13.01.1988
Efri deild: 52. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4002 í B-deild Alþingistíðinda. (2789)
63. mál, lánsfjárlög 1988
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Vegna þeirra orða sem ég viðhafði hér áðan er það að segja að ég taldi að hv. þm. Guðrún Agnarsdóttir hefði ekki heyrt þær skýringar mínar hér í kvöld sem ég gaf á fjarveru fjmrh. En nú vildi ég beina þeirri spurningu til þeirra sem óskað hafa eftir nærveru fjmrh., að takist ekki að ná til hans núna alveg á næstunni gæti það þá orðið mönnum einhver hugarléttir eða svarað þeirra spurningum ef hæstv. viðskrh. kæmi til fundarins. Ég veit að hann er heima hjá sér og reiðubúinn að koma hingað með örstuttum fyrirvara ef óskað er eftir. Ég mun hins vegar halda áfram að reyna að ná sambandi við fjmrh. En það mál vel vera að það fari svo að við verðum að fresta þessum fundi.