12.01.1988
Neðri deild: 52. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3929 í B-deild Alþingistíðinda. (2740)

63. mál, lánsfjárlög 1988

Ingi Björn Albertsson:

Herra forseti. Frv. til lánsfjárlaga fyrir árið 1988 er punkturinn yfir i-ið hjá hæstv. ríkisstjórn varðandi aðgerðir í efnahagsmálum.

Það má hafa mörg orð um frv. og samsetningu þess og hvernig að málum hefur verið staðið hér á hinu háa Alþingi hvað varðar umræður og framsetningu alla þar sem reynt hefur verið í öllum þessum málum að knýja málin í gegn með sem minnstum umræðum. Svo hart er reynt að koma í veg fyrir umræður að það hlýtur að læðast að manni sá grunur að ekki sé nú allt með felldu. Enda hefur stjórnarandstaðan margoft gagnrýnt vinnubrögðin án þess að á hana hafi verið hlustað.

Það er eftirtektarvert að í dag hefur til að mynda ekki sést einn einasti jafnaðarmaður í salnum og eru þeir þó yfirmenn fjármála ríkisbúskaparins. Hér sjást varla framsóknarmenn þó að einn sé nú nýsestur í stólinn, en aldrei þessu vant er hægt að telja upp nokkra sjálfstæðismenn og ber að geta þess sérstaklega í þingtíðindum að þeir skuli sjást hér í þingsal. Það er reyndar með ólíkindum að hæstv. ráðherrar skuli bera þetta litla virðingu fyrir störfum þingsins að þeir séu nánast sjaldséðari en hvítir hrafnar.

Herra forseti. Á sama tíma og fara á að samþykkja lánsfjárlög fyrir árið 1988 eru allar forsendur fjárlaga og lánsfjárlaga nánast ómarktækar.

Fjmrh. hefur boðað umtalsverðar aðgerðir sem hann að vísu lætur ekki nokkur orð uppi um hverjar kynnu að verða.

Hæstv. utanrrh. hefur greint frá því að raunvaxtaokrinu verði að linna en gerir ekkert frekar en fjmrh. nokkra grein fyrir hugmyndum sínum um hvernig hann telur að grípa eigi þar inn í, heldur segir hann að hér sé allt að fara til andskotans ef ekki verði gripið í taumana.

Hæstv. viðskrh. afneitar raunvaxtaokrinu og neitar að þar þurfi að grípa til nokkurra ráðstafana þar sem enn sé ekki fullreynt á markaðslögmálin. Spurningin hlýtur að vera: Hvenær að mati ráðherrans verður markaðslögmálið fullreynt? Verður það mælt í fjölda nauðungaruppboða hjá almenningi og fyrirtækjum? Verður það mælt í fjölda gjaldþrota? Hvar liggja mörkin?

Forstjóri Þjóðhagsstofnunar segir að útflutningsgreinarnar þoli ekki fastgengisstefnuna öllu lengur og annaðhvort verði að fella gengið eða gera ráðstafanir til að draga úr tilkostnaði greina. Þar hefur hæstv. ríkisstjórn hjálpað mikið upp á með lagningu launaskatts á fyrirtækin og með stórskertum endurgreiðslum söluskatts í sjávarútvegi.

Nei, það er nú öðru nær að hæstv. ríkisstjórn sé eitthvað að hjálpa til, heldur er hún þvert á móti að íþyngja útflutningsgreinunum með öllum tiltækum ráðum.

Þá er ekki úr vegi að geta þess að forsendur tekjuöflunarfrumvarpa ríkisstjórnarinnar eru miðaðar við 10% verðbólgu fyrir þetta ár. Forstjóri Þjóðhagsstofnunar álítur að verðbólgan í dag sé um 30% og mun það vera óvefengjanlegt. Það stefnir í hörð átök á vinnumarkaðinum þar sem ljóst er að farið verður fram á allverulegar kauphækkanir, allverulega meiri en forsendur ríkisstjórnarinnar eru. Það er alveg deginum ljósara að þegar upp verður staðið frá samningaborðunum eru forsendur fjárlaga gersamlega brostnar.

Aðilar vinnumarkaðarins munu ekkert gefa eftir og telja að ríkið eigi ekki nokkra miskunn inni hjá sér. Þegar er komið í ljós að hæstv. ríkisstjórn hefur slegið Íslandsmet í skattheimtu og mega nú sjálfstæðismenn fagna því að vissulega eru þeir á réttri leið.

Þeir hafa lagt á hinn hörmulega matarskatt sem mun verða blettur á öllum stjórnarflokkunum um aldur og ævi. Þeir hafa stórskert kaupmátt launa og svo mætti lengi halda áfram.

Ég held að nú sé orðið tímabært fyrir hæstv. fjmrh. að fara aðra hringferð um landið og spyrja þjóðina og svara um leið hver eigi Ísland.

Sá tími er óðum að nálgast að jafnaðarstefnunni sé í raun náð fram. Það vantar ekki mikið upp á að ölmusukerfi jafnaðarmanna sé fullskapað. Jafnaðarstefnan felst í því að ríkja og drottna og láta síðan mylsnuna falla á borð almennings í hæfilegum skömmtum, þ.e. jafnaðarstefna er stefna hinna fáu útvöldu og nægir þar að nefna hina nýju stefnu jafnaðarmanna í sjávarútvegsmálum. Vissulega segja þeir annað en það er ekki það sem skiptir máli heldur hvað þeir gera. Það er heila málið.

Hæstv. forsrh. var hérna í salnum rétt áðan og ég hugðist spyrja hann í fjarveru hæstv. iðnrh. hvað ríkisstjórnin hygðist gera í sambandi við vanda ullariðnaðarins, hver væru viðhorf þeirra til þess vanda. Það væri þakkarvert að fá það fram, ekki bara fyrir þm., heldur ekki síður fyrir þann fjölda einstaklinga sem misst hefur vinnuna að undanförnu sem álitið er að séu eitthvað í kringum 500 manns svo ekki sé minnst á eigendur þeirra fyrirtækja sem orðið hafa fyrir verulegum missi. (HG: Það liggur hér fyrir fyrirspurn til ráðherrans.) Akkúrat.

Lánsfjárlög þessi eru óraunsæ að mestu leyti. Innlend lánsfjáröflun er ofmetin og þörfin fyrir erlendar lántökur er vanmetin. Það rifjast reyndar upp fyrir mér sú stefnuyfirlýsing viðskrh. frá því í vor eða sumar þar sem hann lýsti því yfir að engar erlendar lántökur yrðu á árinu 1988, en það liggur nú fyrir að þær eru farnar að slaga í 10 milljarðana og fara sennilega gott betur yfir það þegar upp verður staðið.

Það er því miður staðreynd að við þurfum á erlendu lánsfé að halda til að auka framleiðslugetu okkar og þar með útflutningstekjur. Einnig þurfum við á því að halda til ráðstöfunar.

Ríkisstjórnin áætlar að 5% aukning verði í framkvæmdum fiskvinnslufyrirtækja og 5% aukning í framkvæmdum hjá hinum almenna iðnaði árið 1988. Þetta hlýtur að kalla á skýringar. Á hvaða forsendum eru slíkar áætlanir byggðar? Hvað er það í þjóðfélagsmyndinni sem gefur tilefni til að áætla á þennan veg? Ég fæ ekki séð það en kalla eftir útskýringum.

Þá er ekki gert ráð fyrir neinu fjármagni til flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli. Er það nú raunsætt? Liggur það ekki á borðinu að framkvæmdum er ekki enn lokið við flugstöðina, og var ekki í fréttum nú nýlega að ýmsu er stórlega ábótavant þar? Eða telst það eðlilegt að innan um hálfdauðan og steindauðan hitabeltisgróðurinn þurfi starfsfólk að vera betur búið innan dyra en þeir er starfa utan dyra?

Nei, ég held að það sé alveg ljóst, því miður, að enn þurfi að eyða umtalsverðu fjármagni til flugstöðvarinnar og því beri að taka tillit til þess.

En svona í beinu framhaldi af þessu væri ekki úr vegi að spyrja hæstv. fjmrh., ef eyru hans eru þarna handan við vegginn, hvert sé næsta skrefið hjá honum eftir að flugstöðvarskýrslan margfræga er komin fram. — Hæstv. forseti. Ég sé að hæstv. fjmrh. er sennilega ekki þarna handan við vegginn. Ég ætla reyndar ekki að gera kröfu um að kallað verði á hann. Ég mun frekar stíga hér upp aftur þar sem ég er með skrifaða ræðu að mestu leyti og mun endurflytja hana þegar hæstv. ráðherra má vera að því að sinna sínum þinglegu skyldum. (Forseti: Ég mun láta kalla í hæstv. fjmrh.)

Og af því að ég var að spyrja hæstv. fjmrh., reyndar í fjarveru hans, um rannsóknir og því um líkt væri ekki úr vegi að spyrja hann líka hver hefðu orðið viðbrögð hans nú, ef hann væri „bara Jón“ en ekki „séra Jón“ eins og hann er núna, við þeim upplýsingum sem fram komu í þinginu um daginn, að fjmrh. væri að selja eignir ríkisins í trássi við lög og án heimilda þingsins. Ætli hæstv. ráðherra fyndist það ekki verðugt rannsóknarefni?

Þá vil ég líka spyrja hann hvort hann sé nokkuð búinn að gleyma yfirlýsingum sem hann gaf varðandi aukafjárveitingar. Má ekki alveg treysta því að þær yfirlýsingar standi? Þó ég viti jafnvel og aðrir að nokkur brestur hafi verið á er jú batnandi mönnum best að lifa.

Hæstv. forseti. Ég vildi gjarnan eyða nokkrum orðum og mínútum í það að fara í gegnum frv. og skoða nokkrar greinar.

Um 1. og 2. gr. þarf ég ekki að hafa langt mál. Þó liggur nú frammi brtt. við 1. gr. þar sem gert er ráð fyrir hækkun á heimild ríkissjóðs til innlendrar lántöku að upphæð 60 millj. kr. vegna línuframkvæmda við Krosssand og er ekkert nema gott um það að segja.

Í 3. gr. er heimild til handa Landsvirkjun til erlendrar lántöku að upphæð 600 000 millj. kr. Þarna verð ég að segja að það gætir lítils samræmis hjá valdhöfum þegar Landsvirkjun er annars vegar og Rafmagnsveitur ríkisins hins vegar og tel ég að að ósekju hefði mátt skera þessa heimild eitthvað niður og færa niðurskurðinn yfir til Rafmagnsveitna ríkisins og hefði ekki grátið það þótt þarna stæði 500 000 millj. kr. þar af leiðandi, sérstaklega með tilliti til þess að Landsvirkjun er mjög vel á vegi stödd og gerir sér jafnvel vonir um að vera búin að greiða upp skuldir sínar um eða upp úr aldamótum, skuldir sem skipta milljörðum. Slík áform hefur ekki fyrirtæki uppi sem er í vanda statt.

Um 4. gr. er það að segja að það er alveg ótrúlegt að Framsfl., sem nú er gjörsamlega týndur, og þá sérstaklega hæstv. utanrrh. skuli sætta sig við þann gríðarlega niðurskurð sem orðið hefur á framlögum til þessa einkabarns þeirra framsóknarmanna, Þróunarfélags Íslands, og mætti nú að ósekju rifja upp ummæli þeirra er þeir börðust fyrir þessu þjóðþrifafélagi fyrir rúmum tveimur árum. Fulltrúar félagsins hafa hins vegar af mikilli tillitssemi við stjórnvöld í baráttu stjórnvalda fyrir samdrætti erlendra lántaka aðeins farið fram á 10 millj. kr. hækkun á lánsheimild eða í allt 60 millj. kr.

Ég vil með leyfi forseta fá að lesa bréf það er borist hefur frá Þróunarfélagi Íslands hf. vegna frv. þessa þar sem þeir skýra sín sjónarmið. Bréfið hljóðar svo:

„Vegna frv. til lánsfjárlaga fyrir árið 1988 og athugasemda um lántöku Þróunarfélags Íslands hf. í þskj. 1, lið 7, lánsfjáráætlun, óskar félagið eftir að koma eftirfarandi á framfæri við yður:

Við afgreiðslu lánsfjárlaga fyrir árið 1987 sendi félagið þáv. fjh.- og viðskn. bréf um niðurskurð á árlegri lántökuheimild félagsins úr 200 millj. kr. niður í 100 millj. kr. Þó að sá niðurskurður gengi þvert á fyrri ásetning stjórnvalda var þó ekki gerður ágreiningur um þann niðurskurð vegna þess hve félagið hafði nýlega hafið starfsemi. Jafnframt var fjárhags- og viðskiptanefndum gerð grein fyrir því að félagið yrði að fá aftur fyrri heimildir á árinu 1988.

Í núv. frv. til lánsfjárlaga er hins vegar enn höggvið í sama knérunn og heimild yfirstandandi árs, þ.e. 100 millj. kr., lækkuð niður í 50 millj. kr. á árinu 1988. Slík meðferð gengur nærri því að kippt sé grundvellinum undan lánastarfsemi félagsins, en félagið hefur farið vel með þær heimildir sem því hefur verið trúað fyrir og ekki notað til fullnustu það lánsfé sem tekið hefur verið til þessa og getur því lifað af næsta ár með því að flytja fyrningar á milli ára.

Að sjálfsögðu hefur slík aðhaldssemi neikvæð áhrif á rekstrarlega afkomu félagsins því helsti tekjuliður þess er mismunur á vöxtum vegna lántöku og lánveitinga. Þó svo að forráðamönnum félagsins þyki stjórnvöld launa illa aðhaldssemi þessa að þessu leyti, þá skiljum við viðleitni stjórnvalda til þess að draga úr erlendum lántökum.

Með hliðsjón af því sem hér hefur verið sagt, sem og fyrri bréfaskiptum, förum við nú af fullri vinsemd fram á að nefndin geri tvennt fyrir félagið samfara þessum annars mikla niðurskurði 1988.

1. Lántökuheimild félagsins fyrir næsta ár hækki um 10 millj. kr. eða úr 50 í 60 millj. kr., en sú viðbót við fyrningar yfirstandandi árs er algjört lágmark til þess að við getum haldið uppi eðlilegri starfsemi á næsta ári og mætt fyrirsjáanlegum verkefnum.

2. Fjh.- og viðskn. láti félagið ekki gjalda sanngirni sinnar að þessu leyti er kemur að undirbúningi lánsfjárlaga ársins 1989, enda er ljóst að félagið mun þá hafa gengið svo á sjóði sína að það verður að fá aftur jafngildi upphaflegrar viðmiðunar, þ.e. 200 millj. kr.

Að lokum viljum við enn og aftur benda á þá meinloku eða þráhyggju sem komin er inn hjá þeim annars ágætu embættismönnum er undirbúa frv., þ.e. að félagið hafi nú þegar notið ríkisábyrgðar á 340 millj. kr. af 500 millj. kr. heimild samkvæmt sérstökum lögum. Af þeirri heimild hefur ekkert verið notað.“

Um Þróunarfélagið almennt vil ég aðeins segja það að sé tilgangi þess og markmiðum, sem sett voru, náð er félagið allra góðra gjalda vert. Um það má hins vegar efast hvort félagið sé á réttri leið svo að notaður sé gamalkunnur frasi. Spurningin er hvort félagið sé ekki að færast óþægilega nálægt því að verða enn eitt ávöxtunarfyrirtækið því að þótt eftirfarandi segi á forsíðu bæklings Þróunarfélagsins er ber nafnið „Nýjar leiðir“, með leyfi forseta, segir í síðustu setningunni: „Þróunarfélag Íslands hf. tekur áhættu með þér.“

Á máli fulltrúa félagsins er mættu á fund hjá hv. fjh.- og viðskn. var annað að heyra eða reyndar alveg öfugt.

Herra forseti. Það væri sem sagt athyglisvert að heyra eitthvað í hv. þm. Framsfl., hvort þeir séu sáttir við framgang mála. Finnst þeim að framlög til þessa málaflokks, sem á að taka til nýjunga í atvinnulífi, á að efla nýsköpun, sem hvort tveggja á síðan að vera undirstaða batnandi hags og bættra lífskjara í landinu, finnst þeim að hér sé allt í himnalagi?

Um 6. gr. er hægt að hafa langt mál þar sem um er að ræða heimild til handa Byggðastofnun til lántöku að upphæð 550 millj. kr. þar sem 200 millj. kr. eru ætlaðar til viðgerða og endurbóta á skipum innan lands. Eftir standa þá 350 millj. sem að mínu mati er allt of lágt með tilliti til hlutverks Byggðastofnunar, og því skora ég enn á þm. Framsfl. að tjá sig um þá byggðastefnu og atvinnustefnu sem felst í frv.

Fram kom í hv. fjh.- og viðskn. að lánsloforð um áramót námu 300 millj. kr. og að umsóknir sem nú liggja inni hafa stóraukist og að um allverulegar fjárhæðir er að ræða sem Byggðastofnun mun hvergi nærri ráða við.

Nú hefur hins vegar komið fram brtt. frá meiri hl. fjh.- og viðskn. um að þarna verði bætt um betur og bætt við 200 millj. kr. Undir þá tillögu vil ég taka heils hugar en tel engu að síður að enn skorti þó nokkuð á.

Í 7. gr. er heimiluð lántaka til handa Herjólfi hf., Vestmannaeyjum, að upphæð 100 millj. kr. til hönnunar og smíði á nýrri ferju. Árið 1987 var veitt til sama verkefnis heimild fyrir 25 millj. kr. Samtals er því búið að heimila lántökur til smíði og hönnunar á ferju fyrir Herjólf að upphæð 125 millj. kr. Samt er enn ekki búið að taka ákvörðun um það hvernig skip eigi að byggja þótt fyrir liggi teikningar. Þetta getur ekki talist eðlilegt og Alþingi hlýtur að krefjast þess að ákvörðun um það hvernig ferju skuli byggja ásamt nákvæmri kostnaðaráætlun liggi fyrir fyrr en seinna. Það er talið út frá þeim hugmyndum sem nú eru uppi að ferjan muni kosta um 700 millj. kr. sem þýðir með flugstöðvarútreikningum væntanlega eitthvað í kringum milljarðinn. Ég er alls ekki að draga úr því að smíðuð verði ný ferja, heldur aðeins að benda á að hér vaða menn áfram án þess að nokkur skapaður hlutur sé á hreinu. Ég vil aðeins minna menn á hönnunarkostnaðinn við flugstöðina. Þá mætti líka velta því fyrir sér hvaða sérstaka hönnun þurfi við ferjuna. Þarf hún að vera svo frábrugðin öðrum ferjum sem smíðaðar eru víða um heim að það skuli kosta tugi ef ekki hundruð milljóna að hanna hana?

Ég tek sterklega undir þá brtt. sem fram hefur komið frá hv. þm. Kjartani Jóhannssyni og Guðmundi G. Þórarinssyni við þessa grein þar sem gert er ráð fyrir að þetta sé fært undir ábyrgð fjvn. og fjmrh.

Um 8. gr. er það að segja að þar rétt ná stjórnvöld að bjarga andlitinu þar sem til stóð að veita enga heimild til smíða á Breiðafjarðarferjunni þrátt fyrir fyrirliggjandi samþykki fyrrv. samgrh., en þetta er sem sagt komið inn og því vil ég fagna.

Þó get ég ekki varist að minnast á hafnarmálin í Stykkishólmi annars vegar og á Brjánslæk hins vegar. Staðan í dag er sú að höfnin á Brjánslæk verður tilbúin til að taka á móti Breiðafjarðarferjunni þegar hún kemst í notkun, en höfnin í Stykkishólmi verður ekki tilbúin ef fram fer sem horfir þar sem fjárveitingar vantar til hafnargerðar í Stykkishólmi og er það reyndar furðulegt að ráðamenn skuli heimila að smíða bílaferju yfir einhvern tiltekinn fjörð og gera síðan lendingaraðstöðu aðeins öðrum megin fjarðarins. Þannig að ef fram fer sem horfir siglir Breiðafjarðarferjan fasta áætlun frá Brjánslæk til Brjánslækjar. Þetta er náttúrlega fyrir neðan allar hellur og ég skora því á hæstv. samgrh. að taka á þessu máli og leysa það á viðunandi hátt fyrir alla aðila.

Í athugasemdum við einstakar greinar frv. eru 9.25. gr. afgreiddar mjög smekklega eða með aðeins sjö línum sem gerir að meðaltali svona einn þriðja úr línu á hverja grein. Þetta er í mínum huga talandi dæmi um hvernig ekki á að vinna. Ég verð að segja það að slík vinnubrögð eru mér nú orðin kunn hér innan veggja Alþingis og nægir að nefna til dæmis frumvörpin um tolla og vörugjöld. Ekkert virðist vera gert til þess að nefndarmenn, sem og aðrir þm., fái sem gleggsta mynd af því máli sem þeim er gert að fjalla um það og það sinnið.

Í 12. gr. er enn einu sinni skorast undan því að fatlaðir fái sitt lögbundna fjárframlag. Lögbundinn réttur fatlaðra er ár eftir ár brotinn þótt allir, þm. sem aðrir, viðurkenni að málefnum fatlaðra er hvergi nærri nógu vel sinnt þótt vissulega megi segja að þau hafi færst til betri vegar nú síðustu árin. Það gefur hins vegar engan rétt til þess að skera niður lögbundin framlög til þeirra. Þau framlög sem til fatlaðra fara eru þjóðhagslega arðbær þegar til lengri tíma er litið. Auðvitað á að gefa hugviti fatlaðra og verklagni þeirra kost á að njóta sín. Það er í verkahring þjóðfélagsins að skapa fötluðum þá aðstöðu sem kallar það besta fram í hverjum einstaklingi hvort heldur hann er fatlaður eða ekki. Því segi ég hiklaust að þeim fjármunum sem varið er í þágu málefna fatlaðra er vel varið og betur varið en í margt annað.

Ég er meðflm. að tillögu þess efnis að 14. gr. verði felld niður og að framlög til Hafnabótasjóðs verði óskert. Fyrir þeirri tillögu hefur hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon þegar talað og hef ég engu við það að bæta.

15. gr. gerir ráð fyrir því að framlög til Fiskveiðasjóðs Íslands verði felld niður. Ef þetta þýðir það að lánveitingar til fiskeldis verði þar með stöðvaðar vil ég vara sterklega við því þar sem gífurlegur vaxtarbroddur felst í fiskeldi á Íslandi, svo mikill að við verðum að hlúa að þeirri atvinnugrein sem best við getum. Því fer ég fram á að framlög til sjóðsins verði ekki felld niður en flyt þó á þessu stigi málsins ekki sérstaka tillögu þess eðlis.

Enn eitt árið er gert ráð fyrir stórfelldri skerðingu á framlögum til Ferðamálasjóðs sem er hreint út sagt óviðunandi. Reyndar er ótrúlegt að við skulum ætla enn eitt árið að þverskallast við að viðurkenna mikilvægi þess að vel sé staðið að ferðamálum okkar Íslendinga, hvort sem um er að ræða ferðalög Íslendinga eða útlendinga innan lands, landkynningarstarfið, umhverfismálin o.s.frv. Allar stærstu þjóðir heims viðurkenna mikilvægi ferðamannaiðnaðarins og hvílíkur vaxtarbroddur var og er í þessari starfsemi. Það er til lítils að setja þjóðina nánast á hausinn við það að reisa flugstöð um efni fram og vanrækja síðan hina hliðina, þá hlið að kalla eftir viðskiptavinum. Þetta er óneitanlega í anda Breiðafjarðarferjunnar er ég fjallaði um fyrr í ræðu minni. Ég held að við verðum að fara að gæta að okkur þarna. Þessi vinnubrögð eru að komast upp í vana.

Ég er meðflm. að tillögu þess efnis að skerðingin til Ferðamálasjóðs verði minni og að framlagið til sjóðsins verði hækkað upp í 40 millj. kr. eða hækkað um litlar 12 millj. Er það skilningur flutningsmanna og reyndar skilyrði að 2/3 hlutum hækkunarinnar, 8 millj. kr., verði varið til umhverfismála og 4 millj. kr. til landkynningar og ferðalaga innan lands.

Þá vil ég einnig mótmæla skerðingunni til Atvinnuleysistryggingasjóðs sem síst af öllu skyldi skerða nú við þær aðstæður sem hvarvetna blasa við í þjóðfélaginu og ekki er ólíklegt að til kasta sjóðsins kynni að koma fyrr en menn grunar.

Þá er komið að 22. gr. þar sem segir að þrátt fyrir ákvæði 22. og 23. gr. laga nr. 68/1985, útvarpslaga, skuli tekjur á árinu 1988 vegna aðflutningsgjalda af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum ásamt fylgihlutum renna í ríkissjóð.

Eftir að hafa gluggað í umræður um lánsfjárlög frá því í fyrra þar sem mér sýnist að umræður um lánsfjárlög hafi nánast snúist upp í umræður um þennan lið lánsfjárlaganna er alveg ótrúlegt að það skuli vera alþýðuflokksmaður sem viðheldur ósómanum. Innan raða jafnaðarmanna hefur til skamms tíma verið einn helsti baráttumaður fyrir Ríkisútvarpið, núverandi þingflokksformaður jafnaðarmanna, hv. þm. Eiður Guðnason. Hann sagði ýmislegt athyglisvert við þessar umræður fyrir aðeins ári síðan. Hann barðist með kjafti og klóm fyrir því að Ríkisútvarpið fengi að hans mati réttláta meðferð og hann færði fyrir því ýmis rök og alveg örugglega hefur hann greitt atkvæði gegn skerðingunni á síðasta ári. En hvað gerði þingflokksformaðurinn við atkvæðagreiðsluna í hv. Ed. fyrir nokkrum dögum? Hann gleymdi öllum stóru orðunum og greiddi atkvæði með skerðingunni.

Hvernig væri að líta aðeins á hvað hv. þm. og þingflokksformaður Alþfl. sagði fyrir réttu ári síðan. Þegar hann er búinn að vera að fjalla um þetta málefni segir hann til dæmis, með leyfi forseta: „Nú spyr ég hæstv. fjmrh. og formann Sjálfstfl.: Er það sem mér sýnist stefna Sjálfstfl. að knésetja Ríkisútvarpið í fjármálalegu tilliti á kostnað hinna svokölluðu frjálsu stöðva sem hafa engar skyldur, bara réttindi? En Ríkisútvarpið? Á það að hafa bara skyldur og engin réttindi? Mér sýnist það stefna þessarar ríkisstjórnar og það er satt að segja furðulegt ef öll ríkisstjórnin stendur óskipt að því.“

Og nú tek ég upp spurningu hv. þm. til formanns hans eigin flokks: Er það meining Alþfl. að knésetja Ríkisútvarpið?

Aðeins síðar í ræðu sinni segir þingflokksformaður Alþfl. eftirfarandi, með leyfi forseta: „Spurningin er: Á nú að koma Ríkisútvarpinu, þessum fjölmiðli okkar allra, á kné með því að setja Ríkisútvarpið í fjárhagslega spennitreyju eins og mér sýnist allt benda til að núverandi stjórnarflokkar séu að gera? Ég endurtek, ég bið þm. að hlusta grannt, að hér er um mjög alvarlegt mál að ræða.“

Þarna spyr hv. þingflokksformaður stjórnarflokkanna hvort setja eigi Ríkisútvarpið í fjárhagslega spennitreyju og biður þingheim að leggja vel við hlustir því hér sé um alvarlegt mál að ræða. Trúir því einhver að þessi sami maður hafi nú greitt atkvæði með nákvæmlega sams konar skerðingartillögu á hendur Ríkisútvarpinu?

Við skulum halda aðeins áfram að glugga í ræðuna. Með leyfi forseta segir þingflokksformaður jafnaðarmanna í beinu framhaldi af því sem ég var að lesa upp:

„Menn hafa sjálfsagt gaman af því að hér er komin ný útvarpsstöð, sem spilar létta tónlist allan daginn, og það er komin ný sjónvarpsstöð, sem sýnir einhvers konar framhaldsþætti og sápuóperur, sem svo eru kallaðar, löðurþætti og afþreyingarefni af svona heldur léttara taginu. Jú, jú. Menn hafa sjálfsagt gaman af þessu, en ég spyr: Er þetta nú mikill menningarauki allt saman?"

Nú er rétt að rifja upp fyrir hv. þm. að hér er verið að ræða um byggðastefnu Alþfl. því eins og mönnum er eflaust í fersku minni eru afruglarar undanþegnir söluskatti vegna byggðastefnu Alþfl. og hefur það ítrekað komið fram í máli formanns Alþfl.

Og hvað er þingflokksformaðurinn að segja um byggðastefnu flokks síns? Hann segir um hana að þarna sé á ferðinni sjónvarpsstöð sem sýni, takið eftir, „einhvers konar framhaldsþætti og sápuóperur, sem svo eru kallaðar, löðurþætti og afþreyingarefni af svona léttara taginu“, og jú, jú, menn hafi sjálfsagt gaman af þessu en þetta sé nú enginn menningarauki. Þarna loksins get ég verið sammála. Það fer lítið fyrir menningaraukanum í byggðastefnu Alþfl. Já, þær fjúka fyrir lítið, skoðanir kratanna þessa dagana.

Herra forseti. Ég þekki ekki alveg fyrri hefðir og reglur þingsins, hvort það sé í rauninni viðeigandi að vitna mikið í orð manna úr öðrum deildum, en ég taldi mér það óhætt, sérstaklega í ljósi þess að þarna er um þingflokksformanninn að ræða.

Herra forseti. Ég er meðflm. að brtt. við þessa grein þar sem tillagan er sú að greinin verði felld niður og að Ríkisútvarpið fái sín lögboðnu fjárframlög óskert, enda má segja að þau hafi þegar verið stórlega skert með tilkomu nýju tollalaganna eða um allt að helming reikna ég með.

Að lokum vil ég aðeins fjalla um 25. gr. þar sem fella á niður framlag til sjóðs vegna eyðingar refa og minka. Ég spyr bara í einfeldni minni: Er það stefna ríkisstjórnarinnar að fylla landið af villtum ref og mink eða er ríkisstjórnin með þessu að boða friðun minka og refa? Mér finnst fáránlegt að fella þessa litlu fjárhæð út, fjárhæð sem ég held að hafi verið milli 3 og 4 milljónir á síðasta ári. Það á þvert á móti að gera allt sem mögulegt er til að sporna við vexti villtra refa og minka sem mér hefur skilist að þegar í dag stefni í verulegt óefni.

Um 27. og 28. gr. er lítið hægt að segja í raun og veru þar sem þarna er verið að fara fram á hluti sem ekki eiga sér stoð í lögum þar sem þessar tvær greinar eru þarna inni vegna frv. um verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga sem alls óvíst er hvernig fer að svo stöddu. Hins vegar liggur frammi brtt. við þessa grein sem tekur á því ef svo skyldi fara að frv. um verkskiptinguna nái ekki fram að ganga.

Þá vil ég fara nokkrum orðum um 31. gr. og þá eingöngu um síðustu mgr. þar sem Landsvirkjun er heimilt að stofna til svokallaðra skulda, og eða vaxtaskipta vegna erlendra lána sinna. Ég fagna þeirri breytingu á greininni sem orðið hefur frá upprunalega frv. og vil láta í ljós þá skoðun mína að þessi möguleiki á að vera opinn öllum sem á annað borð eru með erlend lán fyrir ofan vissa stærðargráðu þar sem það er augljóst að slíkar skuldbreytingar geta létt stórlega undir með fyrirtækjum og stofnunum, ekki síst á þeim tímum sem við nú lifum á, og er auðvelt að benda á að það hefði reynst mörgum hagstætt að hafa fyrir svo sem ári breytt erlendu láni úr einhverri stöðugri mynt í bandarískt dollaralán. Þá þarf varla að taka fram að það er hinn raunverulegi skuldari sem hagnast mest á slíku þegar upp er staðið.

Herra forseti. Ég sit sem áheyrnarfulltrúi míns flokks, Borgarafl., nefndafundi hv. fjh.- og viðskn. og vil þess vegna ítreka það, sem fram kemur í nál. minni hl., að ég stend heils hugar að því nál. Þar segir m.a. að minni hl. geti ekki staðið að afgreiðslu frv. vegna ýmissa ástæðna. Fáist hins vegar þær brtt. sem fluttar eru af fulltrúum minni hl. ásamt mér og einnig sú brtt. sem flutt er af hv. þm. Kjartani Jóhannssyni og Guðmundi G. Þórarinssyni samþykktar kemur vel til greina að veita frv. þessu atkvæði.

Þá vil ég ítreka þá skoðun Borgarafl. að forsendur frv. um 10% verðbólgu á þessu ári eru gersamlega óábyrgar forsendur. Það er frekar að reikna megi með svipaðri verðbólgu og nú er, enda eru þess engin merki að verðbólgan sé á niðurleið. Þvert á móti stefnir í hörkuátök á vinnumarkaðnum sem eiga eftir að reynast þjóðfélaginu dýr.

Þá virðist vofa yfir gengisfelling þó ekki fáist það staðfest enn sem komið er. En eitt er þó alveg ljóst. Hvort sem ríkisstjórnin velur leið gengisfellingar eða einhverja aðra leið verður að taka nú þegar á vanda útflutningsgreinanna á annan hátt en nú virðist vera stefnan, þ.e. að ríkisstjórnin viðurkenni vandann og láti þar við sitja. Að vísu vantar ekki loðnar yfirlýsingar um efnahagsaðgerðir, en lengra ná ráðstafanir ráðvilltrar ríkisstjórnar ekki.

Þá er gert ráð fyrir að lífeyrissjóðirnir kaupi skuldabréf fyrir 6,1 milljarð kr. á árinu. Sé þessi tala rétt, þ.e. séu þetta raunverulega 55% af ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna sem ég efast stórlega um, reikna með að þarna sé vanáætlað og að ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna sé töluvert meira en gefið er upp, en sé þetta rétt er engu að síður hægt að reikna með hærri upphæð frá lífeyrissjóðunum vegna þeirra kjarasamninga sem nú fara í hönd þar sem laun munu hækka verulega og þar af leiðandi hækka greiðslur til lífeyrissjóðanna í réttu hlutfalli við launahækkanir. Annars er furðulegt að engar upplýsingar skuli vera til um raunverulegt ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna eins og fram hefur komið hjá Gunnari Hall hagsýslustjóra. Ég hefði haldið að lífeyrissjóðirnir féllu undir sömu lög og reglur hvað varðar bókhald og aðrir aðilar þjóðfélagsins en það er nú önnur Ella.

Þá ber að harma að það skuli vera á herðum ríkisstjórnarinnar sú ábyrgð er fylgir því ástandi sem nú er í vaxtamálum þar sem ríkið er í bullandi samkeppni um sparifé landsmanna og sprengir upp vexti með útgáfu ríkisskuldabréfa með óhóflegum vaxtakjörum. Ríkisvaldið hefur valdið víxlhækkun á vöxtum með ráðstöfunum sínum og er nú mesti dragbítur á alla húsbyggjendur sem aðra skuldara þessa þjóðfélags.

Þá vekur það furðu að ekkert eftirlit er með hinum svokallaða „gráa fjármagnsmarkaði“ og vekur það enn meiri furðu að bankaeftirlit Seðlabankans veit alls ekkert um þessa hlið lánastarfseminnar í landinu.

Herra forseti. Íslenska þjóðin er með hverjum deginum sem líður að gera sér betur grein fyrir aðgerðum þessarar ríkisstjórnar, þeim skattpíningum sem ríkisstjórnin stendur fyrir. Matarskatturinn er nú lagstur á með öllum sínum þunga, slíkum þunga að jafnvel ráðherrar virðast ekki hafa gert sér grein fyrir því þrátt fyrir að stjórnarandstaðan hafi ítrekað varað þá við. Þjóðin er vissulega að gera sér grein fyrir nýársgjöf valdhafa og ég get fullyrt að þar var um bjarnargreiða að ræða.

Herra forseti. Hér er lagt fram frv. sem yfirfullt er af skerðingarákvæðum þrátt fyrir gildandi lög. Að mínu mati eiga lög að standa og gilda. Til þess eru þau sett. Ef hins vegar menn eru ósáttir við gildandi lög erum við kjörnir til að taka á slíkum málum og breyta þeim á þá lund að hægt sé að virða þau. Hvernig er hægt að ætlast til þess að allur almenningur virði lög þegar sjálf löggjafarsamkunda þjóðarinnar gerir það ekki?

Herra forseti. Það er ekki síst vegna þessa sem ég er mótfallinn þessu frv.