14.01.1988
Efri deild: 53. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4043 í B-deild Alþingistíðinda. (2814)

63. mál, lánsfjárlög 1988

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Þar sem komið hefur í ljós að fjárhagur Ríkisútvarpsins er mjög erfiður um þessar mundir og þar sem einnig hefur komið í ljós að sú endurskoðun á stöðu Ríkisútvarpsins, sem nú er í gangi, er byggð á ákaflega veikum forsendum að mínu mati þar sem hún er í höndum nefndar sem skipuð var af fyrrv. ríkisstjórn og ég teldi eðlilegra að slík endurskoðun færi fram á vegum allra flokka í þinginu ef hún á að ná viðunandi árangri, þá tel ég óhjákvæmilegt að þingið taki nú ákvörðun um að styrkja og bæta hag Ríkisútvarpsins og segi því já.