12.01.1988
Neðri deild: 52. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3955 í B-deild Alþingistíðinda. (2747)
63. mál, lánsfjárlög 1988
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh., sem einnig starfar sem iðnrh. þessa daga, fyrir þátttöku hans hér í umræðunni og svör hans svo langt sem þau náðu. Ég get ekki lýst yfir neinni sérstakri ánægju með það sem fram kom í hans máli út af fyrir sig og á eftir að gera örfáar athugasemdir við það. Að því er snerti Rafmagnsveitur ríkisins og þá yfirlýsingu hæstv. ráðherra um að þar væri að vænta einhverra viðbragða af hálfu ríkisstjórnarinnar, fannst mér þó að þar væri aðeins glæta sem kæmi fram í því efni. Jafnframt eindreginni viðurkenningu af hálfu hæstv. ráðherra á að við mikinn fjárhagslegan vanda er þar að etja.
Hæstv. ráðherra þekkir þetta, eins og ég vakti athygli á í fyrri ræðu minni, sem þátttakandi í stjórnskipaðri nefnd í tengslum við afnám verðjöfnunargjalds af raforku, þekkir þá eiða sem uppi voru hafðir í þeim efnum, og ég skora á hæstv. ríkisstjórn að horfast í augu við þennan vanda, fyrri loforð gefin í sambandi við breytingar á afkomumöguleikum Rafmagnsveitnanna með niðurfellingu verðjöfnunargjalds og afhendingu flutningslína til Suðurnesja, og reyna að kippa þeim málum í liðinn þannig að ekki syrti enn frekar í álinn fyrir viðskiptavini Rafmagnsveitnanna með auknum verðmun á raforku, jafnt til húshitunar sem almennra heimilisnota, umfram það sem gerist á öðrum svæðum í landinu og þá á þessu stóra þéttbýlissvæði, Reykjavíkursvæðinu.
Þetta þolir ekki mikla bið. Þessi vandi vefur upp á sig á degi hverjum. Við verðum að skora á stjórnvöld að taka á þessu máli fyrr en seinna og þau verða áreiðanlega minnt á það þegar kemur fram á árið hverjar séu úrlausnirnar í málefnum þessa mikilvæga fyrirtækis og þá nefni ég í leiðinni Orkubú Vestfjarða sem ég hygg að búi einnig við verulega fjárhagslega erfiðleika og þar sem viðskiptavinir þess fyrirtækis hafa borið sömu gjaldskrá og Rafmagnsveiturnar í aðalatriðum undanfarin ár.
En þá er það, herra forseti, Ríkisútvarpið. Ég átti nú von á að hæstv. menntmrh. kæmi fram sem gæslumaður þess ríkisfyrirtækis, a.m.k. vaktmaður af nokkuð meiri röggsemi og metnaði fyrir hönd þessa geysilega þýðingarmikla fjölmiðils, Ríkisútvarpsins, en fram kom í ræðu hans. Hæstv. ráðherra talaði um einokunarfyrirtæki sem þyrfti að hafa auga með og mætti ekki ganga sjálfala. Út af fyrir sig þarf að fylgjast með rekstri ríkisfyrirtækja sem annarra fyrirtækja í landinu. Það er rétt. Hæstv. ráðherra gat um stórfellda hækkun gjaldskrár Ríkisútvarpsins. Ég held að það hafi verið nefnd 85%, kannski ekki af ráðherranum en einhvers staðar las ég þá tölu, hækkun afnotagjalda Ríkisútvarpsins á seinni hluta ársins 1987. En ráðherrann gat ekki um það í leiðinni að Ríkisútvarpið fékk ekki neina gjaldskrárhækkun allt árið 1986 og fyrri hluta árs 1987, til 1. júlí þess árs. Það bjó við lækkandi tekjur í afnotagjöldum í eitt og hálft ár á sama tíma og stjórnvöld sviptu þetta opinbera fyrirtæki tekjum í framkvæmdasjóð sem nam um 300 millj. kr., tekjutapið vegna skerðingarákvæðis hliðstætt því ákvæði sem er í frv. til lánsfjárlaga varðandi Ríkisútvarpið og tekjur til þess af innflutningsgjöldum á útvarpsbúnaði. Þarna er mjög óeðlilega að staðið, alveg óforsvaranlega af stjórnvalda hálfu. Ég held að menn ættu ekki að vera að efna til umræðu um samanburð við aðra fjölmiðla, þessi fyrirtæki, sumpart ævintýrafyrirtæki, sem verið er að stofna til í landinu í fjölmiðlun, útvarpsfélög með hinum og þessum nöfnum, ég þekki þau ekki öll einu sinni, þar sem ekki er kannski mjög bjart fram undan og menn eru að keppa um sama bitann, auglýsingatekjurnar ekki síst, en njóta einnig velvildar og meiri velvildar stjórnvalda á stundum en sjálft Ríkisútvarpið og birtist okkur í till. um að það megi ekki leggja söluskatt á afnotagjald stofnana eins og Stöðvar 2, á afruglara svokallaða, þeir skuli vera undanþegnir söluskatti, gjaldtaka sem er afnotagjald þessarar stöðvar sem verið er að hlúa að með því að undanþiggja þennan lykil söluskatti samkvæmt ákvörðunum sem voru teknar fyrir nokkrum dögum og höfðu áður verið mótaðar af hæstv. fjmrh. og hann réttlætti með dálítið sérstökum hætti og liggja fyrir í þingskjölum skýringar hans í þeim efnum.
Nei, virðulegir samþingmenn, ég held að við þurfum að huga að stöðu Ríkisútvarpsins sem menningarstofnunar og gæta þess að Ríkisútvarpið geti haldið í horfinu þrátt fyrir þá samkeppni sem opnað var fyrir af meiri hlutanum á Alþingi hér fyrir tveimur árum, geti verið samkeppnisfært um efni, dagskrárgerð og annað, mannafla, en sé ekki verið að kreista með óeðlilegum hætti og draga úr máttinn eins og hér er verið að gera. Nýjustu fréttirnar sem ég var að heyra í dag af hálfu forráðamanna útvarpsins voru á þá leið að ein af sparnaðarráðstöfunum þessarar stofnunar ætti að vera að hætta að flytja fregnir af störfum Alþingis í formi Þingsjár. Það eru viðbrögðin á þeim bæ ef rétt er hermt það sem flaug fyrir hér í dag að stæði til að draga sérstaklega úr fréttaflutningi af störfum Alþingis.
Skyldi vera nokkurt samhengi á milli þess og þess málflutnings sem hér hefur verið og hvernig ríkisstjórnin hefur staðið að málum á undanförnum mánuðum og dögum þar sem stjórnarandstaðan hefur lagt sig fram um að reyna að koma vitinu fyrir ríkisstjórnina í einstökum málum eins og með matarskatt og fleira, mál sem enn bíða hér afgreiðslu sum hver og verða nú vonandi skoðuð betur sum hver?
Ég vil út af fyrir sig ekki vera að draga neinar ályktanir af þessum tíðindum varðandi þingfréttirnar. En ef þær fréttir eru á rökum reistar tel ég að þar sé augljóslega verið að stíga skref til baka í stað þess að efla fréttaflutning af störfum Alþingis í sjónvarpinu sérstaklega því að hljóðvarpið hefur sinnt þeim málum vel á undanförnum árum. En það sama verður því miður ekki sagt um sjónvarpið. Kannski er það fjárhagsstaðan sem á einhvern þátt í því án þess að ég vilji vera að leggja sérstakt mat á það hér og nú.
Virðulegur forseti. Þetta voru athugasemdir af minni hálfu við það sem fram kom hjá hæstv. menntmrh., en ég þakka honum þó fyrir að taka þátt í umræðunni. Það er ekki alltaf sem hæstv. ráðherrar bregðast við að eiga efnislegan orðastað við okkur þm. úr stjórnarandstöðu eins og hæstv. menntmrh. hafði þó tilburði til. Ég þakka honum fyrir það. (SJS: Þeir þurfa nú að vera til staðar.)