13.01.1988
Neðri deild: 53. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3971 í B-deild Alþingistíðinda. (2776)
Frumvarp um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga
Kristín Halldórsdóttir:
Herra forseti. Ég vildi aðeins vegna orða hv. 3. þm. Suðurl. láta í ljósi undrun mína á því að ekki skyldi orðið við hans ósk. Þar sem þm. hafa lagt nótt við dag og unnið mjög mikið til þess að greiða fyrir málum sem ríkisstjórnin og meiri hlutinn hafa talið brýnt að koma frá finnst mér það ekki réttmætt að verða ekki við ósk eins þm. og e.t.v. fleiri um það að taka þeirra mál á dagskrá og ræða þau ef tími hefði unnist til. Nú er klukkan aðeins 3. Við höfum verið á þingfundi í einn klukkutíma og hafa þingfundir oft staðið lengur og ættu í raun og veru að standa til kl. 4 svo að í raun hefði ekki verið neitt því til fyrirstöðu að taka mál hv. þm. á dagskrá. Ég harma að ekki var orðið við ósk hans í þessu efni.