14.01.1988
Efri deild: 53. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4019 í B-deild Alþingistíðinda. (2801)

63. mál, lánsfjárlög 1988

Guðrún Agnarsdóttir:

Ég sé, herra forseti, að hæstv. ráðherra er hér í hliðarsal — já, og nú gengur hv. 2. þm. Norðurl. e. í salinn.

Að gefnu tilefni af orðum hæstv. ráðherra vil ég taka það fram að ég átti við alla ráðherra þessarar ríkisstjórnar en ekki sérstaklega við hann. Það er rétt hjá honum að hann hefur verið þaulsætnari en aðrir og jafnvel alþýðuflokksráðherrarnir, en þó hefur það verið með hæstv. fjmrh., eins og kom glögglega fram í þessum umræðum hér í morgun, að jafnvel þó hann sitji og hlusti þá svarar hann litlu og það er lítið á svörum hans að græða. Hann svaraði engu orði spurningum tveggja þm. deildarinnar um þróun í vaxtamálum. Þetta er auðvitað spurning sem brennur ekki bara á þm., hún brennur á fyrirtækjum, svo við tökum sem dæmi í sjávarútvegi, hún brennur einnig á einstaklingum sem skulda. Hver verður þróun vaxtamála? Þetta er mjög mikilvæg spurning. Og hvaða ákvarðanir ætlar ríkisstjórnin, og þá hæstv. fjmrh., að taka í þeim efnum þegar hann ætlast til þess að innlend lánsfjáröflun verði með þeim hætti sem kveðið er á um í því frv. sem nú liggur fyrir deildinni? Ég vildi endurkrefja hann um svör við þessari spurningu.

Síðan í sambandi við það sem varð hér í gærkvöldi þá sagðist hæstv. ráðherra hafa látið skrifstofu vita. Ég vil samt vekja athygli hans og ég vil vekja athygli hv. 2. þm. Norðurl. e. á því að fundi í þessari deild var frestað til kl. 9 vegna þess að hv. 7. þm. Reykv. hafði farið fram á það að ráðherra yrði viðstaddur fund. Þingflokksformaður Alþfl., hv. 3. þm. Vesturl., tilkynnti að ráðherra væri upptekinn og gæti ekki komið fyrr en kl. 9. Þegar hv. þm. með öll sín margvíslegu skyldustörf á herðunum mættu hér til vinnu til að ræða það frv. sem lá fyrir deildinni, þá var ráðherra ekki mættur. Ég er ekki að ásaka neinn en þannig var það. Ég býst við að ráðherra hafi haft löggildar ástæður til þess. Þær bárust þó ekki forseta, ekki þingflokksformanni Alþfl. og heldur ekki þm. þessarar deildar. Og það er miður að það skuli hafa verið svo lélegt samband við skrifstofu þingsins. Hér hlýtur að vera einhver mikill misskilningur á ferðinni og er við engan að sakast. Þess vegna var farið fram á það að hlé yrði gert á fundi í gær. Ég bað um hlé á fundi til þess að kannað yrði hvort nokkur möguleiki væri á því að ná í ráðherrann. Síðan stakk hv. 7. þm. Reykv. upp á því að í hléinu ræddu fulltrúar flokkanna saman um það hvernig best væri að koma við fundum deildarinnar. Þá var á þeim fundi ákveðið af öllum, og ekki sérstaklega að minni beiðni, að fundi yrði frestað til morguns, því að þá mundi ráðherra líklega geta mætt þar sem ekki náðist í hann í gærkvöld.

Þetta vil ég endurtaka og skýra vegna þess, og það kann að vera minn misskilningur, að mér fannst liggja einhverjar dylgjur í máli hv. 2. þm. Norðurl. e. En ég kann að hafa misskilið það og þá dreg ég það auðvitað til baka.

Síðan var rætt um Ríkisútvarpið, eina ferðina enn, og þá segir hæstv. fjmrh. alveg á svipaðan hátt og haft er eftir hæstv. menntmrh. í Morgunblaðinu í dag úr umræðum í Nd. að Ríkisútvarpið hafi, ja næstum því gerst ábyrgðarlaust í eyðslu sinni. Hvorugur ráðherrann minnist á það að á sama tíma og Ríkisútvarpinu er ætlað að reka sjálft sig með allar þær skyldur og ábyrgðir sem það hefur, þá sker ríkisstjórnin niður lögbundið framlag til þessa fyrirtækis. Það sker niður veigamikinn tekjustofn og segir síðan við Ríkisútvarpið: Hvernig stendur á því að þér dettur í huga að eyða svona yfir um? Hvernig ferðu með vasapeninga þína, Ríkisútvarp? — sem það hefur ekki fengið. Það hefur ekki fengið sinn lögbundna tekjustofn. Hvers konar útskýringar eru þetta? Þá er betra að hafa söguna heila og segja hana eins og hún er, en ekki bara hálfa.

Og ég vil krefja hæstv. ráðherra um svör við spurningum um þróun vaxtamála. Skýrt og skorinort svo það fari ekki á milli mála.