14.01.1988
Efri deild: 53. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4043 í B-deild Alþingistíðinda. (2815)
63. mál, lánsfjárlög 1988
Eiður Guðnason:
Herra forseti. Ég vísa til þess sem ég hef áður sagt í atkvæðagreiðslu um þessa sömu grein lánsfjárlaga. Þó að sú endurskoðun útvarpslaga sem nú á sér stað sé framkvæmd af þriggja manna nefnd þá á það mál auðvitað eftir að ganga hér inn á hið háa Alþingi og inn í alla þingflokka til umræðu. Og í trausti þess að sú endurskoðun sem nú stendur yfir leiði til þess að Ríkisútvarpinu verði tryggður öruggur og öruggari rekstrargrundvöllur en það nú hefur, þá segi ég nei við þessari tillögu.