13.01.1988
Efri deild: 52. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3971 í B-deild Alþingistíðinda. (2778)

63. mál, lánsfjárlög 1988

Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. kom saman kl. 15.30 til að ræða frv. og hafði ekki lokið störfum þegar hringt var til fundar svo ég fer fram á að gert verði hlé á fundinum til 16.30 til þess að nefndin geti unnið áfram að athugun málsins. (Forseti: Ég mun verða við þessum tilmælum og verður því fundi frestað til kl. 16.30.) — [Fundarhlé.]

Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur komið saman eins og ég skýrði frá fyrr á fundinum til að athuga þær breytingar sem gerðar hafa verið á frv. í Nd. Mætti Gunnar Hall hagsýslustjóri á fundi nefndarinnar og gerði henni grein fyrir þeim efnisrökum sem lágu til grundvallar breytingunum og er ekki að sökum að spyrja að nefndin varð ekki sammála um afgreiðslu málsins og skilar meiri hl. svohljóðandi nál.:

„Meiri hl. nefndarinnar hefur athugað þær breytingar sem gerðar hafa verið á frv. í Nd. og mælir með samþykkt þess svo breytts.

Að gefnu tilefni tekur meiri hl. fram varðandi erlendar lántökuheimildir Byggðasjóðs að ætlast er til að stjórn Byggðastofnunar horfi til allra þátta atvinnulífsins þegar lánsfjárþörf byggðarlaga er metin.

Gunnar H. Hall hagsýslustjóri kom á fund nefndarinnar og gerði grein fyrir þeim breytingum sem gerðar voru á frv. í Nd.

Guðrún Agnarsdóttir sat fund nefndarinnar.“ Undir þetta rita Halldór Blöndal, Eiður Guðnason, Jóhann Einvarðsson, Valgerður Sverrisdóttir og Eyjólfur Konráð Jónsson.

Um þær breytingar sem gerðar voru í nefndinni vil ég taka þetta fram:

Varðandi 1. brtt. er gert ráð fyrir 60 millj. kr. viðbótarlánsfjárheimild innlendri vegna lagningar á línu niður á Krosssand í Landeyjum vegna rafstrengs til Vestmannaeyja.

Í öðru lagi er gert ráð fyrir nýjum heimildum erlendum að fjárhæð 905 millj. kr., sem þó fela ekki í sér auknar skuldbindingar út á við heldur er eingöngu um það ræða að heimildir eru veittar til að breyta skammtímalánum í lengri og geðþekkari lán, betri lán, og varða þær heimildir Rafmagnsveitur ríkisins í fyrsta lagi, í öðru lagi raðsmíðaskipin sem á sl. ári voru seld einstaklingum eins og hv. þingdeildarmenn muna og í þriðja lagi lántökuheimildir varðandi Mánabergið sem selt var til Ólafsfjarðar á sl. ári.

Þá er gert ráð fyrir 200 millj. kr. viðbótarheimild til Byggðasjóðs, en í nál. meiri hl. fjh.- og viðskn. Nd. segir svo um þá viðbótarlántökuheimild: „Í því sambandi skal tekið fram að ætlast er til að Byggðastofnun styðji sérstaklega við útgerð í þeim byggðarlögum þar sem hún hefur dregist saman.“ Meiri hl. nefndarinnar er m.ö.o. þeirrar skoðunar að hér sé um óeðlilega þröng mörk að ræða. Engin efnisrök standi til slíkrar athugasemdar og að nauðsynlegt sé að breyta orðalagi með þeim hætti sem gert er í nál. meiri hl. Geri ég ráð fyrir því að þingdeildarmenn séu sammála um það að athuguðu máli og þegar búið er að benda á það.

Þá er gert ráð fyrir að hækka heimild til Kvikmyndasjóðs um 20 millj. sem er í samræmi við fjárlög.

Gert er ráð fyrir heimild fjmrh. til að selja ríkisvíxla til endurgreiðslu áður útgefinna ríkisvíxla og til að bæta stöðu ríkissjóðs á aðalviðskiptareikningi í Seðlabankanum. Þessi heimild er mjög víð og er það í sjálfu sér jákvætt að með þessum hætti er stefnt að því að ríkissjóður reyni að svara fjárþörf sinni með því að leita út á hinn almenna markað og verður að búast við því að ríkissjóður í sínum útboðum haldi sér innan hæfilegra marka varðandi þau kjör sem boðin eru á ríkisvíxlum þannig að þau séu í samræmi við önnur kjör sem boðin eru, t.d. hæstu innlánskjör sem boðin eru í lánastofnunum svo dæmi séu tekin, þannig að ekki komi til óstöðugleika í bankakerfinu vegna slíks framboðs. Hlýtur deildin að treysta því að skynsamlega verði staðið að útboðum ríkisvíxla á árinu, enda slíkir menn við völd í fjmrn. að maður hlýtur að bera töluvert traust til þeirra. (SvG: Og í ríkisbönkunum.) Ég tala nú ekki um ósköpin.

Loks er hér gert ráð fyrir því að heimild verði víðtæk til Byggðastofnunar til að skuldbreyta lánum ef með þeim hætti væri mögulegt að komast að hagstæðari kjörum erlendis sem er sjálfsögð breyting. Ég sé ekki ástæðu til að víkja nánar að þessum breytingum. Þær horfa til bóta. Og ég geri ráð fyrir því eða vonast a.m.k. til þess að minni hl. nefndarinnar hafi komist að þeirri niðurstöðu eftir að fundi var slitið að mjög vel sé vandað til þess frv. sem hér liggur fyrir og skýr efnisrök mæli með því að frv. verði samþykkt eins og það liggur nú fyrir deildinni.