11.01.1988
Neðri deild: 50. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3899 í B-deild Alþingistíðinda. (2732)
194. mál, verkaskipting ríkis og sveitarfélaga
Forseti (Óli Þ. Guðbjartsson):
Vegna orða hv. þm., sem komu fram í upphafi ræðu hans, um viðveru beggja hæstv. ráðherra er svo tækninni fyrir að þakka að nú sést það á forsetaborði hverjir eru í húsinu. Þar kemur fram að báðir þessir hæstv. ráðherrar, hæstv. forsrh. og hæstv. félmrh., eru í þessu húsi og hafa þar af leiðandi haft aðstöðu til að fylgjast með þessari umræðu ef þeir hafa kosið svo. (GHelg: Forseti. Er einhver hv. þm. stjórnarinnar, sem styður frv., í húsinu?) Samkvæmt því sem hér kemur fram eru 24 stjórnarliðar og 14 stjórnarandstæðingar í húsinu þannig að ég geri ráð fyrir því. (GHelg: Það finnst mér ekki gefa miklar upplýsingar um stuðning við frv.) Nei, það kemur ekki fram á þessari töflu heldur.