13.01.1988
Efri deild: 52. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3998 í B-deild Alþingistíðinda. (2783)

63. mál, lánsfjárlög 1988

Guðrún Agnarsdóttir:

Herra forseti. Hér var frestað fundi til kvölds svo að hæstv. fjmrh. mætti vera viðstaddur. En hann er ekki hér og enginn ráðherra reyndar í salnum og það er satt að segja, hæstv. forseti, verulega ámælisvert að ráðherrarnir skuli ekki gefa sér tíma til eða telja það meðal skyldu sinnar að sækja þingfundi þar sem þingmenn ræða þau mál sem ríkisstjórnin leggur fram. Ég mundi vilja minna þingheim og gjarnan hefði ég viljað minna ráðherra, ef þeir væru hér staddir, á að þm. eru kjörnir fulltrúar þess lýðræðisþjóðfélags sem við byggjum. Þeir fjalla m.a. um og gagnrýna þessar ráðstafanir ríkisstjórnarinnar og ráðherrunum er nauðsyn að hlusta á þessa gagnrýni.

Það mætti e.t.v. segja að ráðherrar Alþfl. hafi látið sjá sig meira hér en aðrir en jafnframt mætti líka segja að það er vafasamt hvað á setu þeirra hefur verið að græða því að þau eru oft mögur svörin sem berast frá hæstv. fjmrh. þegar hann situr hér og hlustar á umræður. Það er reyndar líka undarlegt, hæstv. forseti, að eftir því sem ráðherrum fjölgar, þeim mun minna sjáum við af þeim hér í þingsölunum. Þó mætti ætla að fleiri ráðherrar þýddu aukna verkaskiptingu og þess vegna viðráðanlegri verkefnaskerf á hvern og einn ráðherrann. En hefur hæstv. forseti nokkra skýringu á því hvers vegna hæstv. ráðherrar þessarar ríkisstjórnar mæta svona illa? Finnst þeim þingið e.t.v. ekki þess virði að mæta hér? Hafa þeir e.t.v. sektarkennd og skammast sín? Þola þeir e.t.v. illa gagnrýnina? Eða hverjar skyldu vera ástæðurnar fyrir fjarvistum þeirra? Þetta er jú altjent hluti af starfi þeirra sem kjörinna þm. að sitja hér alveg eins og okkar.

Nei, herra forseti. Kannski eru þeir bara heima að undrast afleiðingar gerða sinna. Kannski sitja þeir og láta verðhækkanirnar koma sér á óvart og verða meira og meira hissa og alveg standandi hlessa yfir þeirri stefnu sem verðlagsmálin eru að taka eftir að þeir í einu snarhasti og blóðspreng umturnuðu tolla-, vörugjalds- og söluskattskerfinu, nærri fleygðu því í gegnum þingið formsins vegna og endasentu síðan þessum margföldu breytingum út í þjóðfélagið: Gjörið þið svo vel. Engir varnaglar. Enginn hægagangur eða slór. Nei, takk fyrir. Engin tök til að sjá fyrir afleiðingar eða afstýra óæskilegum hliðarverkunum þessara ráðstafana. Herra forseti. Þetta eru afleit vinnubrögð og afleitt að ráðherrarnir skuli ekki telja ástæðu til að dvelja hér í þingsölum og taka þátt í umræðum — þó þeir létu ekki nema svo lítið að líta hér inn og aðeins að láta sjá sig.

Ég tel það hættulegt ef ráðherrar eru ekki í tengslum við þingið og þá umræðu sem hér fer fram og enn hættulegra tel ég ef þeir eru ekki í tengslum við þjóðina, en til þess benda ýmis verk þeirra og ráðstafanir undanfarið, eins og t.d. matarskatturinn alræmdi. Ég vona að það sé rangt sem mér var sagt í dag að hæstv. fjmrh. hefði ekki veitt almenningi viðtöl a.m.k. sl. mánuð. Það er hættumerki ef ráðherrann hefur ekki virk tengsl við þann almenning sem hann ætlar síðan að láta bera uppi skattheimtu sem síðan á að nota til að reka þá velferð sem hér á að vera í þjóðfélaginu. Það þýðir að hann hefur alls ekki tekið púlsinn á þjóðinni. Hann veit einfaldlega ekki hvað er á seyði.

Áður en ég held lengra áfram langar mig að biðja hæstv. forseta að segja mér eitthvað um það hvort hingað muni mæta ráðherrar, hvort von sé á því að við megum sjá þá hér á fundi eða hvort í umræðunum í kvöld muni einungis verða óbreyttir þm. (Forseti: Ég vil að gefnu tilefni taka það fram að ég hef gert margítrekaðar tilraunir til að hafa upp á fjmrh. Það hefur ekki tekist. Ég vænti hans hér kl. 9, en það er af og frá að hann sé heima hjá sér. Sjálfsagt er hann að skyldustörfum annars staðar. Hitt er annað að ég mun halda þessum tilraunum áfram.)

Ég held næstum því, hæstv. forseti, að okkur væri nær að ræða þingræði, að okkur væri nær að ræða út á hvað þingræði gengur og hvert hlutverk þm. er og hvert hlutverk ráðherra er með þá stjórnarskrá sem við höfum í landinu í dag. Það nær náttúrlega engri átt ef ráðherrar sjá ekki ástæðu til að mæta hér þegar einmitt er verið að ræða þau mál sem þeir sjálfir leggja fram. Það er afar slæmt og það gerir þessa stofnun lítilsigldari heldur en ástæða er til. Og e.t.v. gerir það einnig kröfur til okkar um að við breytum þessu stjórnarfari ef ráðherrar, jafnvel þó þeir séu orðnir svona margir, sjá ekki tök á því að mæta í þingsalina, þá þarf e.t.v. að gera hér gjörbreytingu á stjórnarskránni til þess að við getum haldið eðlilegu vinnulagi. Hvaða gagn er að því fyrir okkur að gagnrýna verk ráðherranna ef þeir mæta ekkert og hlusta ekkert á okkur? Þá getum við alveg eins mætt til annarra skyldustarfa okkar. Því að öll höfum við fjölmörg skyldustörf alveg eins og ráðherrar.

Ég geri hlé á máli mínu um frv. til lánsfjárlaga og legg það fyrir þessa deild hvort við eigum ekki að bíða eftir því að ráðherrar, og þá sérstaklega þeir sem eiga mál sem eru til umræðu, þ.e. mál sem þeir hafa lagt fram á þinginu, sjái sér fært að mæta til að taka þátt í þessum umræðum eða hvort þm. hafa eitthvað við það að athuga almennt, einhverjir aðrir þm. en ég, hvort þetta er sérviska í mér. Ég vil, gera hlé á máli mínu til þess að fá úr því skorið. Ég sé ekki tilganginn með því að gagnrýna þetta ef hæstv. ráðherra er ekki til staðar.