði gert heldur allt á þann veginn að það var verið að þrengja kosti einhvers í þeim breytingum sem ráðherra lagði til í upphafi. Það var verið að þrengja kosti smábátamanna og það átti að þrengja kosti þeirra sem seldu fisk á erlendan markað. Sérstaklega var þó gert mikið úr því að þrengja aðstöðu smábátamanna. Það er sá þátturinn sem hefur lagast mest í meðförum þingsins, en langt frá því nógu mikið. Sú breyting sem er orðin á fiskveiðistefnunni frá því sem hún var í gildi sl. tvö ár er fyrst og fremst breytingin gagnvart smábátunum. Með þeirri breytingu er að miklu leyti verið að ógna byggð á ákveðnum stöðum á landinu. Það er verið að ganga á rétt þeirra manna sem voru trillubáta- og smábátaútgerðarmenn fyrir tíð kvótakerfisins með þeim rökum að það hafi fjölgað svo mikið í stéttinni. Í því kerfi sem við höfum búið við á undanförnum árum hefur þessi fjölgunarmöguleiki verið. Kerfið hefur kallað á þessa fjölgun og svo á að hefnast á byggðum eins og Grímsey, Bakkafirði, Gjögri á Ströndum, Borgarfirði og öðrum fyrir það að stefnan í fiskveiðimálunum gagnvart þessum mönnum hefur verið á þann veg að þarna hefur fjölgað. Meira en æskilegt hefði verið, geta sumir sagt. Þetta er mesti bletturinn á þessu frv. sem núna verður samþykkt eftir sjálfsagt stuttan tíma miðað við þá fiskveiðistefnu sem við bjuggum við áður.
Það mætti ýmislegt segja í sambandi við það sem hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson sagði hér áðan, en ég held að það sé rétt að sleppa því, lofa mönnum bara að fara að komast í háttinn, enda er hv. þm. horfinn úr sæti sínu og það er lítið gaman að spjalla um þetta mál nema hann sé einhvers staðar nálægur, og svo höfðu þeir líka ræðst ansi vel við hv. þm. Karvel Pálmason og hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson þannig að það hefði svolítið gert forseta okkar órólegan. Það er kannski ekki vert að endurtaka neitt þá hluti sem þá voru að gerast.
En ég frábið mér því að við höfum verið að halda hér uppi einhverjum pólitískum leik, við sem höfum andæft gegn þessari fiskveiðistefnu, kvótafrv. Það er af og frá. Við erum að berjast hér sem fulltrúar ótrúlega stórs hluta þjóðarinnar. Í þeim hópi, sem hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson var að telja hér upp, hann nefndi þar sjómenn, vélstjóra, skipstjóra og fleiri, í þeim hópi er ábyggilega stór hluti manna sem meira og minna eru andstæðir þeirri fiskveiðistefnu sem nú á að fara að samþykkja. Ég las upp áðan yfirlýsingu frá Sjómannasambandi Íslands þar sem einu undirstöðuatriði í þessari fiskveiðistefnu var mótmælt. Og ég veit ekki til þess að Sjómannasamband Íslands hafi breytt þar neitt um stefnu. Svona mætti lengi telja, en ég mun láta það vera nú.
Ég held að það sé full ástæða til þess núna í lok þessarar umræðu að þakka þeim hópi manna sem hefur fylgst með þessari umræðu af sérstökum áhuga hér á pöllunum. Það er því miður allt of sjaldgæft að við þm. vitum um það að mikið sé fylgst með þeirri umræðu sem við höfum hér í frammi í sölum Alþingis. Það hefur verið ánægjulegt og það hefur aukið álit Alþingis að hér hefur verið hópur manna á pöllunum jafnan þegar þetta mál hefur verið til umræðu. Það sýnir að það eru til hópar í þjóðfélaginu sem vilja fylgjast með því hvað er að gerast hér á hv. Alþingi. Þó svo að þessum mönnum hafi verið sendar hálfleiðinlegar kveðjur í einum fjölmiðli og það nefnt að þeir ættu ekki að vera velkomnir gestir hér inni á Alþingi Íslendinga, þá vil ég mótmæla þeirri skoðun og undirstrika það að ég veit ekki til annars en að þeir hafi verið hér sem sérstaklega prúðir og ánægjulegir gestir okkar alþm. við þessar umræður.
Ég ætla í lokin aðeins að undirstrika það að nú er verið að afgreiða fiskveiðistefnu, líklegast þá fiskveiðistefnu sem hefur haft minnst fylgi hér á hv. Alþingi allar götur frá því farið var að taka ákvarðanir hér á hv. Alþingi um fiskveiðistjórn. Í hv. Nd. fór það m.a.s. svo að brtt. sem voru bornar upp við þetta frv. eða a.m.k. ein brtt. var felld á jöfnum atkvæðum, og sumar greinar þessa frv. voru samþykktar með tveggja og þriggja atkvæða mun í hv. Nd. Þetta hefur ekki skeð fyrr, jafnlítill mismunur atkvæða, jafnlítill stuðningur við fiskveiðistefnuna. Það hefur verið stefnt að því, ég held ég megi fullyrða, hjá öllum ráðherrum nema þeim ráðherra sem nú situr að vinna að því og undir flestum kringumstæðum hefur það komist kring að það væri næstum algjör samstaða á Alþingi um slíkar aðgerðir sem þessar. Því miður er það ekki nú og því miður hefur það ekki verið á undanförnum árum síðan farið var að stjórna eftir þessum kvóta.
Staðreyndin er sem sagt sú að það er rétt naumur meiri hluti atkvæða hér á hv. Alþingi til þess að samþykkja þetta frv., en það er sjálfsagt í eðli sínu ekki meiri hluti þm. sem gerir það með fullkominni sannfæringu um það að hann sé að gera það besta í þessum málum sem þyrfti að gera. Ég er jafnsannfærður um það að meðal þjóðarinnar er ástandið svipað ef ekki hagstæðara fyrir okkur sem höfum verið að andæfa þessu frv. á undanförnum vikum og höfum lagt okkur fram um að reyna að breyta þessu og koma frv. á þann veg að það væri ekki til stórra skaða.
Ég held ég láti þessari umræðu minni lokið hér. Ég vil lýsa yfir andstöðu minni við frv. í þeirri mynd sem það er hér nú. Það hefur lítið sem ekkert breyst frá því sem það var til afgreiðslu í hv. deild þegar því var vísað til Nd. og það er alls ekki á þann veg að ég eða við alþýðubandalagsfólk í deildinni munum veita því stuðning okkar.