07.01.1988
Efri deild: 51. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3862 í B-deild Alþingistíðinda. (2723)
181. mál, stjórn fiskveiða
Eyjólfur Konráð Jónsson:
Herra forseti. M.a. með hliðsjón af því sem ég gerði grein fyrir hér í ræðu áðan að væntanlegum lögum er hægt að breyta hvenær sem er og líka að afnema þau og ekki er sýnilegur meiri hluti fyrir neinni annarri löggjöf um neina aðra stjórn fiskveiða eins og málum er háttað í dag, þá segi ég já.