13.01.1988
Neðri deild: 53. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3965 í B-deild Alþingistíðinda. (2758)
63. mál, lánsfjárlög 1988
Frsm, minni hl. fjh.- og viðskn. (Kristín Halldórsdóttir):
Herra forseti. Ég skal vera mjög fáorð enda hélt ég drjúga tölu um þetta mál í gær og raunar við 1. umr., bæði almennt um efnahagsmálin og um einstakar greinar frv. og ég sé ekki ástæðu til þess að endurtaka það, en get vísað í mál mitt hér við báðar umræður þessa máls og almennt til málflutnings stjórnarandstöðunnar sem hér hefur heyrst. Það var aðeins vegna orða hv. síðasta ræðumanns þar sem hann raunar vísaði til brtt. stjórnarandstöðunnar sem allar voru felldar og hafði þau orð að ekki hefði verið komið til móts við stjórnarandstöðuna í neinu. Það er rétt hvað varðar þessar tillögur sem þarna komu fram, en ég sé ástæðu til þess að láta það koma fram að það var vissulega tekið tillit til ábendinga sem komu fram í nefndinni og þá vil ég sérstaklega draga það fram sem hv. þm. er vafalaust ljóst sem hafa hlustað á þennan málflutning að það var að frumkvæði þeirrar sem hér stendur að farið var að kanna betur forsendur fyrir lánveitingum varðandi ferjusmíði. Ég vildi aðeins leiðrétta þetta því að það má vel koma fram þegar tekið er tillit til ábendinga stjórnarandstöðu sem er sem betur fer stundum.