22.10.1987
Sameinað þing: 7. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 344 í B-deild Alþingistíðinda. (274)
32. mál, símar í bifreiðum
Flm. (Guðrún Helgadóttir):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir till. til þál. sem er að finna á þskj. 32 og er 32. mál þingsins. Flm. ásamt mér eru hv. þm. Margrét Frímannsdóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Guðrún Agnarsdóttir og Málmfríður Sigurðardóttir. Tillagan hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að beita sér fyrir því að settar verði almennar reglur um notkun farsíma í ökutækjum hér á landi og þær kynntar ökumönnum og við ökukennslu. Skipuð verði átta manna nefnd sem í eiga sæti fulltrúar frá Ökukennarafélagi Íslands, Félagi íslenskra bifreiðaeigenda, Bandalagi íslenskra leigubílstjóra, Landssambandi vörubílstjóra, umferðardeild lögreglu, Umferðarráði, Pósti og síma og dómsmrn. og skal fulltrúi þess jafnframt veita nefndinni forstöðu.
Nefndin skal hafa lokið störfum fyrir 1. maí 1988. Kostnaður við störf nefndarinnar greiðist úr ríkissjóði.“
Herra forseti. Ég skal ekki verða langorð um þessa till., enda orðið æðifáliðað hér í salnum. Það kann vel að vera að ýmsum finnist þetta kyndug tillaga vegna þess að erfitt muni reynast að setja einhverjar reglur um notkun síma í bifreiðum, en flm. eru sannfærðir um að það séu ekki ástæðulausar áhyggjur sem menn hafa af sívaxandi notkun þessara tækja.
Vitaskuld er farsími mikið öryggistæki fyrir þá sem um landið fara og ekki síður þá sem eru á sjónum í kringum landið. Og vissulega hefur aukin notkun farsíma auðveldað ýmsum starfsstéttum störf sín og sparað bæði tíma og peninga. Það er hins vegar orðin æ algengari sjón hér á þéttbýlissvæðinu og hér á höfuðborgarsvæðinu að mæta bifreiðum þar sem ökumaðurinn er á verulegum hraða og jafnframt niðursokkinn í símtal. Ég held að það hljóti að liggja í augum uppi að símtal valdi verulegri truflun á þeirri einbeitni sem ökumenn þurfa að hafa á svo erfiðu umferðarsvæði sem Reykjavíkursvæðið t.d. er.
Ég hef rætt hugmyndina að þessari till. við ýmsa aðila, og flesta þá aðila sem hér eru tilnefndir til ráðgjafar fyrir yfirvöld, og mér er óhætt að fullyrða að lögregluyfirvöld t.d, hafa af þessari sívaxandi símanotkun verulegar áhyggjur. Nú munu vera yfir 5000 farsímatæki í notkun í landinu en mér tókst ekki að fá upplýsingar um hve mikill hluti þeirra er í bifreiðum. En það fer ekki á milli mála að þessi notkun vex ótrúlega hratt og samkvæmt upplýsingum hjá Pósti og síma munu nú seljast milli 50 og 100 tæki í mánuði hverjum. Ekki síst er e.t.v. ástæða til að hafa áhyggjur af ungum ökumönnum, þeim sem eru að byrja að aka bifreið, sem finnst þetta tæki spennandi leikfang sem beri að nota sem allra mest.
Ég held því að það sé alveg nauðsynlegt að setja um þessa notkun einhverjar reglur sem mættu vera ökumönnum til leiðbeiningar. Í umferðarlögunum sem sett voru á síðasta þingi, nánar tiltekið 19. mars 1987, eru alls engin ákvæði um notkun þessara tækja og því ekki minnsta trygging fyrir því að ökukennarar leiðbeini nemendum sínum um að nota þessi tæki í sem mestu hófi.
Slysatíðni hér á landi er hærri en víðast hvar t.d. annars staðar á Norðurlöndum og það er óhugnanlegt að hugsa sér að árið 1984 slösuðust 44 börn undir 6 ára aldri í umferðarslysum, 90 á aldrinum 714 ára og 71 á aldrinum 15–16 ára. Árið 1985 slösuðust alls 129 börn undir 14 ára aldri, þar af létust þrjú. Og árið 1986 slösuðust 111 börn undir 14 ára aldri og þrjú létust. Ég hygg að þeir sem hafa komið á endurhæfingardeild Borgarspítalans við Grensásveg komist ekki hjá því að hafa verulegar áhyggjur af þessari slysatíðni, þar sem sjá má skelfilegar afleiðingar þessara slysa, þar sem dauðinn er ekki alltaf versta lausnin.
Við skulum heldur ekki gleyma því að við búum ekki eins vel að börnum okkar og margir aðrir hér í kringum okkur. Börn eru í miklu meira mæli úti í umferðinni eftirlitslaus og kemur þar vitanlega til skortur á dagheimilum og ekki síst skóladagheimilum og frístundaheimilum sem aðrar þjóðir bjóða skólabörnum að loknum skóladegi.
Herra forseti. Ég held að þetta mál skýri sig í raun og veru sjálft. Flm. eru ekki að fara fram á neitt bann við notkun þessara tækja, vitanlega ekki, þau hafa ómælda kosti fyrir þá sem þau nota af skynsemi. En ég held að hér verði yfirvöld að reyna að móta einhvers konar stefnu um notkun þessara tækja og reyna að koma henni með fræðslu og upplýsingum til ökumanna og ekki síst ökukennara. Flutningur okkar er því meira til þess ætlaður að vekja athygli á þessu máli og fara þess á leit við yfirvöld að aðilar sem til þessara mála þekkja gerst kanni ýmislegt sem af þessari notkun leiðir, svo sem eins og áhrifum notkunar talsíma á ökumann sem er í akstri, hvort hugsanlegt væri að mönnum yrði gert að draga að verulegu leyti úr hraða meðan á símtali stendur. Umferðaryfirvöld hafa varað okkur við að leggja til að menn stöðvi bifreiðina þegar sími hringir eða ökumaður þarf að nota síma og telja að a.m.k. hér á Stór-Reykjavíkursvæðinu sé jafnvel meiri hætta í því fólgin að bifreiðir séu stöðvaðar í tíma og ótíma en að ökumaður haldi leið sinni áfram.
Við flm. þessarar till. ætlum ekki að leggja mönnum neinar lífsreglur. Hið háa Alþingi eyddi nær tveimur árum í að setja umferðarlög og menn lögðu í það mikla vinnu hér á hinu háa Alþingi og reyndu að vanda það verk sem mest þeir máttu vegna þess einfaldlega að ég held að það sé áhugamál allra hv. alþm. að tryggja samborgarana sem allra best í umferðinni og reyna að sporna við þeim skelfilegu mannfórnum sem þetta samfélag færir á ári hverju í umferðarslysum.
Við væntum því að máli þessu verði gaumur gefinn og um það fjallað og ég leyfi mér, herra forseti, að vísa því til hv. allshn. Sþ. og vona að það verði skoðað þar gaumgæfilega.