13.01.1988
Neðri deild: 53. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3961 í B-deild Alþingistíðinda. (2756)
63. mál, lánsfjárlög 1988
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Á þskj. 511 hef ég leyft mér að flytja brtt. við frv. til lánsfjárlaga fyrir árið 1988 ásamt hv. þm. Kristínu Einarsdóttur og Óla Þ. Guðbjartssyni. Tillagan er svohljóðandi:
„Við 22. gr. Greinin orðist svo:
Þrátt fyrir ákvæði 22. og 23. gr. útvarpslaga, nr. 68/1985, skulu tekjur framkvæmdasjóðs Ríkisútvarpsins af aðflutningsgjöldum af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum ásamt fylgihlutum eigi nema hærri fjárhæð en 100 000 þús. kr. á árinu 1988.“
Þetta er brtt. við skerðingarákvæði sem fram kemur í 22. gr. frv. varðandi tekjur Ríkisútvarpsins af aðflutningsgjöldum af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum ásamt fylgihlutum, en samkvæmt greininni er gert ráð fyrir að tekjur af þessum aðflutningsgjöldum renni í ríkissjóð og ekkert gangi til Ríkisútvarpsins. Brtt. gerir sem sagt ráð fyrir því að Ríkisútvarpið fái 100 millj. kr. á árinu 1988 af þessum aðflutningsgjöldum sem nema samkvæmt áætlun verulega hærri upphæð. Ég hef ekki fengið neina nákvæma úttekt á því hverju áætlað sé að aðflutningsgjöldin skili á yfirstandandi ári, hef þó heyrt nefnda töluna 150 millj. kr. þannig að hér væri þó um að ræða, ef sú áætlun er nærri lagi, að 2/3 af aðflutningsgjöldunum rynnu til Ríkisútvarpsins.
Eins og kunnugt er og fram er tekið í brtt. er framkvæmdasjóður Ríkisútvarpsins sá aðili sem samkvæmt útvarpslögum á að taka við þessum tekjum, en verkefni framkvæmdasjóðsins er að annast uppbyggingu Ríkisútvarpsins, fjárfestingar á þess vegum. Það segir í 22. gr. laga nr. 68 frá 1985, um útvarpsmál, með leyfi forseta, varðandi fjármál Ríkisútvarpsins:
„Ríkisútvarpið hefur sjálfstæðan fjárhag. Tekjum þess má eingöngu verja í þágu útvarpsstarfsemi. Megintekjustofnar Ríkisútvarpsins eru gjöld fyrir útvarpsafnot, gjöld fyrir auglýsingar í hljóðvarpi og sjónvarpi, aðflutningsgjöld af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum og hlutum í þau og aðrir tekjustofnar sem Alþingi kann að ákveða.“
Í 23. gr. sem vitnað er til í brtt. segir, með leyfi forseta:
„Í sjóð sem nefnist framkvæmdasjóður Ríkisútvarpsins skal leggja 10% af brúttótekjum stofnunarinnar. Aðflutningsgjöld af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum og hlutum í þau renni óskipt í sjóðinn. Fé framkvæmdasjóðs skal verja til að tryggja viðunandi húsnæði, tækjakost og dreifikerfi fyrir starfsemi Ríkisútvarpsins.“
Við 2. umr. um þetta mál, svo og við 1. umr. ræddi ég sérstaklega málefni Ríkisútvarpsins og þörfina fyrir uppbyggingu á þess vegum, nefndi þar sérstaklega uppbyggingu langbylgjukerfisins sem er með öllu úrelt orðið og þarfnast endurbyggingar. Þar er um mikið og brýnt verkefni að ræða sem varðar ekki aðeins útsendingar heldur einnig öryggismál um land allt, svo og útvarpssendingar til sjómanna á hafi úti. Einnig hefur Ríkisútvarpið talið hagkvæmt að hraða flutningi sjónvarpsins í útvarpshúsið við Efstaleiti með því að kaupa nauðsynlegar innréttingar fyrir sjónvarpið og telur að slík framkvæmd væri raunar hagkvæm. Ég vísa til umræðna um þetta efni og vænti að þessi tillaga um að hluti aðflutningsgjalda sem lög gera ráð fyrir renni til Ríkisútvarpsins með samþykkt þessarar brtt.